Andvari - 01.01.1932, Side 14
10
Sigurður Stefánsson prestur í Ögurþingum.
Andvari
Búskap byrjaði hann félaus með öllu, sem áður var
sagf, en hafði jafnan mikinn kostnað, setti syni sína alla
þrjá til mennta, ól upp fimm börn vandalaus og hafði
mikla risnu. Má af slíku sjá, hvílíkur bóndi hann var.
Var þó eigi búskap einum að sinna, er hann var klerkur
í erfiðu kalli og þjónaði auk þess kirkjusókn á Snæ-
fjallaströnd um mörg ár. í hreppsnefnd Ögurhrepps var
hann öll búskaparár sín í Vigur, að undanskildu því
fyrsta, og oddviti nefndarinnar frá 1894. Sýslunefndar-
maður hreppsins var haun öll þessi sömu ár og tók
þátt í öllum meira háttar félagsmálum héraðsins, ýmist
sem styrktar- og forgöngumaður eða stjórnandi. Má þar
til nefna gufubátaferðir um Djúpið, er hann átti for-
göngu að. Var það fyrsti flóabátur á íslandi. Enn
má nefna:
Prentfélag ísfirðinga, stofnað 1885.
Kaupfélag ísfirðinga, stofnað 1888.
Bátaábyrgðarfélag ísfirðinga, stofnað 1903 og
Búnaðarsamband Vestfjarða, stofnað 1907. Var hann
formaður þess félags frá byrjun til ársins 1919.
Auk þess sat hann á 26 þingum, og voru mörg þeirra
sumarþing, ritaði og allmikið um opinber mál bæði í
blöð og tímarit.
Það, sem fyrst beindi huga Sigurðar að landsmálum,
voru áhrif í föðurgarði. Þar hlustaði hann á orðræður
afa síns um baráttu Baldvins Einarssonar, Fjölnismanna
og ]óns Sigurðssonar fyrir málefnum ættjarðar sinnar.
Tók hann þá að lesa um afrek þessara manna og fyrir-
ætlanir í baráttunni fyrir landsréttindum íslands og
menntun þjóðarinnar í andlegum og efnalegum greinum.
Fyrstu þrjú prestskaparár sín hafði Sigurður gott tóm
til þess að kynna sér landsmál. Gaf hann sig þau ár