Fréttablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 01.10.2009, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 1. október 2009 13 FLUG Flugfélagið Air Atlanta mun bæta þremur Boeing 747-400- þotum í flota sinn á næstu tveimur mánuðum. Félagið hefur verið með eina til þrjár slíkar þotur í rekstri en þær verða nú fimm. Ráðning flugmanna stendur yfir og koma nokkrir þeirra úr röðum fyrrver- andi starfsmanna Icelandair. Air Atlanta er nú með um tuttugu þotur í rekstri, flestar af gerðinni Boeing 747 en nokkrar af gerðinni Airbus A300-600. Félagið sinnir verkefnum víða um heim, þar á meðal í Saudi-Arabíu, Mal- asíu og Sameinuðu furstadæmun- um. Að taka þrjár Boeing 747-400- þotur í notkun er stórt skref og kemur Air Atlanta aftur í fremstu röð flugfélaga á leiguflugsmarkaði á heimsvísu, segir í nýjasta frétta- blaði Félags atvinnuflugmanna. Þar segir jafnframt að þjálfun flugmanna á vélarnar sé lokið. Félagið er að ráða mannskap á aðrar vélar og eru meðal annars níu manns frá Icelandair að hefja störf hjá Air Atlanta um þessar mundir sem verktakar. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru bjartsýnir á framhaldið nú þegar vélarnar eru að fara í verkefni og sá kostnaður sem fylgir innleið- ingu þeirra er að mestu að baki. - shá Bætir við sig þremur stórum þotum og ræður flugmenn vegna aukinna umsvifa: Air Atlanta bætir flugvélum við flotann BOEING 747-400-ÞOTA Air Atlanta bætir við þrem þotum af þessari gerð og ræður flugmenn vegna aukinna umsvifa. VIÐSKIPTI Kaupsamningur milli Björgólfsfeðga og félags Ingimars H. Ingimarssonar, sem Ingimar segir falsaða, voru undir ritaðir í viðurvist rússneskra meðeigenda. Opinber sérfræðideild í Péturs- borg hefur einnig staðfest að und- irritunin tilheyri Ingimari. Svo segir í greinargerð frá Björgólfsfeðgum, vegna frétta- flutnings um að þeir hafi falsað undirskrift Ingimars meðan hann var rúmliggjandi vegna veikinda í öðru landi. Jafnframt benda þeir á að íslenska rannsóknarlög- reglan hafi ekki séð ástæðu til að skoða málið á sínum tíma. - kóþ Björgólfsfeðgar um Ingimar: Vitni eru til að undirskriftinni INGIMAR H. INGIMARSSON Björgólfs- feðgar vísa á bug fréttum um að kaupsamningur við Ingimar hafi verið falsaður. FÓLK Göngu þeirra Jóns Björns- sonar og Hjálmars Forna Stein- grímssonar frá Ísafirði til höfuð borgarinnar lauk á Kaffi Reykjavík seinni partinn á sunnudag. Fréttablaðið greindi frá því fyrir helgi að þeir félagar hefðu ákveðið að ganga leiðina, sem er 450 kílómetrar, til að fá sér ís í Reykjavík. Böðvar Þórisson, forstjóri Emmessís, tók á móti þeim Jóni og Hjálmari þegar þeir komu til Reykjavíkur. Heimsóttu þeir ísbúðina í Álfheimum og Kaffi Reykjavík, sem allar vegalengdir á landinu miðast við. Á þriðjudag var Jóni og Hjálmari svo boðið í sýningarferð um Emmess-ísgerð- ina, þar sem þeir fengu að bragða á ísnum. - kg Ístúr frá Ísafirði til Reykjavíkur: Fengu að skoða ísgerðina FERÐALOK Jón og Hjálmar, ásamt forstjóra Emmessís, fengu sér ís í Álfheimum. MENNING Í tilefni af áttræðis- afmæli Högnu Sigurðardóttur í júlí sem leið ætlar Arkitekta félag Íslands að halda yfirlitssýningu um verk þessa heiðurs félaga síns. Að því er fram kemur í bréfi frá sýningarnefnd Arkitektafélags- ins til Kópavogs bæjar er Högna fyrsta konan í stétt arkitekta til að leggja eigin hönnun fyrir byggingarnefnd. Einnig kemur fram að flest verk Högnu á Íslandi séu í Kópa- vogi. Þar á meðal sé Sundlaug Kópavogs. Bæjarráð segir að vegna aðhalds sé ekki hægt að styrkja sýninguna um Högnu. - gar Heiðursfélagi áttræður: Yfirlitssýning um Högnu Stal víni í Mjóddinni Brotist var inn í áfengisverslun ÁTVR við Stekkjarbakka í fyrrinótt. Á upp- tökum úr eftirlitsmyndavélum sést karlmaður brjóta rúðu með gang- stéttarhellu og hlaupa á brott með fangið fullt af vínflöskum. Þjófurinn er ófundinn. LÖGREGLUFRÉTTIR AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000 Þú færð meira fyrir Aukakrónur Þú safnar Aukakrónum þegar þú notar A-kortið þitt og fyrir þær getur þú keypt allt mögulegt sem þig vantar eða langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Sæktu um A-kort á aukakronur.is A-kortin Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig N B I h f. (L an d sb an ki nn ), k t. 4 71 0 0 8 -2 0 8 0 . E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 2 8 3 * Á m yn d un um s ér ð u hv að þ ú g æ ti r k ey p t h já s am st ar fs að ilu m A uk ak ró na m .v . 1 5 0 þ ús un d k r. in nl en d a ve rs lu n á m án uð i, þ .a . 1 /3 h já s am st ar fs að ilu m . S já n án ar á a uk ak ro nu r.i s.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.