Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.11.1965, Side 3

Stúdentablaðið - 01.11.1965, Side 3
STÚDENTABLAÐ 3 Nú hefur um árabil verið talað um það, að stúdentar þyrftu að eignast félagsheimili, þ. e. samkomustað og miðstöð félagslífs síns. Við erlenda háskóla eru stofnanir af þessu tagi taldar ómiss- andi. Nú hefur verið gcrð teikning af væntanlegu félagsheimili eða stúdentaheimili, eins og það er cinnig nefnt, og birtist hún í Stúdentablaðinu fyrir réttu ári síðan. Höfundur þcssarar teikn- ingar er Jón Haraldsson, arkitekt. Garðstjórn hefur fyrir sitt leyti samþykkt staðsetninguna við Gamla Garð, og er nú ver- ið að leggja fytir Háskólaráð til staðfestingar bæði teikninguna og lýsingu á þeim þörfum, sem húsið á að uppfylla. En það eru ýmis ljón á veginum, og á ég þar fyrst og fremst við fjár- málin. A fjárlögum ríkissjóðs árið 1 964 var veitt hálf milljón til hyggingarinnar, 1965 var það hcil milljón, cn síðan var sú fjárveiting skorin niður um 20 prósent, eins og önnur framlög til opinberra framkvæmda, eða niður í 800 þús. kr. I fjárlaga- frumvarpinu nú er aðeins gert ráð fyrir 800 þús. kr á ný, en sótt hafði verið um 4 milljónir, og hafði rektor, próf. Ármann Snævarr, stutt það mál dyggilega. Til viðbótar þessum fram- lögum eru til í sjóði um 300 þús. kr., svo að nú ættu að verða fyrir hendi eftir áramótin minnst ca. 2.4 millj. En kostnaðar- áætlunin hljóðaði í júní s. I. uppá 14—15 millj. kr. Er talið, að takast mætti að byggja húsið, svo fokhelt yrði, á næsta sumri fyrir 5 milij. En helming þeirrar upphæðar virðist vanta. Éo- var að blaða í stúdentablaðinu frá 1. des 1953. Þar O er hirt tcikning af félagsheimili, sem virðist þá, eftir frásögn blaðsins að dæma, vera alveg í þann veginn að rísa fyrir sunnan íþróttahúsið neðan við Suðurgötuna. Og þá var málið engan veginn nýtt af nálinni. Lýst er í blaðinu áætlun um hluta- fjársöfnun til byggingarinnar, og virðist hún vera all-pottþétt. En hvað gerðist? Málið dó, steindó. Spurningin er, hvort málið geti ckki hæglcga dáið aftur. Sennilega. Fjárhagsáætlun sú, sem nú liggur fyrir, er svo há, að þessi 800 þús., sem við virðumst eiga að fá árlega, hrökkva ekki fyrir hækkuninni, sem árlega verður á kostnaðinum við að rcisa svona hús. Þannig lítur þetta mál út núna. Stúdentar hafa um skeið sjálfir varið ágóða af hinum ýmsum samkomum sínum í sjóð hins væntanlega stúdcntaheimilis, án þess þó að nálgast mark- ið að nokkru ráði. Þeir hafa þó reiknað með því, að langmest- ur hluti fjárhæðarinnar allrar hlyti að koma og yrði að koma frá ríkisvaldinu. Fyrir því hafa verið færð óhagganleg rök, að teikningin er hreinlega miðuð við allra minnstu kröfur, sem hægt er að gera um hús af þessu tagi. Hefur þjóðfélagið raun- verulega efni á að neita okkur um viðunandi félagslega að- o o O stöðu og sæmilegt mötuneyti? Það vil ég leyfa mér að draga í efa. Nú er verið að kanna til hlítar möguleika á frekari fjáröflun til hyggingarinnar. Gert er ráð fyrir, að vinnuteikningar að húsinu verði gerðar í vetur. Mín skoðun er sú, að vcrði ekki unnt að hefja byggingu stúdentaheimilisins næsta sumar, þá þurfi enginn að vera viss um, að það rísi ncitt á næstunni. Hér hefur verð skýrt frá ástandi og helztu horfum í þessu mikla hagsmunamáli stúdenta í heild. Ég hygg, að flestir stúd- entar hljóti að vera mér sammála um jxið, að við svo húið megi ckki. standa, heldur verði að stefna mjög ákveðið að því, að framkvæmdir hefjist næsta sumar. Vil ég hér með skora á studenta í heiJ.d að sýna vilja sinn og áhuga um þetta mál og rcyna að skapa almenningaáiit, sem nægi til þess, að málið komist nú farsællega í höfn. Stjórnvöld þjóðarinnar jnirfa að sannfærast um nauðsyn byggingar stúdentaheimilisins og það fyrr en síðar. Við höfum semiilega aldrei verið nær markinu en nu, og hví Jxí að láta undan síga?

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.