Andvari - 01.01.1932, Qupperneq 24
20
Siguröur Stefánsson prestur í Ögurþingum.
Andvnri
kreddulaus. Heldur var hann seinn til vináttu, og batt
hana við þá eina, er voru að hans skapi, eða höfðtt
verið hans nauðleitarmenn, en vinátta hans entist vel.
Ekki var hann áleitinn við aðra menn, en brást við hart,
ef vopn voru á hann borin, sem alloft bar við á hinum
pólitiska orrustuvelli. Vígreifur var hann og glöggur á
höggstaði, en vopnaburður hans var tilkomumikill og
drengilegur.
Sá, sem þessi minningarorð skrifar, kynntist síra Sig-
urði talsvert náið síðasta fjórðung ævi hans. Virtist hon-
um hann vera fastlyndur maður og djúpvitur og gædd-
ur fágætri sjálfsþekkingu. Kunni hann vel að ætla kröft-
um sínum átak. Fór og oftast svo, að þótt mjög væri
sæmilega byrjað, bar þó endirinn af upphafinu. Er þar
gleggst til dæmis, að þótt hann væri ekki mikils um
kominn, er hann kom í fjörðu vestur, fór svo, að hann
varð stærsti maður í héraði og leysti hvers manns vand-
ræði, er til hans sótti.
Þeir fáu þættir, er hér að framan eru raktir úr ævi-
starfi síra Sigurðar, lýsa flestir nokkuð skapferð hans.
Þó er þar getið tveggja atvika, sem öðru fremur bera
glögg vitni í því efni. Annað er það, er hann á fyrstu
prestskaparárum sínum afsalaði sér virðulegasta prests-
embætti landsins fyrir þá sök, að honum virtust fylgis-
aienn sínir ekki hafa komið allskostar drengilega fram
við keppinaut hans, og efaðist um, að hann mundi vaxa
meir af þessu embætti en því er hann áður hafði. Hitt
var það, er hann afþakkaði ráðherraembættið, er á þeim
árum, fyrstu árunum eftir að stjórnin varð innlend, var
talið hið mesta iignarsæti.
Síra Sigurður lézt á sjúkrahúsi í Reykjavík 21. apríl
1924. Var hann þá 69 ára að aldri. Heldur kom frá-
fall hans mönnum á óvart. Hafði hann setið sýslu-