Fálkinn - 15.12.1928, Blaðsíða 18
18
F Á L K I N N
Fálkinn ]>ykist geta gengið að ])ví
vísu, að flestum muni þykja fróð-
legt að sjá, hvernig umhorfs er i sala-
kynnum, sem þjóðin leggur æðsta
manni sínum til. Bústaður forsætis-
ráðherra íslands er sá staður, sem
svarar til konungshalla og forsetabú-
staða annara ríkja, þvi konungsríkið
ísland hefir aldrei átt konung, sem
búsettur væri í landinu, og á lýðveld-
istímabilinu vantaði bæði forseta og
framkvæmdavald. — Ráðherrabústað-
urinn i Tjarnargötu hefir undantekn-
ingariítið verið bústaður æðstu manna
þjóðarinnar síðan stjórnin fluttist inn
í landið. Hefir Indriði Einarsson, sem
um langt skeið var umsjónarmaður
hússins, skrifað sögu hans i fáum
dráttum og fer hún hjer á eftir. En
myndirnar hefir tekið Jón Kaldal
ljósmyndari.
— Ráðherrabústaðui’inn stóð
fyrst vestur á Flateyri og var í-
búðarhús Ellefsens hvalfangara.
Hvalfangarastöðin lagðist niður
og Hannes Hafstein fjekk húsið
og flutti það lil Reykjavíkur og
setti það upp sunnarlega í Tjarn-
argötu. Rjuggu þau Hannes Haf-
stein og frú Ragnheiður Haf-
stein fyrst í húsinu. Þau tóku
á móti Friðrik áttunda þegar
hann kom hingað 1907, og var
það almannarómur, að hjón sem
betur voru fallin til jiessa væri
ekki hægt að fá á öllu landinu,
og frúin engu síður valin en
hann. 1909 fjell Hannes Hafstein
og Björn Jónsson varð ráðherra.
Hann þurfti hússins með. —
Tryggvi Gunnarsson hafði hvað
eftir annað orð á því, að „Hann-
es frændi hlyti að verða gjald-
þrota, undir eins og hann Ijeti
af embætti". Hvað sem til var í
því þá var hitt vist, að hann
hafði varið of fjár til ráðherra-
bústaðarins og kaupa á innan-
stokksmunum alls konar og haft
risnu inikla, því hann var rík-
lundaður inaður. Einn af vinum
Björns Jónssonar koin þá til
hans og benti honuin á, að land-
inu væri enginn sómi að því, að
láta fráfarandi ráðherra verða
fyrir stórkostlegu efnatjóni af
ráðherrastarfinu, og að landið
ætti —■ fyrir utan latínuskólann
—■ aðeins tvær opinberar hygg-
ingar, sem háðar hefðu verið
bygðar fyrir betrunarhús. Úrslit-
in urðu þau, að landið keypti
húsið til ráðherrabústaðar, fyrir
50.000 krónur. Húsbúnaður í
móttökuherbergin var tekinn af
húsbúnaði þeim, sem keyptur
hafði verið fyrir komu I'riðriks;
áttunda og borðbúnaður söinu-
leiðis. Síðan hefir þetta verið
tekið út við hver ráðherraskifti.
Ein ráðherrafrúin skilaði meðal
annars brotum af glasi, sem
brotnað hafði og hjóst við að
borga glasið. — Þar er fálka-
merkið á öllu þvi sem inerkt
verður.
Eftír Björn Jónsson kom
Kristján Jónsson dómstjóri og
þá Hannes Hafstein í annað
sinn. En eftir hann kom Sigurð-
ur Eggerz og þá Einar Arnórs-
son. Um það leyti ^sem Einar
Arnórsson varð, ráðherra fóru
peningar að falla í verði, kol
urðu ákaflega dýr og erfilt að
hita húsið upp, svo hann kall-
aði það í fyndni ishúsið.
Þegar hann Ijet af stjórn urðu
ráðherrar þrír og Jón Magnús-
son varð forsætisráðherra. Hann
flutti sig aldrei í ráðherrabú-
staðinn því þau hjónin, einkum
frú Þóra, kunnu betur við sig
lieiiua, og ráðherrabústaðurinn
var svo leigður hinum váðherr-
unum. Fyrst bjó þar Sigurður
Jónsson frá Ystafelli og kona
hans Kristhjörg Marteinsdóttir,
hjón norðan úr landi. Þá voru
settir fyrsta flokks ofnar í hús-
ið. Því er vert að haldá á lofti,
sem frú Kristbjörg sagði við
kunningja sinn: „Jeg hefi hugs-
að mjer að vera svo í þessari