Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1932, Page 18

Andvari - 01.01.1932, Page 18
14 Sigurður Stefánsson prestur i Ogurþingum. væri létt ánauð og ofríki Dana, ef við tæki innlent ein- ræði og ófrelsi. Eu hitt var honum ekki síður ljóst, að stjórnskipulegt sjálfstæði er ófullnægjandi og ekki til frambúðar, nema því fylgi fjárhagslegt sjálfstæði. Lagði hann því frá öndverðu hina mestu áherzlu á það, að fjárhagur landsins væri í góðu lagi, og krafðist þess skilyrðislaust, að alþingi gætti þess í allri löggjöf og tryggði það með afgreiðslu fjárlaganna hvert sinn. Um þetta voru þingmenn vel samhentir, þar til er stjórnin varð innlend, og raunar hafði þingið allgóða skipun á þessu, allt til þess er Norðurálfuófriðurinn brauzt út. Þá var þó tekið að fjölga á þingi þeim mönnum, er lítil skil kunnu á fjármálum, og tekið mjög að skerast í odda milli þeirra sumra og Sigurðar. Sá hann brátt, að til mikils háska horfði í þessum efnum og að nauðsyn bar til að þeir þingmenn, sem skilning höfðu á fjárhagsmálunum næðu að bindast einhverjum samtökum. Allt þetta leiddi til þess, að nú skildi leiðir Sigurðar og ýmsra þeirra, sem verið höfðu samherjar hans í sjálfstæðismálunum. Taldi hann, að þeir margir hefðu horft sig blinda á stjórnskipulegt sjálfstæði og gættu þess ekki, að þeir með ógætni sinni í fjármálum væru orðnir sjálfstæði landsins hættulegir. Sigurður varð einn af stofnöndum sparnaðarbandalagsins. Ox banda- laginu brátt fylgi í þinginu, en þó var það þar lítils ráð- andi, þar til er það sigraði við alþingiskosningarnar 1923. Það lætur að líkum, að Sigurður hefir átt mjög mik- inn þátt í löggjöf landsins. Átti hann jafnan sæti í hin- um stærri nefndum og talinn ætíð einhver mesti starfs- maður þeirrar deildar, er hann átti sæti í. Ekki bar hann fram geysimörg mál sjálfur. Lagði hann höfuð- áherzlu á það, að vandað væri til löggjafarinnar, svo að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.