Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 2
2 4. september 2009 FÖSTUDAGUR
Rúnar, er hann eitthvað kex-
ruglaður?
„Nei, en við ættum kannski að hitt-
ast yfir bakkelsi og koma hlutunum
á hreint.“
Umboðsmaðurinn Bram van Barne-
veld sagði í fjölmiðlum að KR stæði á
brauðfótum. Rúnar Kristinsson, yfirmaður
knattspyrnumála hjá KR, vísar því á bug.
NÁTTÚRA Veiðimenn í Laxá í Kjós
göptu í forundran þegar Nissan
Terrano jeppi kom akandi upp ána
rétt áður en veiði lauk um klukkan
átta í fyrrakvöld.
Jeppinn ók í átt að Laxfossi
þar sem hann festi sig. Ökumað-
ur jeppans náði þó að losa hann og
snúa honum við áður en hann fest-
ist aftur. Auk ökumannsins voru
þrír farþegar í jeppanum. Eftir þó
nokkurn barning gafst ökumaður-
inn upp á að losa jeppann og óðu
fjórmenningarnir í land þar sem
hringt var á lögregluna sem kom
á staðinn ásamt björgunarsveit-
inni Kyndli úr Mosfellsbæ. Vaskir
menn úr björgunarsveitinni bundu
spotta í jeppann og drógu hann upp
úr ánni.
Gylfi Pétursson, staðarhaldari í
Laxá í Kjós, segist aldrei áður hafa
séð annað eins. Þetta sé í fyrsta
skipti sem bifreið sé ekið upp ána
við Laxfoss sem sé rómaður veiði-
staður og ein helsta ímynd árinn-
ar.
„Veiðimönnum er illa við það
þegar bílar koma nálægt árbakkan-
um hvað þá þegar þeir koma akandi
upp á og festa sig við veiðihylji eins
og reyndin var í þessu tilfelli,“
segir Gylfi. „Þarna held ég að það
sé búið að setja nýtt viðmið í tillit-
sleysi gagnvart veiðimönnum.“
Þröstur Elliðason fiskeldisfræð-
ingur segir þessa atburðarás ótrú-
lega. Ólíklegt sé að ökuferð einn-
ar bifreiðar upp ána hafi einhver
áhrif á lífríki hennar þó vissulega
hafi þetta truflandi áhrif á veiði
í stuttan tíma. Spurður hvort ein-
hver viðurlög séu við svona löguðu
segist hann ekki vita til þess.
„Enda eru menn ekki vanir því
að bílar aki beinlínis að veiðihylj-
um úti í á,“ segir Þröstur.
Helga Jósefsdóttir, ökumaður
jeppans, segir að eigandi jepp-
ans hafi manað sig til að keyra út
í ána.
„Það var vegslóði við bakkann
en þegar við vorum komin út í á
sáum við að það var enginn slóði
hinum megin,“ segir Helga. „Við
ókum því upp ána til að leita að
stað til að fara upp úr en þá fest-
um við okkur tvisvar og þurftum
að lokum að vaða í land. Það var
engin hætta á ferðum, vatnið náði
rétt upp að hné.“
Spurð hvort hún líti það ekki
alvarlegum augum að aka upp eina
af bestu laxveiðiám landsins svar-
ar hún: „Við vissum ekki einu sinni
hvaða á þetta var.“
trausti@frettabladid.is
Veiðimenn göptu er
jeppi kom upp ána
Jeppa var ekið upp Laxá í Kjós en festist við Laxfoss. Staðarhaldari segist aldrei
hafa séð annað eins. Búið að setja nýtt viðmið í tillitsleysi gagnvart veiðimönn-
um. Ökumaður var manaður í aksturinn en vissi ekki um hvaða á var að ræða.
JEPPI VIÐ LAXFOSS Björgunarsveitarmenn úr Kyndli í Mosfellsbæ komu og drógu
bílinn upp úr ánni.
Við vissum ekki einu
sinni hvaða á þetta var.
HELGA JÓSEFSDÓTTIR
ÖKUMAÐUR JEPPABIFREIÐARINNAR
VIÐSKIPTI Kröfuhafar Kaupþings
geta eignast allt að 87 prósent
hlutafjár í Nýja Kaupþingi sam-
kvæmt samningi sem fulltrúar
Kaupþings, Nýja Kaupþings og
ríkisins undirrituðu í gær.
Í samningnum er kveðið á um
endurfjármögnun bankans og
uppgjör milli Kaupþings og Nýja
Kaupþings. Skilanefnd Kaupþings
hefur frest til loka október til að
taka ákvörðun um hvort hún, fyrir
hönd kröfuhafa, samþykki að eign-
ast 87 prósent í Nýja Kaupþingi á
móti 13 prósenta hlut ríkisins.
Annar möguleiki er að Kaupþing
taki ekki þátt í fjármögnun Nýja
Kaupþings í bili, en fái á móti kaup-
rétt á 90 prósentum hlutafjár sem
verði virkur frá 2011 til 2015.
Samningurinn var undirritað-
ur með fyrirvara um niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar á Nýja
Kaupþingi, sem og samþykki Fjár-
málaeftirlitsins og Samkeppniseft-
irlitsins, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Kaupþingi.
Í kjölfar undirritunar samnings-
ins voru gerðar breytingar á stjórn
Nýja Kaupþings, og mun ný stjórn
leiða bankann þar til endanlegt
eignarhald liggur fyrir.
Erna Bjarnadóttir tekur við
stjórnarformennsku af Huldu
Dóru Styrmisdóttur, sem hverf-
ur úr stjórninni. Auður Finnboga-
dóttir hverfur einnig úr stjórninni,
en Theodór Sigurbergsson kemur í
hennar stað. - bj
Ríkið undirritar samkomulag við Kaupþing og Nýja Kaupþing um eignarhald:
Kröfuhöfum boðinn bankinn
MEIRIHLUTI Kröfuhöfum Kaupþings
býðst að eignast 87 til 90 prósent hluta-
fjár í Nýja Kaupþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVISS, AP Tíminn er brátt á þrot-
um fyrir þjóðir heims að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda
sagði Ban Ki-
moon, fram-
kvæmdastjóri
Sameinuðu
þjóðanna, á ráð-
stefnu með full-
trúum um 150
þjóða í Genf í
Sviss í gær.
„Hitastigið
á norðurheim-
skautasvæðunum hækkar hrað-
ar en annars staðar,“ sagði Ban.
„Norðurheimskautið gæti verið
orðið íslaust árið 2030.“
Hann skoraði á þjóðir heims að
taka fótinn af bensíngjöfinni áður
en stórslys yrði að veruleika.
Fundað verður um arftaka Kyoto-
samkomulagsins í Kaupmanna-
höfn í desember. - bj
Ís mögulega horfinn 2030:
Hlýnar hraðast
á norðurslóðum
Kannabisræktun í Árbænum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lagði hald á 440 kannabisplöntur,
sem höfðu verið í ræktun í íbúð í
Árbænum, seinnipart dags á mið-
vikudag. Tveir karlmenn á þrítugsaldri
tengjast málinu, en það telst upplýst,
samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
LÖGREGLUMÁL
LÖGREGLUMÁL Þremur skotvopn-
um var stolið úr húsi í Grafar-
holti í fyrradag. Auk skotvopn-
anna höfðu þjófarnir á brott með
sér ýmsa aðra muni.
Síðdegis í fyrradag handtók
lögreglan svo mann og konu,
bæði íslensk, sem grunuð voru
um aðild að málinu. Yfirheyrslur
stóðu í gær og taka átti ákvörðun
um hvort krafist yrði gæsluvarð-
halds að þeim loknum.
Meðal þess sem húseigendur
söknuðu eftir innbrotið, auk skot-
vopnanna, voru skartgripir. Lög-
reglan hefur fundið hluta þýfis-
ins og rannsókn miðar vel. - jss
Innbrot í Grafarholtshverfi:
Stálu þremur
skotvopnum
BAN KI-MOON
EFNAHAGSMÁL Ávöxtun íslensku
lífeyrissjóðanna var neikvæð um
21,78 prósent á síðasta ári, þegar
tekið hefur verið tillit til verð-
bólgu. Þetta kemur fram á vef
Fjármálaeftirlitsins (FME).
Neikvæða ávöxtun sjóðanna
má rekja til erfiðleika á innlend-
um og erlendum fjármálamörk-
uðum, að því er segir á vef FME.
Árið 2007 var ávöxtunin
jákvæð um 0,5 prósent, og árið
2006 var hún 10,2 prósent.
Heildareignir lífeyrissjóðanna
voru tæplega 1.600 milljarða
króna virði í lok síðasta árs, sam-
anborið við um 1.700 milljarða
króna í árslok 2007. - bj
Staða lífeyrissjóðanna erfið:
Raunávöxtun
neikvæð í fyrra
DÓMSMÁL Tveir menn af erlend-
um uppruna voru í gær dæmd-
ir í þrjátíu og sextíu daga skil-
orðsbundið fangelsi til þriggja
ára fyrir að stela meðal ann-
ars barnavagni að andvirði 129
þúsund krónur. Mennirnir stálu
vagninum úr versluninni Fífu
en þeir gengu út með vagninn og
barnaleggings án þess að greiða
fyrir vörurnar í maí síðastliðn-
um.
Þá stálu mennirnir jakka úr
verslun 66°norður auk þess sem
þeir stálu heimabíókerfi í verslun
Hagkaupa í desember á síðasta
ári. Mennirnir játuðu brot sín
skýlaust. -kh
Tveir menn dæmdir:
Stálu leggings
og barnavagni
DÓMSMÁL Ákæra verður þingfest
á hendur kvótalausa sjómannin-
um Ásmundi Jóhannssyni í næstu
viku fyrir ólöglegar veiðar. „Loks-
ins,“ segir Ásmundur, sem fagnar
ákærunni.
Ásmundur hefur staðið í stappi
við yfirvöld undanfarið ár, síðan
hann ákvað að bjóða þeim byrg-
inn og fara kvótalaus á veiðar.
Hann var í kjölfarið sviptur veiði-
leyfi, handtekinn og yfirheyrður
auk þess sem bátur hans var inn-
siglaður.
Báturinn hefur nú legið innsigl-
aður við festar í rúmt ár án þess
að ákæra hafi litið dagsins ljós og
hefur Ásmundur leitað til umboðs-
manns Alþingis vegna þess.
Umboðsmaður sendi lögreglustjóra-
embættinu á Suðurnesjum í kjölfar-
ið fyrirspurn um framgang máls-
ins og eftir hvaða lögum var farið
þegar báturinn var innsiglaður.
Ásmundur verður ákærður fyrir
að veiða án kvóta og veiðileyfis, og
jafnframt fyrir að hafa óhlýðnast
fyrirmælum Landhelgisgæslunnar
um að snúa til hafnar.
„Það er bara gott um þetta
að segja,“ segir Ásmundur um
ákæruna. Hann á allt eins von
á því að verða sakfelldur fyrir
hin meintu brot, en hefur ákveð-
ið að senda málið í kjölfarið til
mannréttindadómstóls Evrópu,
sem hefur áður kveðið upp þann
úrskurð að kvótakerfið íslenska
brjóti gegn mannréttindum. - sh
Ásmundur Jóhannesson fagnar því að vera loksins dreginn fyrir dóm:
Kvótalausi sjómaðurinn hefur verið ákærður
KVÓTALAUS Ásmundur segist ekki hafa
brotið nokkurn skapaðan hlut af sér,
það sé kvótakerfið sem sé ólöglegt.
MYND / VÍKURFRÉTTIR
SAMGÖNGUR Aksturstími milli
Reykjavíkur og Ísafjarðar að
vetri til styttist um eina og hálfa
klukkustund með nýrri 130 metra
brú yfir Mjóafjörð og tengdum
framkvæmdum.
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra opnaði fyrir umferð um
brúna í gær. Hún tengist nýjum
vegarkafla frá Eyri í Ísafirði að
Hörtná í Mjóafirði. Fjölmennt
var við opnunina enda langþráð
samgöngubót Vestfirðinga orðin
að veruleika.
Talsvert hefur þurft að bíða
eftir samgöngubótinni, en brúin
átti að vera tilbúin í byrjun nóv-
ember í fyrra. - bj
Brú yfir Mjóafjörð opnuð:
Aksturstími
styttist mikið
OPNAÐ Kristján Möller samgönguráð-
herra opnaði brú yfir Mjóafjörð í gær.
ORKUMÁL Greiðslur Landsvirkjun-
ar til Skeiða- og Gnúpverjahrepps
runnu ekki til sveitarstjórnar-
manna heldur til sveitarfélagsins.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
Gunnars Arnar Marteinssonar
sveitarstjóra.
Þar segir enn fremur að sam-
kvæmt samkomulagi við Lands-
virkjun hafi fyrirtækið greitt
allan útlagðan kostnað sveit-
arfélagsins vegna breytinga á
aðalskipulagi. Meðal annars
hafi verið greitt fyrir aukafundi
sveitastjórnarmanna. Fráleitt
sé að ýja að því að Landsvirkj-
un hafi borið fé í sveitastjórnar-
mennina. - bj
Greiðslur Landsvirkjunar:
Runnu ekki til
einstaklinga
SPURNING DAGSINS