Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er föstudagurinn 4. sept- ember 2009, 247. dagur ársins. 6.19 13.27 20.32 5.59 13.12 20.22 Hinn 23. ágúst árið 1973 not-aði Jan Erik Olsson bæjar- leyfi sitt frá fangelsi til að ræna Kreditbankann í Stokkhólmi. Lög- regla var þegar kölluð til, Jan Erik varð stressaður, greip til vopna og særði einn lögreglumann skot- sári. Eftir það sá hann í hendi sér að tilraun til að verða sér úti um mikið fé á skömmum tíma var að fara út um þúfur og hann var í tómu veseni. Til að vinna tíma og redda sér úr klípunni brá þessi misheppnaði bankaræningi á það ráð að taka fjóra gísla úr hópi við- skiptavina bankans og gerði í kjöl- farið alls kyns kröfur um aðföng og peninga. FÉLAGI bankaræningjans slóst nú í hópinn og þá voru þeir orðn- ir tveir. Þrátt fyrir að báðir þess- ir dæmdu ofbeldismenn og ræn- ingjar hafi haldið gíslum sínum föngnum með hótunum um byssu- kúlu í hausinn, virðast þeir hafa verið elskulegir með afbrigðum. Reyndar svo notalegir og trúverð- ugir að gíslarnir sögðust hafa fundið til öryggis í návist þeirra en hafi hins vegar óttast aðgerðir lögreglu. Á þeim sex dögum sem fórnar lömbunum var haldið föngn- um sannfærðust þau um að vopn- aðir krimmarnir væru aðeins sak- lausir leiksoppar yfirvalda. Hinir raunverulegu illvirkjar væru björgunarmennirnir. AÐ lokum fór allt reyndar vel, enginn dó og réttað var yfir hinum seku. Lífseiga frægð sína hefur þetta rán hlotið vegna sálfræði- kenningar sem varð til í kjölfarið um viðbrögð gíslanna, sem hlaut nafnið Stokkhólmsheilkennið. Ein- kenni þess er einmitt samúð og velvilji fórnarlamba í garð ofbeld- ismanna þeirra og jafnvel andúð gagnvart þeim sem stöðva viðvar- andi valdbeitingu. Ástæður þess- ara tilfinninga eru einfaldlega sagðar aðferð til að þrauka óþol- andi aðstæður. Ást á gerendunum getur varað lengi eftir að ofbeld- inu lýkur. GÓÐIR hálsar, samkvæmt frétt- um nýliðinnar viku mælist Sjálf- stæðisflokkurinn nú stærsti stjórn- málaflokkur Íslands. Sá sami flokkur og stýrði landinu undan- farin átján ár og átti drýgstan þátt í að koma okkur í þær efnahags- legu ógöngur sem við nú erum stödd í. Þrátt fyrir að uppkomn- um Íslendingum muni ekki end- ast ævin til að greiða fyrir tjónið, telur næstum þriðjungur kjós- enda flokkinn traustsins verðan. Kannski er Stokkhólmsheil kennið útbreiddara mein en nokkur gat ímyndað sér. Ást á sekum Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is w w w . b a d h u s i d . i s S í m i 5 1 5 1 9 0 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.