Andvari - 01.01.1932, Side 64
60
Heyþurluinarvél.
Andvari
skriður er kominn á málið og vélin á endurbótavegi,
því að hér verður að búast við því, að hið nýja taki hinu
eldra fram. Vel getur farið svo enn, að önnur gerð
finnist ný og betri en sú, sem nú er bezt. Og fyrst
einu sinni er fundin aðferð til að þurka hey með vélum,
þá má láta sér detta í hug, nú á þeirri vélaöld, sem
vér lifum á, að ekki verði látið staðar numið við endur-
bætur á þessari vél, fyrr en hún er orðin þannig úr
garði gerð, að hver maður, sem með þarf, getur fært
sér í nyt þau þægindi og þann hagnað, sem til er ætl-
azt, að verði henni samfara. Það virðist svo í fljótu
bragði, að það ætti ekki að vera neinn galdur að leiða
heitt loft í gegnum hey í kassa til þess að þurka það.
f Lundúnum munu að vísu hafa verið vel hæfir menn
að verki, en fyrir þeim hefir vakað fyrst og fremst, að
gera vélar til að þurka sykurrófur í stórum stíl til stór-
framleiðslu á sykri, og gæti því hugsazt, að þeir hafi
ekki lagt sig eins í líma við hin minni viðfangsefni.
Ef til vill bæta þeir vél sína, áður en langt um líður,
svo að hún geti komizt inn á hvert íslenzkt sveita-
heimili. Eða vera má, að íslendingar verði sjálfir svo
hugvitssamir að þeir, áður en Iangt um líður, geti leyst
þetta mál eins og oss hentar.
Björgúlfur Ólafsson.