Spegillinn - 01.07.1965, Síða 16
„SÍÐUSTU daga, vikur og
mánuði hefur staðið yfir um-
fangsmikil leit hér i borginni;
leitað hefur verið dyrum og
dyngjum að húsnæði, sem
hentugt þætti til afnota fyrir
hina íslenzku sjónvarpsstöð,
sem ráðgert er að koma á fót
með haustinu. Og nú er björn-
inn unninn: Húsnæðið fundið!
Það reyndist vera Laugaveg-
ur 176 — húsnæði Bílasmiðj-
unnar h.f.
BlLAR og BODDÍ, járn og
timbur, gallaðir menn að sjóða
saman, smíða og sauma; bílar
og aftur bílar; þannig er nú
umhorfs, þar sem hina íslenzka
sjónvarpi er ætlaður staður I
framtíðinni: Draumaborgin er
bílasmiðja.
Við erum stödd í rúmgóðu
húsnæði við Laugaveg 176 og
litumst um á athafnasvæð-
inu.,.“
Alþbl. 26. júní
Þetta fannst oss vel til fund-
ið, að velja bílasmiðju, því að
vér gætum hugsað okkur að
vettvangurinn væri sem sagt
tilbúinn til að halda nýmóðins
Musica Nova konsert, með öll-
um nauðsynlegum hljóðfærum.:
Færi vel á að leyfa sem flest-
um að njóta slíkrar nýmóðins
listar í hinu Islenzka sjón-
varpi, en alltof margir munu
hafa lagt á flótta af síðustu
tónleikum Musica Nova.
Rolf Johansen & Co.
OSRAM
16 Spegillinn