Andvari - 01.01.1932, Síða 21
Andvari
Sigurður Stefánsson prestur f Ogurþingum.
17
Sigurði presli var létt um ræðugerð og einnig létt
um mál. Varð honum snemma tamt að flytja ræður
blaðalaust, einkum aðrar ræður en stólræður. Er það
wel fallið til áhrifa, ef menn kunna með að fara, þwí að
jafnan werður kaldara, það sem af blöðum er lesið.
Swo sagði Sigurður prestur frá, að á prestaskólaár-
um hans hefðu sótt á sig efasemdir um ýmsar kenn-
ingar kirkjunnar, og mest um höfuðatriði kristindóms-
ins. Olli þetta honum mikils kwíða um það starf, er
hann hafði þá ákweðið að gera að lífsstarfi sínu. En eftir
alwarlega yfirwegun og sjálfsprófun, war ákwörðun hans
tekin. Varð hann mikill trúmaður og fylgdi trúarskoð-
unum gamalguðfræðinga.
Skömmu eftir aldamótin fóru að koma fram í presta-
stétt landsins wefengingar á ýmsum kenningum lúthersku
kirkjunnar. Voru fylgjendur þeirrar stefnu kallaðir ný-
guðfræðingar, en hinir, sem móti þessari stefnu risu,
voru kallaðir gamalguðfræðingar. Gamalguðfræðingar
töldu, að hin nýja stefna warpaði fyrir borð höfuðatrið-
um hinnar kristnu trúar og að þeir klerkar, er henni
fylgdu, gætu með engu móti werið embættismenn hinnar
ewangelisku lútersku kirkju eða haft prestþjónustu á
hendi fyrir hina íslenzku þjóðkirkju. Af þessum málum
warð allmikil ritdeila milli Sigurðar prests annars wegar
og ]óns Helgasonar núwerandi biskups hins wegar.
Klerkar landsins fylgdu þessari deilu af mikilli athygli.
Þökkuðu gamálguðfræðingar Sigurði þá wörn, er hann
veitti fyrir skoðanir þeirra. Höfðu greinir hans wakið
svo mikla eftirtekt, að íslenzka kirkjufélagið í Winnipeg
í Ameríku gerði honum heimboð í þakkarskyni. Ekki
leyfðu ástæður hans, að hann þægi það boð.
Síðar, þegar spiritistar og guðspekingar hófu hér
kenningar sínar, ritaði hann allmikið um þær kenn-
2