Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 18
18 1. október 2009 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Ágætt „Ég er óskaplega lítið inni í þessum menningarmálum en held að Tinna sé ágæt í því sem hún er að gera og þetta sé því ágætt,“ segir Hermundur Rósinkranz, talnaspek- ingur og miðill, um þá ákvörðun menntamálaráðherra að endurskipa Tinnu Gunnlaugsdóttur í embætti þjóðleikhússtjóra. „Ef menntamálaráðherra treystir henni þá er það gott. Nema þetta séu einhver krosstengsl, þá líst mér auðvitað ekki á það, en ég held reyndar að ekkert svoleiðis eigi nú við.“ Hermundur segist fara annað slagið í leikhús, síðast sá hann Hell- isbúann og þar áður sýningu Péturs Jóhanns. Báðar voru skemmtilegar að dómi Hermundar. Um Tinnu kveðst Hermundur hafa lítið að segja. Hann telji þó að hún vinni sín störf af heilindum. SJÓNARHÓLL SKIPUN ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRA HERMUNDUR RÓSINKRANZ Með fullri meðvitund „Yfirlýsingar forsætisráðherra fara ekki framhjá mér.“ ÖGMUNDUR JÓNASSON HEIL- BRIGÐISRÁÐHERRA VEIT HVER RÆÐUR Í RÍKISSTJÓRNINNI. Fréttablaðið 30. september Aftur best í heimi „Ísland er líklega besti staður í heimi til að reka gagnaver.“ JEFF MONROE, FORSTJÓRI VERNE GLOBAL, SEGIR ÞAÐ SEM ÍSLEND- INGAR VILJA HEYRA Í KREPPUNNI. Fréttablaðið 30. september „Ég er með 20 mánaða son minn, Jón Kristófer, í aðlögun á leikskólanum Sólhlíð sem gengur ljómandi vel. Hann var tvo tíma í leikskólanum í dag og ég tók hann með í vinnuna að þeim loknum: Hann svaf dúrinn sinn á svölunum hér á Þjóðminjasafninu, líklega fyrsta barnið sem gerir það,“ segir Ágústa Kristófersdóttir, sýningarstjóri á Þjóðminjasafninu. „Hér hjá okkur í Þjóðminjasafninu stendur ýmislegt til, við erum að setja saman vetrardagskrá safnsins, sem nær fram í maí. Nýjasta viðbótin við dag- skrána kallast Óþekkt augnablik, en það er ljósmyndasýning með myndum af fólki sem við vitum ekki hvert er. Við höfum fengið gesti safnsins til þess að leggja okkur lið og viðbrögð þeirra hafa verið mjög góð. Gestir hafa nafngreint fólk og sagt okkur hvar mynd- irnar eru teknar og fleira. Við ætlum að skipta út myndunum eftir þrjár vikur og halda þannig þessu samstarfi við gesti safnsins áfram. Grunnsýningin okkar er svo í þróun, við vorum að bæta við margmiðlunarefni um Bjarnastaðahlíðarfjalir sem eru miðaldafjalir úr Hólakirkju. Af viðburð- um á næstunni má nefna fyrirlestra- röð Sagnfræðingafélagsins, Hvað er kreppa?, sem haldin er hér í hádeginu á þriðjudögum hálfsmánaðarlega. Sólveig Ólafsdóttir mun fjalla um kreppukost í sínum fyrirlestri næsta þriðjudag. Ég bendi áhugasömum á að skoða heimasíðu safnsins, www.thodminjasafn.is, til að fá frekari upplýsingar um starfsemina.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÁGÚSTA KRISTÓFERSDÓTTIR HJÁ ÞJÓÐMINJASAFNINU Sonurinn sefur á svölum safnsins ■ Elstu smokkarnir sem vitað er um komu fram í Asíu, fyrir 15. öldina. Þeir voru úr innyflum dýra og náðu upphaflega aðeins yfir kónginn, en voru bundnir með borða fyrir neðan hann. Smokkar breiddust út í Evrópu á 16. öld í kjölfar útbreiðslu sýfilis. Með tímanum urðu smokkarnir full klæði, náðu ekki aðeins yfir kónginn. Fyrsti gúmmísmokkurinn var framleiddur árið 1855 og fyrstu latexsmokkarnir árið 1930. Smokkar eru taldir veita um 98 pró- senta vörn gegn getnaði. Þá veita þeir vörn gegn kynsjúkdómum. SMOKKAR AF KÓNGI Í FULL KLÆÐI Hvert á land sem franski ljósmyndarinn Bruno Compagnon fer er mynda- vélin alltaf með í för. Mynd- efnið er þó heldur óvenju- legt, því Bruno sérhæfir sig í að mynda kýr. Hann sinnti þessu starfi sínu og áhuga- máli hér á landi í sumar. „Á Íslandi getur maður séð mynd- ir af íslenska hestinum út um allt, en aðeins örfáar myndir af íslensku kúnum,“ segir Bruno. Hann hefur unnið sem ljósmynd- ari fyrir franskt landbúnaðar- blað. Áhugi hans á kúm byrjaði fyrst fyrir alvöru fyrir tæpum tveimur áratugum, þegar hann eyddi heilu ári í að ferðast um Frakkland til að mynda kúakynin 43 sem enn finnast þar á landi. Um helming- ur þeirra er í útrýmingarhættu vegna tilkomu verksmiðjubúa. „Hvert á land sem ég fer tek ég myndir af kúm,“ segir Bruno. „Ég komst að því að aðeins væri til eitt íslenskt kúakyn, en með ólíkum litbrigðum. Þá varð ég að koma til Íslands og mynda kýrnar.“ Gengisfall krónunnar gerði svo þetta ferðalag að raunhæfum möguleika, og Bruno komst hingað til lands í myndaferð ásamt konu sinni í sumar. „Við ferðuðumst um landið í fimmtán daga. Fyrir konuna mína var þetta frí, en fyrir mig var þetta fyrst og fremst tæki- færi til að mynda kýr og íslenska náttúru,“ segir Bruno. Hann segir kýr afar mismunandi eftir löndum, enda hafi þau kyn sem verði ofan á á hverju svæði oft aðlagast umhverfinu á ein- hvern hátt. Ekki sé víst að kúakyn ættað af láglendi gæti spjarað sig í fjalllendi, og öfugt. „Hvert kúakyn segir sögu land- búnaðar hvers héraðs, sögu bænda og aðferða sem þeir hafa beitt í aldanna rás. Kýrnar eru partur af menningarsögu okkar.“ Ísland er ekki eini viðkomu- staður kúaljósmyndarans Brun- os í sumar. Hann ljósmyndaði einnig spænskar kýr í sumar, og hefur nýlega heimsótt Króatíu og Búlgaríu í sama tilgangi. brjann@frettabladid.is Ævistarfið að mynda kýr BRUNO COMPAGNON Áhugi ljósmyndar- ans á kúm vaknaði fyrir tæpum tveimur áratugum. FORVITIN Þó að flestar íslensku kýrnar kipptu sér lítið upp við áhuga Bruno Compagnon á þeim þá var þessi forvitin um hvað hann væri að vilja. MYND/BRUNO COMPAGNON HEILLAÐUR Íslensk náttúra og íslenska kúakynið heilluðu Bruno Compagnon, sem vill heimsækja landið aftur sem fyrst. MYND/BRUNO COMPAGNON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.