Fréttablaðið - 04.09.2009, Side 11
FÖSTUDAGUR 4. september 2009 11
SAMFÉLAGSMÁL Þrílit bindi sem
seld voru til styrktar átakinu
„Karlmenn og krabbamein“ seld-
ust upp og skiluðu þar með átak-
inu ríflega einni milljón króna.
Bindin sem voru til sölu í versl-
unum Herragarðsins voru blá,
hvít og fjólublá en þeim litum er
ætlað að minna á þrjú algengustu
krabbamein hjá körlum; í blöðru-
hálskirtli, lungum og ristli.
Einn af hverjum þremur karl-
mönnum greinist með krabba-
mein en rannsóknir hafa sýnt að
batahorfur þeirra sem greinast
hér á landi eru almennt góðar.
Mikilvægt sé að greina meinið
snemma og að karlar séu meðvit-
aðir um einkenni krabbameina,
er haft eftir Gústa Gústafssyni,
markaðs- og fjáröflunarstjóra hjá
Krabbameinsfélaginu í fréttatil-
kynningu. - sbt
Styrktarbindi seldust upp:
Krabbameins-
átaki afhent
rúm milljón
SÁTTIR Gústaf Gústafsson, markaðs- og
fjáröflunarstjóri hjá Krabbameinsfélag-
inu, Valtýr Helgi Diego og Vilhjálmur
Svan, verslunarstjóri Herragarðsins í
Kringlunni.
BERLÍN, AP Foreldrum í Þýskalandi
hefur verið gefið formlegt leyfi
til að skíra son sin Djehad, sem
er önnur útgáfa orðsins jihad, eða
heilagt stríð.
Hæstiréttur í Berlín stað-
festi úrskurð tveggja undirdóm-
stóla þess efnis að fordæmi séu
fyrir slíkri nafngift í arabalönd-
um. Nafninu hafði verið hafnað
af þýskum yfirvöldum sem töldu
það vera til þess fallið að skaða
drenginn vegna tenginga við
íslamska hryðjuverkastarfsemi.
Í þýskum lögum er kveðið á um
að ekki sé leyfilegt að skíra börn
nöfnum sem teljast þeim skaðleg.
- kg
Deilur um nafn í Þýskalandi:
Mega skíra son
sinn Djehad
Brunnu inni með kvóta
Súðvíkingar gátu ekki nýtt 150 þorsk-
ígildistonna byggðakvóta þar sem engin
útgerð uppfyllti skilyrði um vinnslu í
landi. Eitt af skilyrðunum til þess að
fá úthlutað byggðakvóta í Súðavík er
að aflinn sé unninn á staðnum. Engin
útgerð uppfyllti þetta skilyrði.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
FERÐAMÁL Gistinætur á hótelum
í júlí síðastliðnum voru 203.400
en 202.200 á sama tíma í fyrra.
Gistinóttum fjölgaði í öllum
landshlutum nema á samanlögðu
svæði Suðurnesja, Vesturlands og
Vestfjarða og á Suðurlandi, að því
er segir í tölum Hagstofunnar.
Hlutfallslega fjölgaði gistinótt-
um mest á Norðurlandi, úr 22.300
í 25.000, eða um tæp 12 prósent.
Gistinóttum á höfuðborgarsvæð-
inu fjölgaði úr 114.500 í 117.200.
Gistinætur á Austurlandi voru
svipaðar milli ára eða 12.700. Á
samanlögðu svæði Suðurnesja,
Vesturlands og Vestfjarða fækk-
aði gistinóttum úr 20.700 í 17.700
eða um 15 prósent. Á Suðurlandi
fækkaði gistinóttum um 4 pró-
sent. - kh
Aukning í ferðaþjónustu:
Gistinóttum
fjölgaði milli ára
UTANRÍKISMÁL Fiskveiðistjórnun-
arkerfi Færeyja, Grænlands og
Íslands verða „krufin“ á sérstök-
um fundi á Stykkishólmi næsta
sumar.
Ekkert er mikilvægara efna-
hagskerfum landanna þriggja en
sjávarútvegurinn. Því ber þess-
um löndum að auka samstarf sitt
á sviði sjávarútvegsmála og gera
nákvæma úttekt á stjórnun fisk-
veiða.
Svo segir í ályktun Vestnorræna
ráðsins, að loknum ársfundi þess
í síðustu viku, sem getið var um í
blaðinu á mánudag.
Það var, að tillögu Ólínu
Þorvarðardóttur, varaformanns
ráðsins, samþykkt að fiskveiði-
stjórnunarkerfi vestnorrænu ríkj-
anna verði meginmálefni næsta
fundar.
Ólína bendir á að í ríkjum ráðs-
ins séu mjög ólík fiskveiðistjórnun-
arkerfi og að í þeim telji margir að
sitt kerfi sé það besta í heimi. Einn-
ig heyrist þar gagnrýni á þau.
„Ætli menn að endurskoða
stjórnun veiðanna er mikilvægt að
þekkja í þaula valkostina,“ segir
Ólína í tilkynningunni.
Einnig skal hvetja ríkisstjórnir
landanna til að koma á samstarfi
um nemendaskipti milli mennta- og
fjölbrautaskóla landanna.
Þá var ákveðið að leggja til við
ríkisstjórnir ríkjanna að þær auki
samstarf um bók-, iðn- og starfs-
nám fyrir ófaglært fólk í löndunum
þremur. - kóþ
Varaformaður Vestnorræna ráðsins segir mikilvægt að læra af reynslunni:
Fiskveiðistjórnunin krufin
ÓLÍNA ÞORVARÐARDÓTTIR Ólína bendir
á að í ríkjum ráðsins séu mjög ólík
fiskveiðistjórnunarkerfi.
FÓLK Hverfahátíð Miðborgar og
Hlíða verður haldin á Miklatúni á
morgun.
Boðið verður upp á ýmis
skemmtiatriði í tilefni dagsins,
svo sem klifurvegg, kassaklif-
ur, sápukúlufjör og Iss Piss-fim-
leikatrúða. Þá mun íþróttafélag-
ið Valur kynna starfsemi sína
og mun Sigfús Sigurðsson meðal
annars kynna handknattleik.
Þá verður einnig hægt að skoða
Kjarvalsverk á Kjarvalsstöðum
og skottmarkaður verður opinn
þar sem íbúar munu selja ýmis-
legt notað og nýtt úr skottum bíla
sinna. Hátíðin hefst klukkan 14.
- kh
Hverfishátíð í miðborginni:
Skottmarkaður
á Klambratúni
NÝTT UPPHAF
HJÁ NÝJA KAUPÞINGI
Nýi Kaupþing banki fagnar því að bankinn hefur nú verið endur-
fjármagnaður af ríkinu. Jafnframt er það mikið ánægjuefni að sátt
hefur náðst milli ríkisins og skilanefndar Kaupþings um uppgjör
krafna og framtíð nýja bankans. Með þessu er styrkum stoðum
skotið undir starfsemi hans.
Enn einn áfanginn í endurreisn Nýja Kaupþings náðist í gær er ríkið og skilanefnd
Kaupþings undirrituðu samninga sem fela m.a. í sér að skilanefndinni fyrir hönd
kröfuhafa Kaupþings gefst kostur á að eignast um 87% hlutafjár í nýja bankanum
á móti ríkissjóði. Skilanefndin hefur frest til 31. október til að taka ákvörðun.
Nýja Kaupþing mun hér eftir sem hingað til heyra að öllu leyti undir íslensk lög
og íslenskar eftirlitsstofnanir. Dagleg starfsemi og þjónusta bankans raskast ekki
við þessa breytingu og engin breyting verður á stöðu innlánseigenda.
Endurfjármögnun Nýja Kaupþings og samningurinn við skilanefndina eru
mikilvæg skref í markvissri endurreisn bankans til hagsbóta fyrir viðskiptavini
hans og samfélagið í heild.
Með vinsemd,
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings