Fréttablaðið - 04.09.2009, Page 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er föstudagurinn 4. sept-
ember 2009, 247. dagur ársins.
6.19 13.27 20.32
5.59 13.12 20.22
Hinn 23. ágúst árið 1973 not-aði Jan Erik Olsson bæjar-
leyfi sitt frá fangelsi til að ræna
Kreditbankann í Stokkhólmi. Lög-
regla var þegar kölluð til, Jan Erik
varð stressaður, greip til vopna og
særði einn lögreglumann skot-
sári. Eftir það sá hann í hendi sér
að tilraun til að verða sér úti um
mikið fé á skömmum tíma var
að fara út um þúfur og hann var
í tómu veseni. Til að vinna tíma
og redda sér úr klípunni brá þessi
misheppnaði bankaræningi á það
ráð að taka fjóra gísla úr hópi við-
skiptavina bankans og gerði í kjöl-
farið alls kyns kröfur um aðföng
og peninga.
FÉLAGI bankaræningjans slóst
nú í hópinn og þá voru þeir orðn-
ir tveir. Þrátt fyrir að báðir þess-
ir dæmdu ofbeldismenn og ræn-
ingjar hafi haldið gíslum sínum
föngnum með hótunum um byssu-
kúlu í hausinn, virðast þeir hafa
verið elskulegir með afbrigðum.
Reyndar svo notalegir og trúverð-
ugir að gíslarnir sögðust hafa
fundið til öryggis í návist þeirra
en hafi hins vegar óttast aðgerðir
lögreglu. Á þeim sex dögum sem
fórnar lömbunum var haldið föngn-
um sannfærðust þau um að vopn-
aðir krimmarnir væru aðeins sak-
lausir leiksoppar yfirvalda. Hinir
raunverulegu illvirkjar væru
björgunarmennirnir.
AÐ lokum fór allt reyndar vel,
enginn dó og réttað var yfir hinum
seku. Lífseiga frægð sína hefur
þetta rán hlotið vegna sálfræði-
kenningar sem varð til í kjölfarið
um viðbrögð gíslanna, sem hlaut
nafnið Stokkhólmsheilkennið. Ein-
kenni þess er einmitt samúð og
velvilji fórnarlamba í garð ofbeld-
ismanna þeirra og jafnvel andúð
gagnvart þeim sem stöðva viðvar-
andi valdbeitingu. Ástæður þess-
ara tilfinninga eru einfaldlega
sagðar aðferð til að þrauka óþol-
andi aðstæður. Ást á gerendunum
getur varað lengi eftir að ofbeld-
inu lýkur.
GÓÐIR hálsar, samkvæmt frétt-
um nýliðinnar viku mælist Sjálf-
stæðisflokkurinn nú stærsti stjórn-
málaflokkur Íslands. Sá sami
flokkur og stýrði landinu undan-
farin átján ár og átti drýgstan þátt
í að koma okkur í þær efnahags-
legu ógöngur sem við nú erum
stödd í. Þrátt fyrir að uppkomn-
um Íslendingum muni ekki end-
ast ævin til að greiða fyrir tjónið,
telur næstum þriðjungur kjós-
enda flokkinn traustsins verðan.
Kannski er Stokkhólmsheil kennið
útbreiddara mein en nokkur gat
ímyndað sér.
Ást á sekum
Opið 07 til 01
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
w w w . b a d h u s i d . i s
S í m i 5 1 5 1 9 0 0