Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 46
34 4. september 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. sæti, 6. járnstein, 8. liðamót, 9. iðn, 11. tímaeining, 12. rabb, 14. gimsteinn, 16. kallorð, 17. skel, 18. kærleikur, 20. umhverfis, 21. eignarfornafn. LÓÐRÉTT 1. stagl, 3. eftir hádegi, 4. snautaðu, 5. sérstaklega, 7. mjólkur- sykur, 10. æxlunarkorn, 13. herma, 15. lappi, 16. rámur, 19. tveir eins. LAUSN VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8 1 Á þriðja hundrað. 2 15.480. 3 Júlíus Kemp. LÁRÉTT: 2. sess, 6. al, 8. hné, 9. fag, 11. ár, 12. skraf, 14. tópas, 16. hó, 17. aða, 18. ást, 20. um, 21. sitt. LÓÐRÉTT: 1. tafs, 3. eh, 4. snáfaðu, 5. sér, 7. laktósi, 10. gró, 13. apa, 15. sami, 16. hás, 19. tt. „Ég fæ mér alltaf lýsi og AB- mjólk. Svo fæ ég mér kaffi latte og hugsanlega brauðsneið með. Þetta er mikilvægasta máltíð dagsins og ég gef mér mikinn tíma í hana.“ Hilmar Oddsson leikstjóri. „Það er búið að sækja um einkaleyfi fyrir þessu í öllum helstu ríkjum heims,“ segir Egill Fannar Reyn- isson. Egill og bróðir hans Guðmundur Gauti, eigend- ur Betra baks, eru hluthafar í fyrirtæki sem fram- leiðir nýtísku karlmannsnærbuxur, Frigo, þar sem kynfærin eru geymd í sérhönnuðum poka sem dreg- ur úr rakamyndun. Risastór auglýsingaherferð fyrir nærbuxurnar hefst í Bandaríkjunum fyrir jól með ruðningskapp- anum Tom Brady og hafnaboltamanninum Alex Rodrigues, fyrrverandi kærasta Madonnu, í farar- broddi. Buxurnar voru fyrst kynntar á söluráðstefnu í London þar sem Edelman, sem er eitt stærsta aug- lýsingafyrirtæki heims, var fengið um borð. „Þeir bara féllu fyrir þessu,“ segir Egill. „Einkaleyfið er þessi poki sem er inni í nærbuxunum sem held- ur pungnum frá líkamanum þannig að það er lægra hitastig í honum. Þetta hjálpar líka vestræna heimin- um í sáðfrumu-framleiðslunni og er þegar orðið mjög vinsælt meðal íþróttamanna.“ Ítalska knattspyrnulið- ið Inter er til að mynda farið að nota buxurnar eftir að fyrrverandi leikmaður liðsins, Zlatan Ibrahimov- ic, reið á vaðið og byrjaði að spila í þeim. Egill og Guðmundur keyptu tíu prósenta hlut í fyr- irtækinu fyrir tveimur árum en það var Svíinn Peter Soderstrom sem átti hugmyndina. „Þetta var mjög stór fjárfesting og áhætta á sínum tíma en við höfð- um ofsalega trú á þessu. Það kom á daginn og þetta er að slá í gegn erlendis. Puma og stórir aðilar hafa sýnt þessu mikinn áhuga og vilja gera samning um að setja þetta í íþróttabuxur og annað,“ segir Egill. „Það er meira að segja búið að bjóða í hlutinn okkar, helmingi meira en við lögðum í þetta. Okkur hefur verið ráðlagt að liggja aðeins á þessu.“ - fb Eiga hlut í nýtísku nærbuxum BRÆÐUR Í ÚTRÁS Bræðurnir Egill Fannar og Guðmundur Gauti Reynissynir framleiða nýtísku karlmannsnærbuxur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta er alvöru „sit-com“, vænt- anlega verður myndverið byggt úti á Korputorgi þar sem Fanga- vaktin var tekin upp. Síðan verða tvö hundruð áhorfendur í sal, þetta verður tekið upp fyrir „live studio audience“,“ segir Bjarni Haukur Þórsson leikstjóri. Bjarni mun leik- stýra sjónvarpsþáttaseríunni Hjá Marteini sem áætlað er að fari í loft- ið fyrir jól á RÚV. Tökur hefjast í lok þessa mánaðar. Svo skemmtilega vill til að aðal- hlutverkið verður í höndum Jóhann- esar Hauks Jóhannessonar sem frumsýndi nýja útgáfu af Hellis- búanum í Íslensku óperunni í gær- kvöldi, sama hlutverk og Bjarni Haukur lék með eftirminnilegum hætti fyrir nokkrum árum. Bjarni vill ekki gera mikið úr þessari sögulegu staðreynd en hann hefur augljóslega mikið álit á Jóhannesi. Jóhannes virðist hafa úr nægu að moða þessa dagana. „Nýr Laddi? Nei, hann er allt öðruvísi, hann hefur þetta kæruleysislega útlit, þetta er alveg gæinn sem gæti búið við hliðina á manni. Fyrst og fremst er hann bara góður leikari og smell- passar í hlutverkið.“ Sjónvarpsþættirnir fjalla um Martein sem er ósköp venjulegur meðaljón og er nýbyrjaður að búa með sinni spúsu en Edda Björg Eyj- ólfsdóttir mun leika hana. „Þetta er um samskipti þeirra og þeirra árekstra sem oft vilja verða þegar fólk byrjar að búa saman.“ Til að gera hlutina ögn flóknari þá sitja skötuhjúin uppi með þriðja hjólið í sambandinu, Lárus Pál, sem álítur sig guðsgjöf til íslenskrar leiklist- ar og er æskuvinur Marteins. „En hann er sennilega versti leikari sem sögur fara af, hann er meðal ann- ars að leika í neðanjarðarútgáfu af Hamlet og verður ástfanginn af leikkonunni sem leikur móður hans,“ útskýrir Bjarni en Kjartan Guðjónsson mun leika Lárus Pál. Hjá Marteini er byggt á sjónvarps- þáttum sem Bjarni leikstýrði fyrir norska sjónvarpið. Og leikstjórinn hefur gengið með það lengi í mag- anum að koma þeim hingað til lands. „Þetta er í fyrsta skipti sem notast er við lifandi áhorfendur í íslensku sjónvarpi og þess vegna hafa menn verið svolítið tregir til. Það tók mig allavega tvö ár að sannfæra fólk um að þetta væri raunhæft.“ freyrgigja@frettabladid.is BJARNI HAUKUR: TEKUR UPP NÝJA ÞÆTTI MEÐ ÁHORFENDUR Í SAL Hellisbúar gera grínþætti HELLISBÚAR SAMEINAST Bjarni Haukur Þórsson leikstýrir Jóhannesi Hauki Jóhannessyni í gamanþáttunum Hjá Marteini. Bjarni sló í gegn í hlutverki Hellisbúans um árið og í gærkvöld var frumsýnd ný leikgerð þar sem Jóhannes Haukur fetar í fótspor hans. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R „Þetta gerðist í vor,“ segir Egill Örn Rafnsson trommuleikari sem er hættur í hljómsveitinni Sign. Egill kýs að tjá sig ekki um brotthvarfið sem kom í kjölfar þess að Sign hafnaði fimm platna samningi við þýsku útgáfuna JKP. Ragn- ar Sólberg, bróðir Egils, gat ekki skrifað undir samninginn af ótta við að frelsi hans sem tónlistar- maður myndi skerðast. Arnar Grétarsson, gítarleik- ari Sign, segir að samningurinn sem var í boði hafi verið „ágætlega góður“. Heim- ildir Fréttablaðsins herma að hljómsveitin hefði verið vel sett fjárhagslega næstu ár, hefði hún skrifað undir. „Það voru tvær útgáfur að berjast um okkur,“ segir Arnar. „Það endaði með því að eftir að Ragnar hafði hugs- að málið lengi þá komst hann að því að hann gæti ekki afsalað sér réttindum sínum.“ Arnar tekur sem dæmi að Ragnar hefði væntanlega ekki getað tekið að sér að syngja í auglýsingu Vodafone í Þýskalandi, sem er nú sýnd þar í landi. Sign hefur verið ein duglegasta hljómsveit landsins síðustu ár og sent frá sér fjórar plötur. Hljóm- sveitin hefur verið ötul við spila- mennsku, bæði heima og erlendis, og vakið talsverða athygli. JKP- útgáfan er í eigu þýsku hljómsveit- arinnar Die Toten Hosen, sem er gríðarlega vinsæl í heimalandi sínu. „Það eru góðar fréttir í þessu líka,“ bætir Arnar við. „Við erum búnir að ákveða að gefa út íslenska plötu á næsta ári. Þungarokk á íslensku. Sign á íslensku aftur – eins og í gamla daga, fyrir mína tíð í hljómsveit- inni.“ - afb Sign hafnaði stórum samningi í Þýskalandi HÆTTUR Egill Rafnsson sagði skilið við Sign eftir að bróðir hans vildi ekki gera samning við þýskt útgáfufyrirtæki. ENGAR KVAÐIR Ragnar Sólberg vildi ekki skrifa undir samning sem skerti frelsi hans sem tónlistarmaður. Diskó Friskó Það eru ekki bara indverskir kvik- myndagerðarmenn við upptökur hér á landi sem eru ánægðir með matinn á Austur-Indía- félaginu. Íbúar við Hverfisgötu hafa tekið eftir því að bifreið forseta Íslands er oft lagt fyrir utan veitingastaðinn, síðast á þriðjudagskvöld. Forseta- hjónin Dorrit Moussaieff og Ólafur Ragnar Grímsson eru alltaf jafn ánægð með matinn þar. Rithöfundurinn Steinar Bragi sló í gegn með bók sinni, Konur, á síðasta ári. Gagnrýnendur kepptust við að hlaða hana lofi og bókin seldist vel í kjölfarið. Ný bók Steinars Braga er væntanleg hjá Forlaginu. Ber hún heitið Himinninn yfir Þingvöllum og ku sverja sig í ætt við síðasta verk hans. Forlagsmenn hafa ákveðið að meðlimir í kiljuklúbbnum Uglunni fái fyrstir að komast yfir eintak af bókinni. Þeir geta lesið bókina í þægilegu kiljuforminu á meðan aðrir lestrarhestar þurfa að bíða fram að jólavertíð til að næla sér í innbundið eintak. Meira af Forlaginu. Þar á bænum er ekki krepputal og í næstu viku mun Jóhann Páll Valdimars- son útgefandi vígja nýtt 3.000 fermetra húsnæði fyrirtækisins úti á Fiskislóð. Þar verður lager JPV og Eddu loks sameinaður og auk þess verður verslun útgáfunnar flutt þang- að. Skrifstofur fyrirtæk- isins verða þó áfram á Bræðraborgarstíg enda ómögulegt að láta kan- ónur í rithöfundasétt flækjast út á Granda þegar þær kíkja á útgefandann í kaffi. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.