Andvari - 01.01.1932, Blaðsíða 76
72
Síldarleit úr lofti 1931.
Atulvari
Síld sást um 10 torfur út af Hofsósi. 25—30 skip þar,
sum að veiðum. Skyjað og hálfskyjað á Húnaflóa og
Skagafirði, austan kaldi, slæmt til athugana. Skipherr-
ann á varðskipinu Þór var með í fluginu til þess að
líta eftir skipum, og fyrst um sinn mun einn af yfir-
mönnum varðskipsins fljúga með á síldarfluginu.
Tilkynning 11. ágúst: Álftin flaug í dag kl. 6 síldar-
flug frá Akureyri út fyrir Gjögur austur með landi,
inn Skjálfandaflóa út fyrir Tjörnes, þaðan stefnu norðan
við Flatey til Siglufjarðar. Allmargar síldartorfur sáust
austur við Tjörnes og ógrynni af síld fyrir austan og
norðan Flatey og var þar fjöldi skipa, mörg að veiðum.
Tilkynning 12. ágúst: Álftin flaug í dag síldarflug
frá Siglufirði inn Skagafjörð, út fyrir Skaga, inn Húna-
flóa til Blönduóss og til baka til Siglufjarðar. Sá mjög
mikla síld kringum Skagann, einkum að austanverðu,
en engin skip voru þar. Talsvert af skipum vestan við
Skagann á Húnaflóa.
Tilkynning 13. ágúst: Álftin flaug í dag síldarflug
frá Akureyri inn Skjálfandaflóa út með Tjörnesi, inn
Axarfjörð, út með Melrakkasléttu, og til baka um Mán-
áreyjar og Flatey til Siglufjarðar. Nokkur síld sást ná-
lægt landi hjá Flatey, allmikil síld fyrir vestan Tjörnes
og mjög mikið af síld fyrir norðan og vestan Mánár-
eyjar. Engin skip voru þar, en allmörg við Flatey.
Tilkynning 20. ágúst: Álftin flaug síldarflug í dag
frá Siglufirði vestur Skagafjörð og Húnaflóa, norður
með Ströndum, út fyrir Horn, til Isafjarðar og þaðan
aftur til Siglufjarðar. Sá mjög mikla síld með Strönd-
um öllum frá Reykjarfirði til Horns hins syðra og
ennfremur nokkrar torfur út af Skaga. Athugasemd í
dagbók: Undanfarna daga höfðu skip ekki orðið vör
síldar á vestanverðu síldarsvæðinu, en haft nóga veiði