Fréttablaðið - 04.09.2009, Page 38
26 4. september 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Átján nýjar erlendar hljómsveitir hafa staðfest komu sína á
Iceland Airwaves-hátíðina sem verður haldin 14. til 18. okt-
óber. Þeirra á meðal er Kings of Convenience frá Noregi
með Erlend Øye úr sveitinni The Whitest Boy Alive inn-
anborðs, The Drums frá New York, elektrótríóið Jess-
ica 6 frá Bandaríkjunum og breska hljómsveitin Black
Cherry. Einnig ætla Danirnir Trentemöller og Kasper
Bjørke að þeyta skífum. Áður höfðu staðfest komu sína
Casiokids frá Noregi, Metronomy frá Bretlandi og
fleiri flytjendur.
Fyrir skömmu rann út umsóknarfrestur á hátíð-
ina fyrir íslenska tónlistarmenn og bárust hátt í þrjú
hundruð umsóknir, sem er það mesta til þessa. Þar
að auki sóttu um fimm hundruð erlend bönd um að
koma fram á Airwaves og samanlagt eru umsókn-
irnar því um átta hundruð talsins.
Aðstandendur Iceland Airwaves standa núna í
ströngu við að fara yfir umsóknirnar og verður
tilkynnt nánar á næstu dögum hverjir hafa verið valdir til að
spila. Hátíðin rúmar aðeins um 160 hljómsveitir og því kom-
ast færri að en vilja.
Átján bætast við Airwaves
KINGS OF CONVENIENCE Norska hljómsveitin er ein þeirra sem hafa
staðfest komu sína á Iceland Airwaves.
Leikarinn Tom Cruise bauð fram
aðstoð sína við að ljúka við síð-
ustu kvikmynd Heaths Ledger,
The Imaginarium of Dr. Parnass-
us, en var hafnað. Leikstjórinn
Terry Gilliam afþakkaði aðstoð
Cruise vegna þess að leikarinn
þekkti ekki Ledger. „Ég vildi
halda þessu innan fjölskyld-
unnar,“ sagði Gilliam. Á end-
anum voru þrír leikarar fengnir til að
hlaupa í skarðið fyrir Ledger, Johnny
Depp, Jude Law og Colin Farrell.
Knattspyrnukappinn Hermann
Hreiðarsson og félagar hans
úr íslenska landsliðinu afhentu
ágóðann af góðgerðargolfmóti
sem Hermann hélt fyrr í sumar
á blaðamannafundi á Hótel
Nordica í gær. Alls söfnuðust 2,8
milljónir króna og rennur upp-
hæðin til Umhyggju, Barnaspít-
ala Hringsins, Mæðrastyrks-
nefndar, SOS barnaþorpa og
samtakanna Blátt áfram. Golf-
mót Hermanns, sem hét Herm-
inator Invitational, var haldið í
Vestmannaeyjum í lok júní. Á
meðal þátttakenda voru félagar
hans úr íslenska landsliðinu og
Sol Campell, fyrrverandi sam-
herji hans hjá Portsmouth.
2,8 milljónir
söfnuðust
AFHENTU ÁGÓÐANN Landsliðsmennirnir
Hermann Hreiðarsson, Stefán Gíslason
og Pálmi Rafn Pálmason afhentu ágóð-
ann af mótinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dr. Gunni heldur útgáfutónleika
á Grand Rokki í kvöld í tilefni
af plötu sinni Inniheldur sem
kom út í sumar. Á tónleikunum
flytur hann lög af plötunni og
er ekki ólíklegt að þetta verði í
eina skiptið sem þau verða leikin
á sviði. Með honum í hljómsveit-
inni eru bassaleikarinn Haukur
úr Morðingjunum og Kristján
Freyr úr Reykjavík! Á tónleik-
unum, sem Gogoyoko og Grape-
vine standa fyrir, koma einnig
fram Hellvar frá Keflavík, tón-
listarmaðurinn Insol og pönk-
sveitin Blóð. Aðgangseyrir er
1.000 krónur og hefjast tónleik-
arnir klukkan 22.
Dr. Gunni
fagnar útgáfu
DR. GUNNI Dr. Gunni spilar lög af plötu
sinni Inniheldur á Grand Rokki í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
> HJÁLP CRUISE AFÞÖKKUÐ
Opið alla daga frá 12 til 18 - Sími 578 9400
Viking
5.995 kr.
GoreTex kuldaskór
fyrir börn (23-28)
Háskólabolir
1.595 kr.
Með vasa
Pony
3.995 kr.
Strigaskór
fyrir dömur
Helly Hansen
5.999 kr.
Regngallar fyrir börn
Barnalúffur
995 kr.
Arena
2.995 kr.
Sundbolir
Hummel
4.995 kr.
Íþróttabuxur
fyrir dömur
Hlaupaskór
4.995 kr.
Svartir (36-46)
Dömustígvél
3.995 kr.
Svört (36-41)
Rucanor
2.495 kr.
Íþróttataska