Fréttablaðið - 01.10.2009, Side 16

Fréttablaðið - 01.10.2009, Side 16
16 1. október 2009 FIMMTUDAGUR BRETLAND, AP Gordon Brown, for- sætisráðherra Bretlands og for- maður Verkamannaflokksins, vill að kjósendur geti rekið þingmenn sem verða uppvísir að því að brjóta lög. Þetta kom fram í ræðu hans á árlegum landsfundi Verkamanna- flokksins í Brighton á þriðjudag. Fjölmargir þingmenn urðu nýverið uppvísir að því að láta þingið greiða ýmsan kostnað fyrir sig sem ekki bar að greiða, og skók hneyksli vegna þessa þingið í sumar. Brown reynir nú að snúa vörn í sókn fyrir kosningar sem haldnar verða í Bretlandi næsta vor. Kannanir benda til þess að Verkamannaflokkurinn muni missa meirihluta sinn í kosning- unum. Flokkurinn hefur verið við völd frá árinu 1997. Fréttaskýrendur sögðu greini- legt að tillögur Browns væru sér- hannaðar til að freista þess að auka vinsældir hans og Verka- mannaflokksins. Það mætti til dæmis sjá í tillögum um að hægt yrði að reka þingmenn sem verði- uppvísir af því að brjóta lög, sem og hugmyndum um að taka hart á málum ungra glæpamanna. Þá sagðist Brown vilja stöðva áform um útgáfu umdeildra per- sónuskilríkja, og hækka eftirlaun. - bj Gordon Brown snýr vörn í sókn og útlistar baráttumál í kosningum næsta vor á fundi Verkamannaflokksins: Brown vill að hægt verði að reka þingmenn TILLÖGUR Hugmyndir sem Gordon Brown kynnti í gær þykja sérhannaðar til að auka vinsældir Verkamannaflokksins í kosningum í vor. NORDICPHOTOS/AFP UMHVERFISMÁL Þingið í Liechten- stein samþykkti í sumar að draga mjög úr leyfilegri hámarks- geislun frá GSM-sendum og eru mörkin þar orðin mun lægri en í nágrannalöndunum. Einn staðall fyrir þessar geisl- anir er mældur með vöttum á fermetra. Liechtenstein ætlar að lækka leyfileg vött niður í 0,001 vatt á fermetra fyrir árið 2013. Í Evrópusambandinu og á Íslandi er viðmiðið tíu vött á fer- metra, en í Bretlandi 58. Liechten- stein var áður með sömu mörk og Sviss, 0,04 vött. „Við þessar aðstæður verð- ur ekki lengur hægt að að reka farsímakerfi,“ segir Christian Neuhaus, talsmaður símafyrir- tækisins Swisscom. Fjögur stór- fyrirtæki á símamarkaði hafa hótað að yfirgefa landið, þannig að þar yrði vart hægt að nota GSM-síma. Breytingarnar hefðu í för með sér að sendarnir yrðu margfalt fleiri, og veikari hver og einn. Þingið hefur brugðist við hót- unum fyrirtækjanna með því að biðja ríkisstjórn landsins að athuga kosti ríkisrekins farsíma- kerfis, sem leigði síðan út sendi- getu til einkafyrirtækja. Þingið tók þessa ákvörðun með tilvísun til heilsufars almennings, en víða er deilt um hugsanlega skaðsemi GSM-bylgna. - kóþ Liecthenstein setur ströngustu reglur í heimi, þrátt fyrir hótanir símafyrirtækja: Smáríki gegn GSM-sendum GSM-SENDAR Á VALHÚSASKÓLA Á Íslandi eru viðmiðunarmörk útgeisl- unar GSM-senda 10 vött á fermetra en í Liechtenstein er verið að lækka þau í 0,001 vött. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EFNAHAGSMÁL Félag íslenskra stór- kaupmanna vill meiri áherslu á að grundvöllur lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði styrktur. Þetta kemur fram í tillögum FÍS um örvun efnahagslífsins. „Við teljum mjög mikilvægt að þessi fyrirtæki einmitt haldi sinni stöðu og styrk þannig að efna- hagslífið haldi áfram að snúast,“ sagði Margrét Guðmundsdóttir, formaður FÍS. Að sögn Almars Guðmundssonar, framkvæmdastjóra FÍS, er mikil- vægt að opinberir aðilar lækki hjá sér launakostnað um tíu prósent. Á árunum 2007 hafi einkageirinn dregist saman um fjörutíu prósent en ríkið vaxið um tíu prósent. Hann sagði fyrirtækin ekki þola frekari skattbyrðar og dró í efa að slíkar aðgerðir skiluðu árangri. Betra væri að leyfa atvinnulífinu að ná sér á strik og styrkja þannig skatt- stofna til lengri tíma. Almar sagði FÍS styðja áform um orkufrekan iðnað. Ekki síður væri mikilvægt að örva fjárfestingu á almennari máta. Í tillögum félags- ins felst meðal annars að skatta- afsláttur verði veittur til kaupa á hlutabréfum í einkafyrirtækjum og að launþegar fái beint í vasann fé sem atvinnurekendur greiði nú í ýmsa sjóði launþega. Þá er gert ráð fyrir flýtiafskriftum til að örva fjárfestingar og afnámi vörugjalda á fjárfestingarvörur. Almar sagði stöðugleika á vinnu- markaði áhyggjuefni. „Möguleg lausn gæti verið að tímabundið sé ákveðnum gjöldum, sem fara núna í sjóði launþega, veitt beint í launa- umslagið hjá launþegum,“ sagði Almar, sem kvað þarna til dæmis um að ræða framlag atvinnurek- enda í ýmiss konar starfsmennta- sjóði, sjúkrasjóði og orlofshúsasjóði. „Þarna gæti náðst tveggja til fjög- urra prósenta kaupamáttaraukning fyrir launþegana án þess að um sé að ræða kostnaðaraukningu fyrir atvinnulífið.“ Um skattaafslátt til hlutabréfa- kaupa sagði Almar tillögu FÍS fela í sér svipaða útfærslu og áður þekktist en að hún yrði víðtækari og næði bæði til einstaklinga og fjárfestingarfélaga. Miða mætti við tíu milljóna króna þak og eign- arhaldstíma til fimm ára. „Tíu milljónir eru mun hærra en við þekktum en það er líka vegna þess að við teljum mikilvægt að þessir aðgerðir bíti,“ útskýrði hann. FÍS leggur einnig til að skylt verði að bjóða til sölu á innlend- um mörkuðum fiski sem annars er fluttur úr óunninn í gámum. „Við teljum það jafnræðisatriði að þessi afli fari á markað og að það sé hægt fyrir innlenda fiskvinnslu að nálgast þennan afla og vinna á Íslandi með tilheyrandi fjárfest- ingu og atvinnusköpun í stað þess að hann fari óunninn út í gámum,“ sagði Almar Guðmundsson. gar@frettabladid.is Hið opinbera lækki útgjöld vegna launa Félag íslenskra stórkaupmanna vill að ríkið veiti skattaafslátt vegna hlutabréfa- kaupa og að launþegar fái beint ýmsar greiðslur sem renni í sameiginlega sjóði þeirra. Þetta er meðal tillagna félagsins til að smyrja hjól efnahagslífsins. ALMAR GUÐMUNDSSON „Það er hreinlega mjög áberandi ójafnræði í skattheimtu,“ sagði framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna um ný vörugjöld sem lögð voru á sumar matvörur en ekki aðrar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BARDAGAÆFINGAR Í SUÐUR-KÓREU Suður-kóreskir hermenn æfa sig í bardagalist ásamt dreng sem fékk að taka þátt í æfingunni með þeim. NORDICPHOTOS/AFP afmælishátíð Korputorgs um helgina afmælishátíð Korputorgs um helgina Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.