Spegillinn - 01.04.1983, Blaðsíða 31
stjérnmálaleiðtoganna
kjörtímabil, dr. Gunnar Thoroddsen, þótt ekki sé hægt að
kjósa hann á þing að þessu sinni.
Ég heyri þjóðarsálina spyrja: Hvers konar menn á ég að
setja í forsæti?
Þetta er góð spurning. Hvaða menn eru þetta eiginlega?
Kjartan Jóhannsson
er Bogmaður og því um margt velmeinandi hugsjónamaður.
Vegna Venusar - Satúrnusar tengsla er hann mjög lokaður
tilfinningalega, oft vandræðalegur og ópersónulegur. Mars,
Júpiter í Fiskum í andstöðu við Neptúnus gerir að ímynduna-
rafl Kjartans er ekki í nægum tengslum við raunveruleikann
og vilji hans og athafnir oft þokukenndar og óákveðnar.
Kjartan þarf að virkja sjálfan sig betur og finna hugmyndum
sínum jarðsamband.
Steingrímur Hermannsson
er Krabbi, með Tungl í Ljóni/Meyju, Venus í Tvíbura og
Mars í Hrút. Steingrímur er tilfinningamikill, daðurgjarn og
fljótfær. Hann er næmur, tónelskur og skáldhneigður. Sérv-,
iskulegar hugmyndir og sveiflukennd hugsun er eitt helsta
vandamál hans, tilkomið vegna 90 gráðu afstöðu Merkúrs og
Úranusar, og þurfa landsmenn að huga að því sem öðru í fari
leiðtoganna.
Steingrímur tæddur 22.06. 1928
o /
Ws
W Jft , ,
Vilmundur fæddur 07.08. 1948
Vilmundur Gylfason
er Ljón með Plútó í samstöðu við Sól og því hugstór öfga-
maður með sterka sjálfseyðingarhvöt. Vegna Tungls í Meyju
sér hann hið smáa á kostnað heildarinnar, líkt og Svavar. Sól
í Ljóni og Mars/Neptúnus í Vog gerir Vilmund skrautlegan,
listrænan og hugsjónamiklan en varla raunsæjan.
Tafla II
C.........................................................17
F........................................................ 10
M.........................................................14
Eins og sjá má á töflu 2, þá eiga leiðtogarnir ekki í vand-
ræðum með að fá hugmyndir, né heldur að breyta um af-
stöðu, en hins vegar er lægst á mælistikunni festan og fram-
kvæmdasemin. (C táknar frumkvæði, F festu og fram-
kvæmdasemi, M sveigjanleika.)
Pað sem að lokum er og athyglisvert í heildarsamantekt,
er staða tilfinningaplánetanna Tungls og Venusar. Þær eru
staðsettar í köldum merkjum eða tengdar Satúrnusi hjá
öllum leiðtogunum, nema helst Vilmundi.
Auk þess sem um er getið í töflu 1 og 2 og framan var talið
eru það því tilfinningalega lokaðir menn, bældir og formstíf-
ir, sem þjóðin er að kjósa yfir sig.
Víðólfur.
31