Andvari - 01.01.1932, Side 58
54
Heyþurkunarvél.
Andvari
ugar fyrir bændur til heyþurkunar. Og skal þeim lýst
nokkru nánara.
Þær eru með tvennu móti; önnur þeirra er hreyfan-
leg og má flytja hana eftir vegum stað úr stað. Hin
gerðin er grunnmúruð og sett upp, þar sem hún á að
standa. Að öðru leyti eru vélarnar ein og hin sama
tegund. — Þurkunaraðferðin er í því fólgin, að loft er
hitað upp í þar til gerðri eldstó eða ofni, sem er utan
við vélina. Þessu heita Iofti er veitt inn í heyþurkunar-
vélina og síðan dælt um hana alla með hæfilegum
þrýstingi, en um leið er heyið dregið yfir heita loftið á
grind; þrýstist þá loftið í gegnum heylagið á grindinni
og tekur úr því vætuna — þurkar það — um leið.
Grunnmúraða vélin er þannig gerð, að fyrst verður
að grafa fyrir undirstöðum, fylla upp, slétta gólf og
ganga frá öllu, eins og reisa skuli hús. Síðan er slegið
upp venjulegum steinsteypumótum og veggir steyptir úr
sterkri steypu og járnbindingur í. Stærðin á þessum
steypta kassa er: Lengd 25 fet,1)
breidd 8 — og
hæð 7 —
A hlið við annan endann á kassanum er hlaðin eld-
stóin, og er hún úr eldföstum steini og styrkt með járn-
um. I sama endanum eru tvær loftveifur inni í kassanum,
sem þrýsta heita loftinu, sem kemur úr eldstónni, um
allan kassann. Að ofan í kassanum er grind sú, sem
heyið er dregið á; hún er gerð úr þverteinum úr járni,
sem eru jafnlangir og kassinn er breiður að innan og
tengdir saman með þuml. millibili og mynda óslitið
band eða belti, sem liggur utan um tvo ása, sinn í
hvorum enda kassans. Þegar ásunum er snúið, hreyfist
1) Öll mál i grein þessari eru ensk.