Spegillinn - 01.07.1965, Side 24
Upplifun —
endurlifun
Ó, Musica Nóva! Ég nálægist þig
í nærbrók, á léttstígum tánum,
í hrollbruna-lotningu hneigi ég mig,
húkandi’ á allsberum knjánum.
Og þakklátur, söngrænn þánki minn
þuklar um minningalöndin,
er Likidarbær sprautaði listgöfgi inn
og leyst voru axlaböndin.
Hér stendur hann Paik minn við píanó sitt
og pikkar í falsnótu eina
og svífur svo tónrænt um sviðið mitt
með sápuflís löðrandi hreina.
Svo stingur hann hausnum í hreinlætisker
og hellir baunum I salinn,
og leysir brækur og sýnir af sér
svipmynd, er frumleg er talin.
Og Sjarlotta birtist og sigrandi fer
með selló — og fjötrandi strengl,
blásandi flautur og brjótandi gler
í blámóðu-náttkjólagengi.
Hún lumbrar á kubbum og skarkar með skeið
og skörung og gafla og hnífa,
unz baðför í vatnstunnu lýsir upp Ieið,
— ein Ijómandi kvenþokka-dýfa!
Og gleymdur er Páll-inn og gleymdur er Jón
og gleymdur er Blöndal og Heimir,
og Gvendur og Áml með andvana tón,
því yfir mig frumneistinn streymir.
Með svinkaðan huga og sætkenda Iund
ég svelgi upp rasskastamenning,
og blessa þá stund er ég fór á þann fund
og frjóvgaðist útlendri tvenning.
Og meðan ég angla á mannlífsins braut
og muna skal Sjarlottu náttkjól
og Kóreu-busann í berrassaþraut
birtandi skínandi gáttsól.
Upplifun þessi var ógleymanleg
I andlegri, hástemmdri klifun,
er ganga mun aftur og vísa mér veg
f voldugri sí-endurlifun!
Dalakútur.
REIKNINGSLIST
Tveir gamlir skólabræður
hittust eftir mörg ár. Árni
hafði verið mikill námsmaður
skóla, en Jóhannes hafði allt-
af þótt heldur lítill námsmað-
ir, sérstaklega hafði hann þótt
slappur reikningsmaður. Eigi
.5 síður hafði Jóhannes gerzt
kaupsýs? - íaður og hafði efn-
azt vel, og mikið betur heldur
en flestir skólabræður h.ans.
Árni hafði _ ":zt upp á kaup-
"'/slu og hafði gerzt skrifstofu-
maður á opinberri skrifstofu,
og þótti sinn hlutur ekki alltof
'Jóður. *-~in var hins vegar
'orvitinn um hagi síns gamla
skólafélaga, Árna, og spurði
hann hver væri lykillinn að
velgengni hans.
— Ja-ha, það er ósköp ein-
falt, sagði Jóhannes. Ég kaupi
oft vörur í hcl’-Jcölu, og þegar
ég t. d. kaupi hlut fyrir tú-
kall og sel hann aftur fyrir
tíkall, þá þéna ég sko alltaf
10%.
Vinsæl
fermingargjöf
Tíminn 19. maí hefur eftir
Leifi Sveinssyni í tímaritinu
„Hesturinn okkar“ m. a. þetta:
Algengt er að gefa börnum
hest í fermingargjöf og þá
auðvitað með öllum tygjum ...
Samskiptin við skepnurnar eru
öllum holl...
Undirritaður óskar hér með að gerast áskrifandi
SPEGILSINS
frá nýári 1965
frá og með 8. tbl. (strikið undir það, sem við á).
og lofar að leysa út, þegar þar að kemur, póstkröfu
fyrir áskriftargjaldinu, kl. 300,00 fyrir árið, eða kr.
125,00 fyrir 5 blöð.
Nafn
Heimilisfang (eða pósthólf)
24 Spegillinn