Andvari - 01.01.1932, Side 74
70
Síldarleit úr lofti 1931.
Andvari
fyrsta tilkynning um, að síld hefði sézt úr lofti, kom 7.
júlí, enda byrjaði veiðin almennt ekki fyr en um það
leyti. Veður var mjög óhagstætt um sumarið, og féllu
því allmargir dagar úr, svo að ekki varð unnt að leita
vegna storms eða þoku. Flugvélarnar störfuðu við síldar-
leit í 68 daga, en af þeim féllu 25 dagar úr (11 dagar
í júlí, 12 dagar í ágúst og 2 dagar í sept. fram til 5.,
að hætt var að Ieita). 43 daga hefir því verið leitað og
voru sendar út jafnmargar tilkynningar. Flognir kíló-
metrar námu 23.000. Sumar af tilkynningum þessum
voru neikvæðar, þ. e. a. s. flugvélin flaug yfir ákveðið
svæði og tilkynnti, að engin síld hefði sézt og má aug-
Ijóst vera, að slíkar tilkynningar geta orðið að miklu
gagni og sparað skipum að sigla á staði þar sem engrar
síldar er von. En mjög margar tilkynningar skýrðu frá,
að síld hefði sézt á ýmsum stöðum og skulu hér birt
nokkur sýnishorn af síldartilkynningum, sem birtar voru
á Siglufirði og Akureyri og útvarpað var frá Reykjavík.
Sýnishorn af síldartilkynningum.
Tilkynning 20. júlí: Súlan flaug í dag síldarflug frá
Reykjavík til Siglufjarðar og Akureyrar. Flogið var yfir
Grímsey á Steingrímsfirði til Ingólfsfjarðar, þaðan stefnu
Skaga til Siglufjarðar. Sfld sást, 20—30 torfur, við
land á Bjarnarfirði, 2 torfur um 5 sjómílur suðaustur
af Selskeri, 1 torfa 5 sjómílur út af Hrollaugshöfða.
Kyrrt og heiðríkt veður. AUmörg skip að veiðum. Fjöldi
báta frá Siglufirði komu inn fullir síldar, er þeir höfðu
veitt á Skagafirði, austan við Skaga, vestan Drangeyjar
og við Málmey; einnig veiddist þá síld út af Siglufirði.
Tilkynning 21. júlí: Súlan flaug í dag síldarflug 2
tíma og 10 mínútur frá Siglufirði um Skaga að Stein-
grímsfirði og til baka inn Skagafjörð til Siglufjarðar.