Spegillinn - 01.07.1965, Blaðsíða 11
Brunnar
Þeir hroðalegu atburðir hafa
gerzt, að sinfóníunótur Ríkis-
útvarpsins hafa brunnið. Ann-
ars erum vér ekki svo vissir
Um að ölium þorra fólks þyld
fréttir þessar svo hroðalegar,
því að verið gæti að einhver
«tti Ieynda von um að á næst-
Unni yrði meir um tónlist af
léttara taginu í dagskrá út-
Varpsins af þessum sökum.
Feröa-mál
Það sprakk dekk á bíl hóp-
ferðafólksins á Fjallabaksleið.
Allir voru í góðu skapi og vildu
óðir og uppvægir hjálpa sín-
um vinsæla bílstjóra.
Hinn gamansami bílstjóri
skipulagði því framkvæmdim-
ar: „Sigurður, þú ert fagmað-
ur, svo að þú setur við tjakk-
inn. Jón, þú ert svo sterkur,
þú losar rærnar, en þér, séra
Árni, þér ættuð að fá yður
gÖngutúr, svo að þér heyrið
®kki til þeirra“.
KIS
Það virðist margt koma til
kasta lögreglunnar í Hafnar-
firði. Er skemmst að minnast
þess, þegar kennaragarmi í
auraleit var hent út af Bæjar-
skrifstofunni. Nú enn máttu
hafnfirzkir lögreglumenn taka
á honum stóra sínum og fjar-
f®gja varaslökkviliðsstjórann
samkvæmt skipun aðalslökkvi-
stjórans. Og nú að síðustu
krafðist skyldan að kanínu-
grey skyldi aflífast. Þar sem
hér er um hættulegan tækni-
legan verknað að ræða, skyldi
aftakan fara fram fjarri byggð
°g urðu öskuhaugar bæjarins
fyrir valinu. Þrátt fyrir mikla
þjálfun í framkvæmd ýmissa
verka, sbr. framansögðu, tókst
svo illa til, að skotið „hljóp“
upp undir bakhluta annars af-
tökumannsins, sem hafði setið
á hækjum sér. Lögreglan út-
hellti pví meira blóðl en fóm-
ardýrið, sem seldi líf sitt dýru
verði.
Leikflokkar?
Emilía Jónasdóttir sagði f
viðtali við Tímann 25. júlf, að
leikflokkarnir, sem ferðast um
landið í sumar væru fjórir —
fyrir utan stjórnmálaflokk-
ana.
Sumir segja, að aðalkjara-
bótin við að stytta vinnuvik-
una í 44 tíma, sé, að þá er
sjens á fleiri eftirvinnutímum
á hærra kaupi. Og nú em
verkamenn í stuði til að vinna
eftirvinnu, því að það hefur
ekki verið unnið eftirvinna svo
lengi.
Sannspár
Það var vitnaleiðsla og dóm-
arinn spurði sjómanninn:
„Þér þekkið vitnið og vitið
að það er þekkt fyrir að vera
áreiðanlegt".
„Jah, það veit ég nú fjand-
ann ekki“, svaraði sjóarinn.
„Hann hefur nú unnið á veð-
urstofunni“.
*
Vestri skrifar i Vísi 12. maí
um framsóknarmenn og segir
um Halldór E. Sigurðsson m.
a.: Undir Halldóri mun lag
vera á hlutunum ... það er að
segja því litla sem til verður.
Að hugsa sér
Hjónin Hans og Ólína voru
orðin langþreytt í búskapnum.
Yfir borðum skorti umræðu-
efni og þau geispuðu og störðu
fram fyrir sig hugsi.
Loks sagði Ólína: „Jah, ef
maður hefði nú vinnukonu
núna, þá gæti maður lagt sig.
Það glaðnaði sem snöggvast
yfir honum Hans við tilhugs-
unina: „Ef maður hefði nú
vinnukonu og gæti lagt sig“.
Frí
Þar er vel til fundið hjá hin-
um ýmsu verkalýðsfélögum að
fara í verkföll á sumrin þeg-
ar líkur eru á góðu veðri. Þetta
gerir verkföll mikið vinsælli,
því að flestir þeir sem í verk-
falll eru, geta þá skroppið út
úr bænum og sólað sig soldið,
því að fæstir hafa svo léleg
kjör, að þeir hafi ekki efni á
því.
Giftingarmái
Foreldrar ræddu framtíð
dóttur sinnar, sem var komln
yfir tvítugt:
— Það er nú kominn tími
til að hún fari að gifta sig,
sagði hún.
— Hún verður bara að bíða
með það, þangað til sá rétti
lætur sjá sig, sagði hann.
— Ekki gerði ég það, —
sagði hún.
Sex
Lítill drengur veiddi flugur,
og sagði svo við mömmu sína:
— Nú hef ég veitt fimm
flugur, og þrjár eru karlflug-
ur og tvær eru kvenflugur.
— Hvernig geturðu vitað
það, sagði mamma.
— Jú, það var einfalt, tvær
sátu á speglinum og þrjár á
flöskuiini.
Þeir
fiska
sem
róa
með
veiðar-
færi
frá
SKAG-
FJÖRÐ
Spegillinn 11