Fréttablaðið - 04.09.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
FRÆÐSLUGANGA Skógræktarfélags Hafnar-
fjarðar verður farin laugardaginn 5. septemer og er
sú síðasta á þessu ári. Skoðuð verða tré og runnar
í trjásafninu í Höfðaskógi. Lagt verður af stað frá Þöll
við Kaldárselsveg klukkan 10.
„Af fuglakjöti er kjúklingur oftast
á borðum hjá mér en ég er samt
með hálfgerða fuglakjötsdellu
þessa dagana, hef verið að upp-
götva mat eins og lunda, svartfugl
og önd,“ segir Brynhildur Stefanía
Jakobsdóttir, sem á og rekur
Snyrtistofuna Helenu fögru.
„Ég er ekki mikill kokkur og vel
baksturinn frekar fram yfir, en
þegar ég elda vel ég mér eitthvað
sem er einfalt og fljótlegt og því á
kjúklingaréttur, eins og þessi sem
ég fékk hjá vinkonu minni, mikið
upp á pallborðið.“
Brynhildur segir laukinn og
hneturnar mynda afbragðs sam-
spil og sósan sé mjög góð. „Mér
finnst góð tilbreyting að prófa
nýjar sósur, enda er maður alinn
upp við gömlu góðu brúnsósurnar
og gaman að prófa eitthvað nýtt í
þeim efnum með mat.“
juliam@frettabladid.is
Er með dellu fyrir
fuglakjöti þessa dagana
Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir eldar gjarnan rétti sem eru fljótlegir og einfaldir og er allt fuglakjöt í
miklu uppáhaldi. Þannig segist hún vera að uppgötva ýmsar tegundir fuglakjöts þessa dagana.
Brynhildur Stefanía Jakobsdóttir snyrtifræðingur og sonur hennar, Patrekur Úlfarsson, eru sammála um að kjúklingaréttir séu
eitthvað sem allir á heimilinu samþykki. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
4 kjúklingabringur
1-2 hvítlauksgeirar
lítill bútur engiferrót (2
sentimetrar)
1 stór laukur
1 rauð paprika
1 poki kasjú-hnetur
1 msk. olía til steikingar
2 msk. vorlaukur,
saxaður
Sósa:
200 ml Hoi Sin-sósa
3 msk. Tamari-sósa
3-4 msk. appelsínu-
marmelaði
250 ml kjúklingasoð
Skerið kjúklingabring-
urnar í teninga og
steikið á pönnu í um
15-20 mínútur. Takið
bringurnar af pönn-
unni. Steikið laukinn,
kasjú-hneturnar, papr-
ikuna, hvítlaukinn og
engiferrótina í smá-
stund. Setjið hráefnið í
sósuna út á pönnuna
saman við grænmet-
ið, hrærið saman og
setjið loks bringurnar
út í. Látið malla í smá-
stund. Vorlauk er síðan
stráð yfir í lokin. Gott
að bera fram með
hrísgrjónum.
KJÚKLINGUR MEÐ KASJÚ-HNETUM
Fyrir fjóra
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
6.990 kr.
4ra rétta tilboð
og nýr A la Carte
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn
með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr.
Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía.
Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland
Glas af eðalvíni
Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja
sér glas af 16 eðalvínum með mat. Verð frá 1.050-3.700 kr.
Sjá nánar á perlan.is.
· Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa ·
· Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum ·
· Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu ·
* E Ð A *
· Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar ·
· Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·