Stúdentablaðið - 01.11.1965, Qupperneq 9
STÚDENTABLAÐ
9
Síðasta daginn, sem Færey-
ingarnir dvöldust hér, komu þeir
á fund með fulltrúum Stúdenta-
ráðs og utanríkismálanefndar.
Var samkomulag þar prýðisgott
og lagður grundvöllur að aukn-
um samskiptum og samvinnu
þessara tveggja stúdentasam-
taka. Var ákveðið, að báðir aðil-
ar skyldu kanna möguleika á að
hefja innan skamms stúdenta-
skipti á milli Háskóla Islands og
Fróðskaparseturs í Tórshavn, en
það er vísir að færeyskum há-
skóla. Yrði þá gert ráð iyrir, að
einstakir stúdentar dveldust í 3
—4 vikur við nám á hinu landinu
fyrir milligöngu stúdentasamtak-
anna. Þá var og ákveðið, að kann-
aðir skyldu möguleikar á að
halda sameiginlegt færeysk-ís-
lenzkt stúdentamót, í fyrsta lagi
næsta sumar. Var talað um, að
hafa mótið í sambandi við ein-
hver stór hátíðahöld, t.d. 17. júni
hér eða Ólafsvökuna í Færeyjum.
Þá var rætt um, að skipti á hag-
nýtum upplýsingum á milli þess-
ara tveggja stúdentasamtaka
þyrftu að aukast á komandi ár-
um.
Verulegur hluti umræðnanna á
téðum fundi snerist þó að vonum
um það, á hvern hátt íslenzkir
stúdentar gætu stutt þá færeysku
í sambandi við samskipti við
stærri stúdentasamtök, og ríkti
einnig gagnkvæmur skilningur á
því sviði, en um aðgerðir af hálfu
íslenzkra stúdenta í því máli
verður ekki rætt hér. Það mál er
þó að sjálfsögðu í athugun.
I sambandi við fundinn færði
Hans J. Debes Stúdentaráði að
gjöf færeyskan borðfána með á-
letrun á fæti frá félagi sínu, og
veitti formaður S.H.I. gjöfinni
viðtöku og bað Hans flytja fé-
lagi sínu kærar þakkir og kveðj-
ur.
Síðasta daginn, áður en gest-
irnir fóru, skoðuðu þeir íslenzka
útvarpið, en annar þeirra vann
einmitt við færeyska útvarpið í
sumar. Kveðjur urðu með ein-
stökum virktum, og var margt
lagið tekið og einkum teknir fyrir
gamlir færeyskir söngvar.
Þegar þeir fóstbræður yfirgáfu
Reykjavík, höfðu þeir meðferðis
Stúdentahandbókina íslenzku, og
var hverjum þeim, sem stúdents-
prófi lýkur í Færeyjum að vori,
ætlað eintak að gjöf frá Stúd-
entaráði.
Söngbók til sölu
Það er löngu kunnugt, að söng-
bókin Carmina canenda er eitt
ágætasta rit sinnar tegundar.
Stúdentar eldri sem yngri, sem
kynnzt hafa henni, hafa allir lok-
ið upp einum munni um kosti
hennar. Hún leysti af hólmi hina
ágætu brennivínsbók, sem gegnt
hafði þörfu hlutverki í félagslífi
stúdenta um langt skeið. Stúd-
entaráð hefur nú fest kaup á af-
gangi upplags bókarinnar og sel-
ur við vægu verði í Bóksölu. Hér
með er skorað á alla þá stúdenta,
sem ekki hafa komizt höndum
yfir bókina, að bregða við hart
og títt og renna í Bóksöluna og
reiða fram fé nakkvart fyrir bók-
ai’kornið.
Málei'ni stúdentagarðanna
Það Stúdentaráð, er nú situr, hef-
ur látið málefni stúdentagarð-
anna talsvert til sín taka. Þar
koma þó að sjálfsögðu aðrir að-
ilar, sem að vísu eru að meira
eða minna leyti kosnir af Stúd-
entaráði, öllu meira við sögu,
það er að segja Garðstjórn og
hótelstjórn.
Nú í vor var gerð endurbót á
snyrtingum og böðum á Nýja-
garði, enda var ekki vanþörf á.
Því miður mun eftirlit með vinnu
þeirri, er þarna var leyst af hendi,
algjörlega hafa ferið í handaskol-
um, enda er kostnaðarreikning-
ur þessara framkvæmda upp á
meira en 1.100.000.00 krónur og
munu þó ekki öll kurl komin til
grafar. Að dómi byggingafrcðra
manna hefou framkvæmdir þess-
ar þó vart átt að kosta meira en
hálfa milljón. Má nefna sem
dæmi, að allar gólf- og veggflísar
voru keyptar í smásölu. Er sér-
stök ástæða til að harma, að
svona skyldi til takast, en málið
er ekki sízt alvarlegt fyrir þá
sök, að í hlut á húsameistari rík-
isins. Til viðgerðanna á Nýja-
garði voru veittar 1.000.000.00
kr. á fjárlögum þessa árs, og er
sama upphæð tilgreind í fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár. Er það
vel.
Hótelreksturinn á Görðunum
gekk sæmilega í sumar, en þó
kvartar núverandi hótelstjóri,
Kristján Torfason, stud. jur., yfir
þvi, að ferðamanna- ,,vertíðin“
styttist fremur en lengist. Stúd-
entar höfðu efstu hæð Nýjagarðs
út af fyrir sig, sum herbergin þó
því miður ekki allt sumarið.
Garðstjórn fékk því áorkað nú
í haust, að inn í fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar fyrir
næsta ár var tekinn styrkur að
upphæð kr. 107.000.00, sem
renna skal til mötuneytisins á
Gamlagarði í vetur. Tryggvi Þor-
finnsson rekur mötuneytið sem í
fyrra. Virðist fæði allsæmilegt og
er líka heldur ódýrara en annars
staðar í borginni, einkum ef
keyptir eru fæðismiðar (þá er
verð 60 máltíða ca. kr. 2440.00).
Þá er það til tíðinda, að húsaleiga
á Garði hækkaði ekki þetta
haustið, er kr. 800.00. Nú er Jó-
hannes Elíasson bankastjóri for-
maður Garðstjórnar, og hefur
samvinna Stúdentaráðs við hann
verið góð.
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar fyrir almenning á
vegum Stúdentaráðs, sem mikilla
vinsælda nutu í fyrravetur, eru í
þann veginn að hefjast á ný. Er
gert ráð fyrir, að Sigurjón
Björnsson, sálfræðingur, ríði á
vaðið að þessu sinni.
Lánamálin
Stúdentaráð gerir ráð fyrir að
gangast fyrir ráðstefnu um lána-
mál stúdenta e-n tímann fyrir
jól. Hagkönnun sú, er fram fór
meðal stúdenta í nóv. 1964, náði
til 331 stúdents við Háskóla Is-
lands. Þórir Bergsson trygginga-
fræðingur tók að sér að vinna úr
gögnum þeim, er bárust, en sund-
urliðaðar niðurstöður ásamt
greinargerð hafa því miður ekki
borizt enn nú um miðjan októ-
ber. Hefur því ekki reynzt unnt
að boða til framangreindrar
ráðstefnu ennþá. Stúdentaráð
sendi dagblöðunum í vor til birt-
ingar stutta greinargerð um lána-
mál stúdenta vegna umræðna á
Alþingi um breytingar á lækna-
skipunarlögum.
Fulltrúi í Háskólaráð
Kjörtímabili Auðólfs Gunnars-
sonar, stud. med., sem fulltrúa
stúdenta í Háskólaráði lauk um
miðjan september s.l., og kaus
Stúdentaráð í hans stað Björn
Teitsson, stud. mag.
Utanríkismálarita.vi ráðinn
Ráðinn hefur verið sérstakur ut-
anríkismálaritari Stúdentaráðs,
Ástráður B. Hreiðarsson, stud.
med. Er hér um að ræða hið
merkasta nýmæli, sem þegar hef-
ur orðið til þess, að fjölda bréfa
erlendis frá, sem sennilega hefðu
að öðrum kosti gleymst, hefur
verið sómasamlega svarað.
Stjórnin sem féll
Síöan Hagsmunafélag Garðbúa
var stofnað, eru liðnir lið-ega níu
mánuðir, þegar þetta er ritað.
Þessir níu mánuðir hafa ekki ver-
ið með öllu þrautalausir fyrir
stjórnarmeðlimi félagsins, fimm
að tölu. Þegar stjórnin var valin,
var þess vandlega gætt, að setja í
hana ólofað fólk eingöngu. Síðan
hefur stjórn þessi gengið út á
einu bretti að segja má. Er nú
enginn þar ólofaður og aðeins
einn ógenginn í hjónabandið.
Komið hefur til mála, að setja
liðið í hjónagarðsnefnd, og er það
mál í athugun. Hins vegar virðist
líf Hagsmunafélagsins í stórri
hættu, þrátt fyrir greinilega við-
leitni stjórnarmeðlima til þess að
halda við lífinu almennt.
Viðutan prófessor: — Fröken,
hvað eruð þér að gera í rúminu
mínu?
Fröken: — Ha, mér fellur vel við
þetta rúm, mér geðjast vel að ná-
grenninu. Mér fellur vel við þetta
hús og þetta herbergi. Og, hvern-
ig sem þessu öllu líður, er ég kon-
an þín.
Viðutan prófessor: — Ég gleymdi
að taka regnhlífin með mér í
morgun.
Kona hans: — Hvenær saknaðir
þú hennar?
Prófessorinn: — Þegar ég teygði
mig upp til þess að loka henni,
eftir að það hafði hætt að rigna.
Kona viðutans prófessors:
— Bíddu, Jón. Ertu viss um að
þú hafir gleymt öllu?