Spegillinn - 01.07.1965, Page 14

Spegillinn - 01.07.1965, Page 14
1 Morgunblaðinu 13. júní er sagt frá öpum í dýragarðinum í New York, sem höfðu í frammi rifrildi og illindi, og ráf- uðu um eirðarlausir og undu illa hag sínum. Hiins vegar brá svo við, að þegar sjón- varpi var stillt upp fyrir framan búrið, þá hafði það slík áhrif til batnaðar, að öll illindi hættu og aparnir róuðust, og urðu aparnir sem furðu lostnir. Það er fróðlegt að lesa um að sjón- varp hafi svo róandi og bætandi áhrif. Finnst oss að gera ætti tilraunir með þetta hérlendis — f landi óróans og ill- indanna. „Þeir hættu öllum illindum, þegar þeir fengu sjónvarp“ Mbl. 13. júní. i > i Og enn dreymir skáldið Hörmulegt er hve drenginn dreymir illa. Djöfulleg martröð sú! Grámóskuð, hnausþykk, veglaus þokuvilla ves honum stíg og brú. Verst er hve lengi, oft og endurtekið ókjör slík virðast geta Iagzt á hann hæglátan, prúðan, sæmdan silkiskeggi, svolítinn mann. Gæti hann þagað, gott væri að una glaður i nálægð hans, nú er það þjáning. Neinn ei þarf að gruna neyð þessa kvalda manns. Vekjum hann, slíkir draumar bölvun boða. Bregðum upp ljósi. Draugar þrúga hann. Skottur og Mórar skuggaólum hengja skáldhneigðan mann. Brútus. 14 Spegillinn

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.