Spegillinn - 01.04.1983, Síða 32
A rúmstokknum
Alhliða
lesenda-
þjónusta
Þessum þætti er ætlað að veita lesend-
um blaðsins alhliða þjónustu. Má í því
sambandi nefna að hér fást svör við alls
kyns vanda einkalífsins gegn vægu
gjaldi, pólitísk leiðsögn, efnahagslegar
ráðleggingar og alhliða leiðsögn í þeim
stóra málaflokki sem öfugsnúinn mórall
streitist við að kalla feimnismál (kyn-
ferðismál, ástamál, framhjáhald og al-
menn hegðun á kynlífsmarkaðnum).
Einnig gætum við hugsanlega skroppið í
bankann, apótekið eða ríkið ef illa
stendur á hjá lesendum. En að sjálf-
sögðu frábiðjum við okkur misnotkun á
slíkri greiðasemi.
En allt um það. Spegillinn er heiðvirt
blað, og umsjónarmenn þessa þáttar
vandir að virðingu sinni, og verður því
ekkert um upplognar fyrirspurnir frá
lesendum í þessu fyrsta tölublaði að
ræða, né heldur áskrifanda blaðsins,
sem okkur vitanlega á ekki við nein sér-
stök vandamál að stríða. Ekki enn að
minnsta kosti. Hvað svo sem síðar mun
verða. T.d. þegar hann þarf að fara að
greiða áskriftina sína.
Það er ekki þar fyrir; við erum svosem
ekkert að halda bví fram að svonalöguð
raðgjafaþjónusta sé eitthvað sérstak-
lega jákvætt fyrirbæri. Hún þrífst á
tveimur tegundum karaktergalla. í
fyrsta lagi vanmeta- og minnimáttar-
kennd þess sem endalaust þarf að leita á
náðir annarra með sín mál og vill fá
aðvífandi ráð við hverjum vanda.
Hlýtur það ekki að vera upphaf velfarn-
aður í lífinu að treysta betur eigin dóm-
greind en svokölluðum góðum ráðum
bláókunnugs fólks? í öðru lagi sjálfum-
gleði þess sem leggur á ráðin. Hvað eru
menn að vilja hafa vit fyrir náunga sín-
um í öllum mögulegum málum?
Samt sem áður. Þér er guðvelkomið,
lesandi góður, að senda okkur línu. Við
erum margreynd í lífsbaráttunni, allt-
saman vanir menn. En þá er það líka
mátulegt á þig að vera bent á hlutina í
sínu rétta og ófegraða samhengi.
Ef til dæmis spurt væri: Hvernig á maður
að haga sér meðan kosningabaráttan
stendur yfir til þess að eiga fullan séns
eftir kosningar? Svar: Hafið allt á
hreinu! (Sjá skýringarmynd).
32