Andvari - 01.01.1932, Síða 80
76
Síldarleit úr lofti 1931.
Andvari
viku, og voru vikuskýrslur þessar birlar á Siglufirði og
Akureyri og ennfremur var þeim útvarpað frá Reykja-
vík og sumar þeirra birtar í blöðunum. Eru þær at-
hugaverðar að mörgu leyti, því að af þeim má all-
glögglega sjá hreyfingar síldarinnar um síldartímann.
Fara þær hér á eftir:
Vfirlit um dagana 30. júní — 4. júlí: Dagana 30.
júní til 4. júlí flaug Súlan síldarflug samtals ca. 7 tíma
um svæðið frá Vestfjörðum til Skjálfandaflóa. Leitað
var á vestanverðum Húnaflóa norður með Ströndum,
á Skagagrunni, Skagafirði inn fyrir Drangey og Málmey,
á Eyjafirði og Skjálfanda til Húsavíkur. Vfir nokkuð
af svæðinu var flogið oftsinnis. Engin síld sást, enda
leitarveður fremur óhagstætt, og tvo síðustu dagana
varð ekkert flogið vegna veðurs. Skip hafa ekki orðið
vör síldar, nema eitt skip veiddi um 300 tunnur á
Húnaflóa. Síldarvertíðin naumast byrjuð enn.
Vikuskýrsla 5.—11. júlí: Vikuna 5.—11. júlí flaug
Súlan síldarflug 4 daga, samtals um 9 tíma, yfir svæðið
frá Eyjafirði til Húnafióa, þar á meðal margsinnis milli
Akureyrar og Siglufjarðar. Einnig var flogið út til þess
að athuga erlend veiðiskip. Síld sást á þessum stöðum:
Undir landi hjá Sölvabakka á Húnaflóa, 10 sjómílur
norður af Skaga, á Haganesvík, undan Dalatá og út
af Siglufirði. Ennfremur út af Ólafsfirði og inni á Eyja-
firði fyrir norðan Hrísey. Flesta dagana var veður
fremur óhentugt til síldarleitar, og þrjá dagana varð
ekkert flogið vegna veðurs. Mörg skip farin til veiða.
Afli góður.
Vikuskýrsla 12.—18. júlí: Vikuna 12.—18. júlí flaug
Súlan síldarflug samtals um 12 tíma um svæðið frá
Húnafióa austur að Melrakkasléttu og tvisvar sinnum
var sérstakur maður með í flugvélinni, einkum til þess