Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 4
4 4. september 2009 FÖSTUDAGUR
SKEMMTILEGT UPPBOÐ
Í GALLERÍ BORG
Sunnudaginn 6. september kl 20:30
Eyjólfur Kristjánsson tekur lagið.
Boðið verður upp á veitingar.
GALLERÍ BORG - SKIPHOLTI 35 - SÍMAR 511 7010 - 847 1600
UPPBOÐSVERKIN VERÐA SÝND Í GALLERÍ BORG SKIPHOLTI 35
Í dag föstudag, laugardag og sunnudag frá kl 11 til 17 alla dagana.
LÖGREGLUMÁL Tvö þjófagengi sem
sitja nú í gæsluvarðhaldi eru talin
hafa stolið munum sem eru að
verðmæti milljónir króna. Geng-
in eru grunuð um að hafa brotist
inn í fjölmargar íbúðir, verslan-
ir, fyrirtæki og bíla. Þýfið sem
fundist hefur samanstendur eink-
um af miklu magni skartgripa,
myndavéla, tölva og fleiri hluta
sem aðvelt er að taka með sér og
koma í verð.
Þrír karlmenn úr fyrra geng-
inu sem handtekið var og situr
nú í gæslu og einangrun voru
handteknir þar sem þeir voru að
brjótast inn í íbúð að kvöldi mið-
vikudagsins 12. ágúst. Skömmu
síðar var fjórði maðurinn hand-
tekinn þar sem hann var á vappi
með sambýliskonu sinni við versl-
un í Reykjavík. Hún reyndist vera
með skartgripi í fórum sínum sem
taldir eru vera þýfi. Maðurinn
situr í gæslu og einangrun ásamt
hinum þremur. Varðhaldið rennur
út í dag. Mennirnir sem um ræðir
eru allir á þrítugsaldri.
Lögreglan hefur lagt hald á
mik ið magn
þýfis í tengslum
við rannsókn
þeirra mála
sem mennirnir
eru taldir vera
viðriðnir. Stór-
um hluta þess
hefu r ver ið
komið í hend-
ur réttra eig-
enda að sögn
Ómars Smára
Ármannssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns í lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Þá hefur hópur
fólks verið yfirheyrður vegna
rannsóknar lögreglu.
Aðfaranótt síðastliðins þriðju-
dags var svo síðara þjófagengið
handtekið eftir að það hafði brot-
ist inn í verslun í Árbænum. Í bíl
mannanna fannst stór svartur
ruslapoki með miklu magni af síg-
arettum sem þeir höfðu haft með
sér úr versluninni. Þeir sitja nú
í gæsluvarðhaldi sem rennur út í
dag. Í fyrradag voru svo tveir til
viðbótar handteknir. Þeir sættu
yfirheyrslum hjá lögreglu en var
sleppt að þeim loknum.
Eftir handtökur sígarettuþjóf-
anna, sem játuðu sök, hóf lög-
regla rannsókn á þeirra högum af
fullum krafti. Meðal annars var
leitað heima hjá þeim. Þar fannst
mikið magn muna sem taldir eru
vera þýfi, einkum skartgripir,
tölvur og myndavélar eins og í
fyrra tilvikinu. Búið er að koma
hluta þýfisins í réttar hendur, að
sögn Árna Þórs Sigmundssonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns, sem
segir lögreglu hafa frumkvæði
að því að hringja í fólk sem talið
er eiga munina. Hann segir leika
rökstuddan grun á að þeir sem
inni sitja hafi, auk sígarettu-
þjófnaðarins, brotist inn í íbúðir
og verslanir. Ekki eru talin vera
tengsl milli hópanna tveggja, sem
eru af erlendum uppruna.
jss@frettabladid.is
Tvö þjófagengi með
þýfi fyrir milljónir
Tvö þjófagengi sem sitja nú í gæsluvarðhaldi eru talin hafa stolið munum fyrir
milljónir í fjölmörgum innbrotum í íbúðarhús, fyrirtæki og verslanir. Einkum
er um að ræða skartgripi, myndavélar og tölvur, sem auðvelt er að koma í verð.
SKARTGRIPIR Forkunnarfallegt hálsmen eftir listamanninn Mugg er meðal þeirra
muna sem lögregla hefur lagt hald á í húsleit vegna fjölmargra innbrota. Á myndinni
er menið góða svo og fleiri skartgripir í vörslu lögreglu, sem taldir eru vera þýfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓMAR SMÁRI
ÁRMANNSSON
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
33°
18°
18°
21°
15°
19°
18°
20°
17°
17°
27°
20°
27°
32°
14°
21°
31°
18°
12
10
10
12
12
9
10
10
10
10
8
5
6
5
3
3
2
2
2
3
10
3
12 10
10
11
10
Á MORGUN
5-13 m/s, stífastur með
suðurströndinni.
SUNNUDAGUR
3-10 m/s stífastur
suðvestan til
12 10
12
1412
VÆTUSAMT UM
HELGINA
Á morgun verð-
ur úrkomusamt á
sunnanverðu landinu
og enn fremur verður
einhver úrkoma víðar,
einkum með strönd-
um. Nokkuð dregur úr
úrkomu þegar líður á
síðdegið og kvöldið.
Á sunnudag, nálægt
hádegi gengur svo
annað úrkomuloft inn
á landið og má búast
við rigningu, einkum
sunnan og vestan til
en víðar um kvöldið.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
EFNAHAGSMÁL Embættismenn úr þrem-
ur ráðuneytum upplýstu í gær nefnd-
armenn í fjárlaganefnd Alþingis um
fyrstu viðbrögð Breta og Hollendinga
við afgreiðslu Alþingis á ríkisábyrgð
vegna Icesave-samkomulagsins.
Formleg viðbrögð ríkjanna tveggja
hafa enn ekki borist, en þeim hefur
verið kynnt niðurstaða Alþingis, segir
Björn Valur Gíslason, varaformaður
fjárlaganefndar.
Embættismenn frá Íslandi, Hollandi
og Bretlandi hittust á miðvikudag á
óformlegum fundi í Haag í Hollandi.
Þar var upplýst um ákvörðun Alþing-
is. Í tilkynningu frá forsætisráðu-
neytinu segir að annar fundur verði
haldinn í næstu viku til að reyna að ná
„sameiginlegum skilningi“ sem fyrst.
„Ég geri ráð fyrir formlegum við-
brögðum fyrr en síðar,“ segir Björn.
Ekki sé von til þess að þau berist fyrir
helgi, en vonandi komi þau í næstu
viku, enda brýnir hagsmunir Íslands
að ljúka málinu.
Höskuldur Þórhallsson, fulltrúi
Framsóknarflokks í fjárlaganefnd,
segir ekkert nýtt hafa komið fram á
fundi fjárlaganefndar.
„Ég tel því miður yfirgnæfandi
líkur á að Bretar og Hollendingar
muni fallast á þetta,“ segir Höskuld-
ur. Lítill áhugi virðist vera á því hjá
stjórnvöldum í löndunum tveimur að
draga Icesave-málið aftur upp á yfir-
borðið. - bj
Fjárlaganefnd ræddi kynningu á afgreiðslu Alþingis á Icesave-samkomulaginu:
Óvíst hvenær formleg viðbrögð berast
KYNNING Embættismenn úr forsætis-, fjármála- og utanríkisráðuneyti
komu á fund fjárlaganefndar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NOREGUR, AP Heilbrigðisyfirvöld
í Noregi hafa staðfest að svína-
flensa hafi dregið danskan vöru-
bílstjóra þar í landi til dauða.
Þetta er fyrsta staðfesta dauðs-
fallið af völdum svínaflensu í
Noregi.
Maðurinn var á miðjum aldri
og starfaði í Noregi. Hann lést úr
lungnabólgu í síðustu viku sem
hann fékk í framhaldi af svína-
flensu. Að sögn danskra heil-
brigðisyfirvalda er þetta líka
fyrsta staðfesta dæmið um að
danskur ríkisborgari hafi látist
vegna svínaflensu. - bs
Dó af völdum svínaflensu:
Fyrsta dauðs-
fallið í Noregi
BRUSSEL, AP Embættismenn á
vegum framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins leggja til að
aðildarríkin taki við fleiri flótta-
mönnum frá löndum, sem búið
hafa við stríðsástand eða fátækt.
Jacques Barrot, framkvæmda-
stjóri dómsmála og innanríkis-
mála, segir að Evrópusambandið
eigi að bregðast betur við beiðni
Sameinuðu þjóðanna um að veita
hæli flóttamönnum, sem eiga
ekki í önnur hús að venda.
Samkvæmt Flóttamannastofn-
un Sameinuðu þjóðanna eru um
200 þúsund manns í brýnni þörf
fyrir dvalarstað. - gb
Framkvæmdastjórn ESB:
Vill að fleirum
verði veitt hæli
FLÓTTAFÓLK Hópur flóttamanna frá Írak
kom til Þýskalands í vor. NORDICPHOTOS/AFP
Mánuður fyrir áfengispela
Karlmaður hefur verið dæmdur í
þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi
fyrir að stela áfengispela að verðmæti
2.000 krónur úr Vínbúðinni.
DÓMSMÁL
Lón Landsvirkjunar fyllast
Veðrátta í sumar hefur verið óhag-
stæð fyrir vatnssöfnun í miðlunarlón
Landsvirkjunar, en lónin eru nú loks
að fyllast. Reiknað er með því að
Hálslón við Kárahnjúkavirkjun fyllist
um helgina, og vatn muni renna á
yfirfalli um fossinn Hverfanda, niður
farveg Jökulsár á Dal.
ORKUMÁL
Grunaður yfirheyrður
Karlmaður sætti í gærdag yfirheyrsl-
um hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu vegna brunans í Laugar-
ásvídeói um síðustu helgi. Honum var
sleppt að því búnu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
INDLAND, AP Y.S.R. Reddy, ráð-
herra yfir Andra Pradesh-héraði á
Indlandi, fórst í þyrluslysi ásamt
fjórum öðrum á miðvikudag. Flak
þyrlunnar og lík þeirra sem voru
innanborðs fundust í gær.
Þyrlan var á flugi í miklu
úrhelli yfir frumskógi í suður-
hluta Indlands á miðvikudags-
morgun, þegar samband hennar
við flugumferðarstjórn slitnaði.
Það tók leitarmenn sólarhring að
höggva sig í gegnum frumskóginn
þar til þeir komust að þyrluflak-
inu og fundu þar ráðherrann lát-
inn, ásamt fjórum öðrum. - bs
Indverskur ráðherra:
Fórst í þyrluslysi
GENGIÐ 03.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,6865
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,48 127,08
207,1 208,1
180,76 181,78
24,281 24,423
20,952 21,076
17,549 17,651
1,3681 1,3761
197,85 199,03
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR