Andvari - 01.01.1932, Page 92
83
Enn um kornyrkju á íslandi.
Andvari
Fyrsla tilraunin og elzta er með sáðtímann fyrir
byggrækt. Hefir hún leitt í ljós, hver áhrif sáðtíminn
hefir á uppskeru og korngæði, og gefið vísbending um
það, hver áhrif mismunandi hiti og úrkoma hafa á full-
þroskun kornsins.
í þessi níu ár hefir byggið alit af náð fullum þroska,
og bezt síðustu þrjár sáðtíðirnar.
Þá hafa og tilraunir staðið yfir í fjögur sumur með
tilbúin áburðarefni og búfjáráburð, í þremur flokkum.
Hafa þessar tilraunir vísað veginn og kennt mér betur
en ég vissi áður, hvernig haganlegast er að bera á fyrir
kornrækt við svalt loftslag ísiands.
Tilraunir standa og enn fremur yfir með sáðaðferðir,
sáðmagn og kynbætur af byggi. Virðast þessar tilraunir
ætla að bera markverðan árangur.
Þá eru og síðast gerðar tiiraunir með 13 afbrigði af
byggi og 19 afbrigði af höfrum frá þessum löndum:
Noregi, Danmörku, Ameríku og Svíþjóð. Bezt hafa
reynzt afbrigðin frá Noregi.
Átta afbrigði af bygginu hafa allt af náð fullum þroska,
en þrjár laklegum. — Af hafra-afbrigðunum hafa ellefu
náð sama þroska sem móðurfræið, en átta náð lakleg-
um þroska, og ganga sennilega úr á næstu árum.
Eitt meðal annars, sem sannar nokkuð, að skilyrðin
sé ekki eins þröng, að því er veðráttuna snertir, sem
ætla mætti, er einmitt það, hvað mörg afbrigði af báð-
um þessum korntegundum, byggi og höfrum, ná hér
fullum þroska og gefa viðunandi uppskeru.
Beztu afbrigðin af byggi eru: íslenzkt Dönnes, Maskin-
bygg, Nymoen og Omes, öll ættuð frá Noregi.
Beztu afbrigðin af höfrum eru: Niðarhafrar, Vall-
hafrar, Perluhafrar, Pennahafrar, Beiarhafrar, Tilrum-
hafrar, Svalöv, Orion og Favorithafrar.