Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 8
8 4. september 2009 FÖSTUDAGUR
1. Hve mörg fyrirtæki hefur
ríkisskattstjóri sektað vegna
vanskila á ársreikningum 2006?
2. Hversu margir eru atvinnu-
lausir?
3. Hver leikstýrði Blossa/810551
SVÖR Á SÍÐU 34
LÖGREGLUMÁL Framkvæmdastjór-
ar flokkanna, og ef til vill fleiri,
kunna að bera refsiábyrgð á meint-
um brotum á lögum um fjármál
stjórnmálaflokka.
Í lögunum er ekki skilgreint
nákvæmlega hver ber ábyrgð á
því þegar stjórnmálaflokkur tekur
við ólöglegum styrkjum. Hluti af
rannsókn efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra snýst um að
komast að þessu. Greint var frá
rannsókn deildarinnar í blaðinu á
miðvikudag.
Framsókn, Samfylking, Sjálf-
stæðisflokkur og VG þáðu styrki
frá Íslandspósti, opinberu fyrir-
tæki, fyrir alþingiskosningarnar
2007. Sjálfstæðisflokkurinn þáði
einnig styrki frá tveimur öðrum
slíkum fyrirtækjum.
„Framkvæmdastjórarnir kunna
að bera ábyrgðina, en það getur
komið til greina að undirmenn
geri það líka, ef þeir hafa komið að
þessu,“ segir Helgi Magnús Gunn-
arsson, saksóknari deildarinnar.
Þetta sé eitt helsta vafaatriðið í
málinu enda geta utanaðkomandi
einstaklingar greitt inn á reikn-
inga flokkanna, án þess að nokkur
veiti fénu formlega viðtöku. Helgi
telur að leita
megi svara við
þessari spurn-
ingu í reglum
félagaréttar og
almennum regl-
um refsiréttar,
um að hver
m að u r ber i
ábyrgð á eigin
gjörðum.
Í lögum um
fjármál stjórnmálasamtaka segir:
„Hver sem af ásetningi eða stór-
felldu gáleysi brýtur gegn ákvæð-
um laga þessara skal sæta fésekt-
um, en alvarleg brot geta varðað
fangelsi allt að sex árum.“ Þar
segir ekkert um smávægilegt
gáleysi eða vanþekkingu.
„Gáleysið þarf að vera stórfellt,
en þú getur ekki borið við þekk-
ingarleysi á lögum, frekar en ef
þú keyrir yfir á rauðu ljósi,“ segir
Helgi Magnús.
Spurður hvort þetta séu mild
viðurlög, í því ljósi að gáleysið þarf
að vera stórfellt, segir Helgi það
vissulega erfiðara að sanna ásetn-
ing eða stórfellt gáleysi, heldur en
„einfalt gáleysi“, en vill ekki leggja
mat á lögin. klemens@frettabladid.is
Ýmsir gætu borið ábyrgð á
móttöku opinberra styrkja
Í lögum um fjármál flokka er ekki skýrt kveðið á um hverjir innan flokkanna beri ábyrgð á lögbrotum.
Saksóknari efnahagsbrota segir að bæði framkvæmdastjórar og undirmenn þeirra kunni að bera ábyrgð.
Ríkisendurskoðun gerði ekki athugasemdir við að Íslandspóstur styrkti stjórnmálaflokkana á sínum tíma.
HELGI MAGNÚS
GUNNARSSON
„Ég taldi þetta mál upplýst. Það var
tekið við þessum styrk frá Íslands-
pósti. Þetta voru bara hrein mistök
og svo var það endurgreitt,“ segir
Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmda-
stjóri Framsóknar.
Styrkurinn hafi borist í gegnum
kjördæmasamband flokksins í
Reykjavík.
„Við fáum þessar upplýsingar
þegar samreikningarnir eru skoðaðir,“
segir hann. Spurður um hver beri ábyrgð á
þessu að hans mati, segist Sigfús ekki hafa
leitað sér upplýsinga um það.
„Við bíðum eftir að heyra frá
efnahagsbrotadeildinni. Þetta er
ekkert feimnismál fyrir okkur, held-
ur mistök,“ segir hann.
Spurður hví styrkurinn hafi ekki
verið endurgreiddur þegar listinn
var tekinn saman fyrir Ríkisendur-
skoðun, það er þegar sást að
Íslandspóstur var meðal þeirra sem
styrktu flokkinn.
„Þetta virðist hafa sloppið fram hjá.
Menn hafa ekki gert sér grein fyrir því að
þetta bryti í bága við lög,“ segir Sigfús Ingi.
HÉLT MÁLIÐ ÚR SÖGUNNI
SIGFÚS INGI
SIGFÚSSON
Andri Óttarsson, þáverandi framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, svaraði hvorki símtölum né
skilaboðum í gær.
Drífa Snædal, framkvæmdastýra VG, svaraði
heldur ekki.
ANDRI OG DRÍFA SVARA EKKI
Inntur viðbragða við rannsókn efnahagsbrotadeild-
ar, segir Skúli Helgason, þingmaður og þáverandi
framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, að hún sé
„fullkomlega eðlileg og ekkert nema gott um hana
að segja“.
Styrkurinn frá Íslandspósti hafi komið inn í
gegnum ráð Suðvesturkjördæmis: „Hann kom ekki
í ljós á skrifstofunni fyrr en við fengum listann,
flokkurinn þurfti að safna saman bókhaldi frá
öllum aðildarfélögum.“
Hann hafi farið fram á það við Ríkisendurskoðun
að hún færi yfir fyrirtækjalistann og léti hann vita
ef á honum væri nokkuð athugavert.
„Ég fékk engar athugasemdir til baka og taldi
okkur því vera í nokkuð góðum málum. Þannig
að þarna hefur bæði þeim og okkur yfirsést þessi
styrkur frá Íslandspósti,“ segir Skúli. Styrkurinn var
endurgreiddur þegar upp komst um mistökin opinberlega.
Spurður hví styrknum hafi ekki verið skilað strax og listinn var
gerður segist Skúli ekki þekkja þá sögu.
Sigrún Jónsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri, hafði ekki tekið
við starfinu þegar listinn, sem sendur var Ríkisendurskoðun, var
gerður en segir að það hafi verið „mistök að átta sig ekki á því um
leið og þetta kom fram á listanum“.
MISTÖK AÐ ÁTTA SIG EKKI Á ÞESSU
SKÚLI
HELGASON
SIGRÚN
JÓNSDÓTTIR
ANDRI
ÓTTARSSON
DRÍFA
SNÆDAL
KÍNA, AP Hundruð manna héldu út á
götur borgarinnar Urumqi í Xinj-
iang-héraði í gær til að krefjast
afsagnar leiðtoga Kommúnista-
flokksins í borginni. Fólkið veif-
aði kínverskum fánum og krafðist
þess að öryggismálum í borginni
yrði komið í samt lag.
Undanfarnar vikur hafa hundr-
uð íbúa borgarinnar orðið fyrir
dularfullum árásum þar sem
sprautum með nálum er beitt sem
vopni. Yfirvöld hafa staðfest að
487 manns hafi orðið fyrir slíkum
árásum. Rúmlega tuttugu manns
hafa verið handteknir.
Í borginni brutust út óeirðir í júlí
síðastliðnum sem kostuðu nærri
200 manns lífið. Þar áttust við Úíg-
úrar, sem hafa verið í meirihluta
í héraðinu frá fornu fari, og Han-
Kínverjar, sem hafa náð þar und-
irtökum síðustu áratugina.
Mótmælendurnir að þessu sinni
voru flestir Han-Kínverjar, en þeir
virtust gera sér far um að ýfa ekki
upp sárin frá átökunum í sumar.
Reiðinni beindu þeir að embættis-
mönnum, sem hefur ekki tekist að
sjá íbúunum fyrir nægri lögreglu-
vernd.
Lögregla reyndi að stöðva mót-
mælagönguna í gær, en mótmæl-
endur höfðu þó betur og fóru sínu
fram.
Sprautuárásirnar hafa vakið
óhug meðal almennings, ekki síst
vegna þess að HIV-smit er útbreitt
í héraðinu. - gb
Friðsamleg mótmæli í Xinjiang-héraði í kjölfar dularfullra sprautuárása:
Dularfullar árásir á fólk með sprautum
Í SAMRÆÐUM VIÐ ÓEIRÐALÖGREGLUNA
Íbúar í Urumqi eru ósáttir við ástandið
í borginni í kjölfar óeirðanna sem urðu
þar í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Ekkert í samningi styrkt-
arsjóðs hjartveikra barna við
Landsbankann kveður á um að til-
tekið lágmark hans skuli ávaxtað í
ríkisskuldabréfum. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í minnisblaði
frá Landsbankanum um málið, sem
sent var til fjölmiðla í gær.
Í minnisblaðinu kemur enn
fremur fram að fundur hafi verið
haldinn með forsvarsmönnum
sjóðsins í fyrravor þar sem ítar-
lega var farið yfir samsetningu
eignasafns hans. Engar athuga-
semdir hafi komið fram á fund-
inum.
Sjóðurinn stendur nú í mála-
ferlum gegn Landsbankanum og
sakar bankann um að hafa brotið
fjárstýringarsamninginn. Í samn-
ingnum hafi verið kveðið á um
að stærstur hluti sjóðsins skyldi
ávaxtaður í ríkisskuldabréfum,
skuldabréfum sveitarfélaga eða
bréfum sem tækju mið af sam-
bærilegri áhættu og ríkistryggð
bréf.
Fulltrúar Landsbankans hafa
hingað til ekki viljað tjá sig um
málið en sendu minnisblaðið á fjöl-
miðla í gær.
Jóhann Haukur Hafstein, lög-
maður styrktarsjóðsins, segir að
í sjálfu sér sé ekkert rangt sem
þar komi fram. Hins vegar verði
að athuga að fulltrúar sjóðsins hafi
aldrei verið upplýstir um hvað var
í peningamarkaðssjóðnum sem
fjárfest var í. Í ljós hafi komið að
það voru mestmegnis bréf í óstönd-
ugum fyrirtækjum. - sh
Landsbankinn svarar fyrir sig í deilunni við styrktarsjóð hjartveikra barna:
Sjóðstjórn gerði engar athugasemdir
SAMIÐ Björgólfur Guðmundsson
afhendir styrk við undirritun samnings-
ins við Neistann.
INDÓNESÍA, AP Jarðskjálftinn
sem varð í Indónesíu á miðviku-
dag kostaði að minnsta kosti 57
manns lífið, en tugir manna að
auki grófust undir húsarúst-
um eða skriðum og er óvíst um
björgun þeirra.
Skjálftinn mældist 7 stig og olli
mestu tjóni á vesturhluta eyjunn-
ar Jövu þar sem þúsundir bygg-
inga í þorpum og bæjum eyði-
lögðust eða skemmdust illa.
Þúsundir íbúa víða um land-
ið flúðu út á götur og þorðu ekki
aftur inn í hús.
Margir fórust vegna þess að
aurskriður féllu yfir íbúðarhús
og er óttast að tala látinna kunni
að hækka verulega. - gb
Jarðskjálftinn í Indónesíu:
Kostaði tugi
manna lífið
FLÚIÐ ÚT Á GÖTU Fólk þorði ekki inn í
húsin aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL Áhugahópur um
björgun Ingólfstorgs ætlar að
halda tónleika á torginu á laugar-
dag til að vekja athygli á málstað
sínum. Þetta var tilkynnt á blaða-
mannafundi í gær.
Mikil andstaða er við áform
um að reisa fimm hæða hótel við
Vallarstræti og flytja tvö hús yfir
strætið og inn á Ingólfstorg og
rífa Nasa.
Áhugahópurinn um Björgun
Ingólfstorgs fékk arkitektastof-
una Glámu Kím til að leggja mat
sitt á deiliskipulagstillöguna og
var skýrsla þeirra kynnt á fund-
inum. Frestur til að gera athuga-
semdir við skipulagið rennur út
11. september. Baráttutónleikarn-
ir verða klukkan tvö á laugardag-
inn. - bs
Vinir Ingólfstorgs og NASA:
Tónleikar til
bjargar torginu
BARÁTTUHÓPURINN Áhugahópurinn
fékk arkitektastofu til að gera úttekt á
deiliskipulagsstilögunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRAMKVÆMDIR Unnið er að stórum
og smáum hafnar- og sjóvarna-
framkvæmdum víða um land að
því er fram kemur á heimasíðu
Siglingastofnunar.
Vinna við ferjuhöfnina á
Brjánslæk er að hefjast. Þar
verður steypt þekja og byggt
masturshús. Á Patreksfirði er
verið að bæta löndunaraðstöðu
og viðlegu fiskiskipa. Á Þingeyri
er vinna við sjóvarnir að hefjast.
Áætlað er að um 2.000 rúmmetr-
ar af grjóti verði notaðir í verkið.
Þá er einnig unnið að áframhald-
andi gerð sjóvarna við Sigurðar-
búð á Ísafirði en þar þarf um 700
rúmmetra af grjóti í verkið. - th
Hafnarframkvæmdir:
Ferjuhöfnin á
Brjánslæk bætt
VEISTU SVARIÐ?