Fréttablaðið - 04.09.2009, Síða 42
30 4. september 2009 FÖSTUDAGUR
Grindavíkurvöllur, áhorf.: 781
Grindavík ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9-20 (5-4)
Varin skot Óskar 2 – Albert 3
Horn 8-6
Aukaspyrnur fengnar 12-24
Rangstöður 5-4
ÍBV 4–4–2
Albert Sævarsson 7
Pétur Runólfsson 6
Andrew Mwesigwa 5
Eiður Aron Sigurbj. 6
Þórarinn Ingi Valdim. 5
(46., Bjarni Einars. 5)
Arnór Eyvar Ólafsson 7
Yngvi Borgþórsson 5
*Tonny Mawejje 8
Andri Ólafsson 7
Augustine Nsumba 7
(78., Ingi Ingibergs. -)
Viðar Örn Kjartans. 6
(78., Gauti Þorvarðar.-)
*Maður leiksins
GRINDAV. 4–4–2
Óskar Pétursson 5
Ray Anthony Jónsson 3
Orri Freyr Hjaltalín 6
Óli Stefán Flóvents. 5
Jósef Kr. Jósefsson 4
Tor Erik Moen 4
(87., Páll Guðmunds. -)
Þórarinn Kristjánsson 4
(67., Óli B. Bjarnas. 6)
Jóhann Helgason 5
Scott Ramsay 4
Sveinbjörn Jónasson 3
Gilles Mbang Ondo 5
0-1 Augustine Nsumba (13.)
1-1 Gilles Mbang Ondo (43.)
1-1
Erlendur Eiríksson (4)
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Enska dagblaðið The
Guardian sagði í gær framtíðar-
horfur enska úrvalsdeildarfélags-
ins West Ham allt annað en góðar
vegna slæmrar afkomu þess á
síðasta ári auk þess sem félagið
sé stórskuldugt. Björgólfur Guð-
mundsson keypti félagið árið 2006
í fyrstu í félagi við Eggert Magn-
ússon, fyrrum formann KSÍ, sem
hætti rúmu ári síðar.
The Guardian hefur undir hönd-
um ársskýrslu West Ham frá árinu
2008. Á þeim tíma var tap félagsins
37,4 milljónir punda, um 7,7 millj-
arðar króna á núverandi gengi.
Björgólfur lagði fram 30,5 millj-
ónir punda í félagið vegna þessa
auk þess sem það tók bankalán upp
á sautján milljónir punda.
Skuldastaða West Ham er þar
að auki slæm. Það er sagt vera í
ábyrgð fyrir um 100 milljónum
punda eða rúmum 20 milljörðum
króna.
Félagið hefur gripið til aðgerða
að undanförnu og það skilaði 11,67
milljóna punda hagnaði á tólf mán-
aða tímabili sem lauk 5. júní í ár.
Útlitið sé þó enn mjög dökkt, segir
greinarhöfundur.
West Ham er nú í eigu eignar-
haldsfélagsins CB Holding, sem
er dótturfyrirtæki skilanefndar
Straums-Burðaráss.
Nick Igoe, fjármálastjóri West
Ham, segir í samtali við blaðið að
slæmri viðskiptastefnu félagsins
á meðan það var í eigu Björgólfs
sé um að kenna – þá einkum hvað
varðaði leikmannakaup og launa-
greiðslur leikmanna.
Launakostnaður hafi rokið upp
úr öllu valdi eftir að Björgólf-
ur eignaðist félagið. Því hafi það
neyðst til að selja leikmenn eins
og Anton Ferdinand, Bobby Zam-
ora, Matthew Etherington og Craig
Bellamy.
„Á þessum tíma var árleg-
ur launakostnaður 63,3 milljón-
ir punda en veltan einungis 81,5
milljónir. Slíkt gat ekki gengið til
lengdar og það vissi félagið.“
Fleira kom til. Aðalstyrktaraðili
West Ham fór á hausinn og félagið
þarf að greiða Sheffield United 21
milljón punda í skaðabætur vegna
Tevez-málsins svokallaða. Sú upp-
hæð skiptist í jafnar greiðslur sem
verða inntar af hendi til ársins
2013. - esá
The Guardian segir afkomu West Ham slæma og félagið stórskuldugt:
West Ham steypt í stórskuldir
STOLTIR EIGENDUR Björgólfur Guð-
mundsson og Eggert Magnússon
skömmu eftir að þeir keyptu félagið árið
2006.
5. september
á Ljósanótt í Reykjanesbæ
Flögu tímataka
Kort af
hlaupaleið
er á
hlaup.is
Skráning er hafin
á hlaup.is og
í Lífsstíl 420 7001
Glæsileg úrdráttarverðlaun, m.a. peningaverðlaun
Rásmark hjá Lífsstíl sundmiðstöð
Hálfmaraþon (ræsing kl. 9:30)
10 km hlaup (ræsing kl. 10:15)
3,5 km skemmtiskokk (ræsing kl. 10:20)
Auglýsingasími
– Mest lesið
Golfsamband Íslands stendur í fyrsta skipti fyrir keppninni um „Bikar-
inn“ svokallaða og fer keppnin fram í dag og á morgun á Urriðavelli
en þar mætast tvö lið skipuð annars vegar kylfingum úr golfklúbbum
höfuðborgarinnar og hins vegar kylfingum úr golfklúbbum lands-
byggðarinnar. Keppnisfyrirkomulagið er holukeppni í anda
keppninnar um Ryder-bikarinn þar sem lið Banda-
ríkjamanna og Evrópubúa eigast við.
Alls taka nú tuttugu og fjórir kylfingar þátt í mót-
inu, tólf í hvoru liði fyrir sig, en átta efstu karlar
og tvær efstu konur á stigalista GSÍ veljast í hvort
lið fyrir sig. Tveir kylfingar til viðbótar eru svo
valdir af fyrirliðum eða liðsstjórum liðanna
en það hlutverk féll að þessu sinni í skaut
reynsluboltanna Sigurðar Péturssonar fyrir
höfuðborgarsvæðið og Gylfa Kristinssonar
fyrir landsbyggðina.
Fljótt á litið virðist lið landsbyggðarinnar vera
skipað mun reyndari kylfingum en Sigurður
er þó hvergi banginn.
„Þetta verður mjög skemmtilegt og er vonandi komið til þess að
vera. Lið höfuðborgarsvæðisins er mun yngra og óreyndara og þau
verða bara grimmari fyrir vikið og það getur gert útslagið í þessu.
Maður hefur lyft mörgum bikurum í gegnum tíðina
og mér líst vel á þennan sem er í boði núna og
mikil eftirvænting að fá að halda á honum að
keppni lokinni,“ segir Sigurður vongóður.
Gylfi er þó ekki síður bjartsýnn fyrir hönd liðs
síns fyrir keppnina.
„Það er náttúrulega mikill heiður að
hafa verið valinn liðsstjóri þessa lands-
byggðarliðs. Við höfum marga reynslu-
bolta í okkar liði og ég á því eftir að
sofa vel nóttina fyrir keppni. Reynslan er
auðvitað mikilvæg en dagsformið skiptir
vitaskuld miklu máli einnig og ég veit að
mitt lið mætir vel stemmt til leiks og það
verður því gaman að hampa bikarnum á
laugardaginn,“ segir Gylfi að lokum.
SIGURÐUR PÉTURSSON OG GYLFI KRISTINSSON: ERU LIÐSSTJÓRAR LIÐANNA SEM KEPPA UM „BIKARINN“ Í GOLFI
Lið höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar mætast
Pepsi-deild karla
1. FH 19 14 2 3 49-20 44
2. KR 19 12 3 4 44-26 39
3. Fylkir 19 11 3 5 35-23 36
4. Fram 19 8 4 7 34-29 28
5. Breiðablik 19 8 4 7 33-31 28
6. Keflavík 19 6 8 5 29-34 26
7. Stjarnan 19 7 3 9 38-33 24
8. Valur 19 7 3 9 21-33 24
9. Grindavík 19 6 4 9 33-37 22
10. ÍBV 19 6 4 9 21-31 22
11. Fjölnir 19 3 5 11 25-41 14
12. Þróttur 19 3 3 13 20-44 12
Næstu leikir:
FH-ÍBV 13. sept.
Fylkir-Þróttur 13. sept.
Valur-Stjarnan 13. sept.
Fram-Fjölnir 15. sept.
Keflavík-Grindavík 16. sept.
Breiðablik-KR 16. sept.
STAÐAN
> Breytt fyrirkomulag á lokahófi KSÍ
Stjórn KSÍ hefur tilkynnt félögum á landinu að í haust
verði breytt fyrirkomulag á lokahófi og verðlaunaaf-
hendingum knattspyrnumanna fyrir sumarið. Að þessu
sinni verði ekki um að ræða samkomu á Broadway með
kvöldverði og skemmtun. „Við vildum prófa að hafa þetta
með öðruvísi sniði núna og breytingarnar koma bara til
af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna beiðnar frá
félögunum sjálfum. Hugmyndin er fyrst og fremst að veita
afhendingu verðlauna meira vægi en áður. Dagsetningin
30. september hefur komið fram en geng-
ur líklega ekki upp þar sem Valsstúlkurn-
ar eru þá að keppa erlendis,“ segir Þórir
Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ.
FÓTBOLTI Grindavík og ÍBV náðu
loks að spila leik sem frestað var
á sínum tíma vegna svínaflensu-
faraldurs í herbúðum Grindjána.
Leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli.
Grindavík gat þakkað fyrir stigið
en Eyjamenn áttu meira skilið.
Það viðraði óvenju vel í Grinda-
vík, nokkuð hlýtt og ekki of hvasst
sem eru kannski ekki beint þær
aðstæður sem liðin þekkja hvað
best. Eyjamenn mættu til leiks án
Englendinganna Ajay Leitch-Smith
og Chris Clements.
Það virtist ekkert há liðinu í
fyrri hálfleik þar sem gestirnir
voru mikið betri aðilinn og hrein-
lega yfirspiluðu meðvitundarlausa
Grindvíkinga. Ef maður vissi ekki
betur þá hefði maður haldið að þeir
væru enn með svínaflensu – svo
slappir voru þeir.
Sóknir Eyjmanna voru beittar
og eftir eina slíka kom Nsumba
boltanum í netið. Hann fékk bolt-
ann í teignum, lék á Óskar mark-
vörð og lagði boltann í tómt mark-
ið. Sanngjörn staða. Eyjamenn
voru líklegri til að bæta við í hálf-
leiknum en þvert gegn gangi leiks-
ins jöfnuðu heimamenn rétt fyrir
hálfleik.
Eftir nokkuð krafs í teignum
barst boltinn á Gilles Ondo sem
potaði boltanum í markið af stuttu
færi. 1-1 í hálfleik sem var sárt
fyrir Eyjamenn sem áttu hálfleik-
inn með húð og hári.
Síðari hálfleikur var ekki eins
fjörugur og sá síðari. Eyjamenn
réðu þó ferðinni lengstum en gekk
erfiðlega að skapa sér opin færi.
Þeir vildu í þrígang fá víti í leikn-
um og virtust hafa eitthvað til síns
máls í að minnsta kosti tvö skipti.
Ekki komu mörkin í hálfleiknum
og liðin sættust því á skiptan hlut
og sendu Þrótt niður í 1. deild í
leiðinni.
„Fyrirfram hefði ég verið sátt-
ur við stig í Grindavík en miðað
við hvernig við spiluðum hefði ég
viljað fá öll stigin. Við spiluðum á
köflum glimrandi fótbolta í leikn-
um,“ sagði Heimir Hallgrímsson,
þjálfari ÍBV, og hafði mikið til
síns máls. Eyjamenn yfirspiluðu
þreytta Grindvíkinga lengstum.
Boltinn gekk hratt og í fáum snert-
ingum á milli manna.
„Það hefur verið fínn stígandi
hjá okkur í seinni umferðinni og
mér finnst fótboltinn einnig verða
betri. Menn héldu að leikur okkar
myndi hrynja án útlendinganna en
það komu aðrir menn inn og stigu
upp.“
Lúkas Kostic, þjálfari Grinda-
víkur, var nokkuð sáttur við stig-
ið en hans menn voru þungir og
þreyttir í leiknum eftir mikið álag
upp á síðkastið.
„Auðvitað vill maður alltaf fá
samt meira en þetta var erfiður
og harður leikur. Strákarnir voru
vissulega þungir enda höfum við
spilað fjóra leiki á stuttum tíma
og það eftir mikil veikindi. Strák-
arnir þurfa smá hvíld samt núna,“
sagði Lúkas en verður þá ekkert
æft næstu daga?
„Það verður létt æfing á morg-
un og svo hvíld yfir helgina,“ sagði
Lúkas léttur og hló dátt.
henry@frettabladid.is
Bæði lið skrefi nær öruggu sæti
Þróttur féll niður í 1. deild í gær þegar Grindavík og ÍBV skildu jöfn suður með sjó. Eyjamenn voru betri og
þreyttir Grindvíkingar mega þakka fyrir að hafa náð í stig. Bæði lið vantar tvö stig til að tryggja sæti sitt.
FÖGNUÐUR Grindvíkingar höfðu ærna ástæðu til þess
að fagna í gær þar sem þeir eru nú skrefi nær því að
halda sæti sínu í efstu deild eftir jafntefli gegn ÍBV.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M