Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1932, Side 34

Andvari - 01.01.1932, Side 34
30 Athyglin. Andvari starfs og reynsiu einstaklingsins, er í fæstum tilfellum hægt. Eg hefi þá stuttlega drepið á helztu skilyrði athygl- innar, skilyrðin fyrir því, að eilthvað fái ósjálfrátt að- gang að meðvitund vorri og komi þar skýrt fram. Allir vita, að athyglin getur beinzt ósjálfrátt að hugmyndum, ekki síður en út á við, að því sem vér skynjum. Menn geta verið svo niðursokknir í að athuga endurminningar, eða ímyndanir, að þeir gefi engan gaum að því, sem fram fer í kringum þá. Ein hugmyndin rekur aðra og hver stendur lifandi fyrir hugskotssjónum. Þá athygli, sem á rót sína í ytri skilyrðum, getum vér kallað ósjáli- ráða athygli, en sjálfkvæma athygli, þá sem á rót sína í innri skilyrðum. Athyglin getur líka verið sjálfráð, og vér skulum nú líta á, í hverju hún er fólgin. Sjálfráð athygli er það, þegar vér snúum huganum vísvitandi að einhverju efni, ekki vegna þess að það dragi at- hyglina ósjálfrátt eða sjálfkvæmt að sér, heldur af því að vér þurfum þess og viljum athuga það, vegna ein- hvers annars. Slíkri athygli fylgir einkennileg áreynslu- tilfinning, sem allir munu þekkja af eigin reynd. Vér höfum hana, þegar vér reynum að greina áhrif, sem eru svo veik, að vér rétt að eins getum greint þau; veik hljóð, óljós sýnileg fyrirbrigði, veik áhrif á húðina o. s. frv. eða greina skynjan, sem er ofin f aðrar skynjanir, sem henni eru líkar: vér höfum hana, þegar vér reynum að standa á móti freistingum annara áhrifa, sem ósjálfrátt laða til sín athyglina, t. d. þegar skólabarnið reynir að hlusta á það, sem kennarinn segir, þó að það heyri hlátur og skautahljóð fyrir utan gluggann á kennslu- stofunni, eða þegar maður er að lesa leiðinlega bók og heyrir uppáhaldslagið sitt leikið í næstu stofu. Vér höf- um hana, þegar vér erum að reyna að skýra fyrir oss
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.