Spegillinn - 01.07.1965, Page 19

Spegillinn - 01.07.1965, Page 19
FRÍ Á VIRKUM DEGI Smátt og smátt tók að rofa til fyrir Gvendi gamla. Hann hafði það á tilfinn- ingunni, að það væri miður dagur, á miðri vertíð. Það fyrsta, sem hann heyrði var flugvélardynur hátt á lofti, og máva- garg frá fjörunni. Síðan fannst honum eins og hann heyrði sálmasöng. Hann stóð við opna gröf. O-ho, hver skollinn. Hvernig í ósköp- V' p, kom eg eiginlega hingað, hugsaði haun undrandi. Það er jú miður vinnu- dagur, og ég veit ekki um neinn, sem er dauður. Enginn úr minni fjölskyldu að minnsta kosti. Það ert þú sjálfur, sem ert dauður, sagði rödd fyrir aftan Gvend. Hann sneri ''Sér '’ið. Þar stóð maður, sem hann ekki kom fyrir sig í fljótu bragði, en honum fannst hann kannast við. Maðurinn var bæði vingjarnlegur á svip og í röddu, enda var Gvendur gamli ekki sérlega hræddur, þó að honum finndust aðstæð- ur allai hinar undarlegustu. Fyrirgefðu góði, sagði hann, en ég er ekki almennilega klár á því, hvernig ég komst hingað og hvers vegna? Gvendur þreifaði eftir úrinu í vestisvasanum, en hann var ekki i neinu vesti. Úrið þitt er í vestisvasanum, en þú þarft hvorki úr né vesti meir, sagði hinn aðkomni. En ef einhver stæli því, sagði Gvendur. Þeir um það, sagði aðkomna veran. Finnst þér þú ekki kannast við mig aftur? Ég er nú ekki alveg brand-sjúr, þetta er svo stórklikkað allt saman. Sef ég eða er ég ekki alveg edrú? Hvorugt, ég sagði þér áðan, að þú værir dauður, en þú skalt ekki vera hræddur. Ég er hann faðir þinn, sem dó þegar þú varst smádrengur. Gvendur gamli varð alveg undrandi og greip eins og ósjálfrátt eftir tóbaks- bauknum, en baukurinn var ekki á sín- um stað frekar en úrið. Faðir minn var nú bara eyrarkall, en þú lítur svo virðulega út, sagði Gvend- ur. Já, ég hef unnið mig dálítið upp héma megin, svaraði hinn aðkomni faðir. Það kemur þú einnig til með að gera, þó að litið hafi orðið úr þér í jarðlífi, enda var ekki nokkur hemja, hvernig þú hagaðir þér. En ég kem til með að passa upp á þig til að byrja með, svo að ekki fari eins f annað sinn. I sama augnabliki byrjuðu kirkju- klukkurnar að íringja. Það væri nú gam- an að kíkja ‘ n í kirkjuna, hugsaði Gvendur, enda langt síðan hann hafði komið þangað. Langar þig til að vera viðstaddur þína eigin jarðarför, spurði veran. Já, ef herrann hefur tíma. Ég hef þann tfma sem þarf og það hefur þú einnig. Það eru bara lifendur, sem hafa takmarkaðan tíma. Og svo skaltu ekki kalla mig herra, því að hér eru engir herrar, eins og þú ert vanur þeim. Ég var einu sinni faði. þinn, en það var einungis vegna þinnar jarð- bundnu tilveru, sem sagt bara yfir Spegillinn 19

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.