Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 63

Fréttablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 63
FIMMTUDAGUR 1. október 2009 39 UMRÆÐAN Björg Blöndal skrifar um net- notkun Hvað getum við gert til að efla öryggi í tækni- og net- notkun barna og unglinga? Við þurfum að byrja á því að sá fræinu. Það gerum við með því að virkja þá sem eru í kringum okkur, til dæmis for- eldra, skólastjórnendur og alla sem geta komið að þessu verkefni, með jákvæðu hugarfari til að kenna okkur sem yngri erum að fara að með gát. Flas er ekki til fagnaðar og alls ekki þegar netið er annars vegar. Netið er uppfullt af fræðandi möguleikum og skemmtun. Netnotendur ættu hins vegar að gera sér ljóst að ekki eru allar upplýsingar á netinu réttar og þar leynast líka hættur á hverju strái. Ef við, börn og unglingar, eigum að varast þær þurfum við stuðning og fræðslu. Hana viljum við fá frá foreldrum okkar og við viljum líka fá að fræðast um þessi mál í skólanum en í raun ætti að setja örugga net- notkun barna inn í námskrá skól- anna sem skyldufag og byrja sem fyrst. Það sem við gerum á netinu endurspeglar okkur sjálf Tökum dæmi. Þú ert með Facebook-síðu, sem er læst öllum öðrum en „vinum“ þínum, og þú setur inn ljóta mynd af ein- hverjum bekkjarfélaga. Þú ert fullviss um að viðkomandi eigi aldrei eftir að sjá myndina en svo kemur annað í ljós. Þessi bekkjarfélagi er í heimsókn hjá einhverj- um af „vinum“ þínum (sem þú ert með inni á Facebook) og þessi „vinur“ skoð- ar svæðið þitt. Flettir í gegnum mynda- albúmin og klikk – kemur ljóta myndin ekki á skjáinn! „Vinurinn“ fer að hlæja og bekkjarfélaginn verður miður sín. Hvern- ig heldur þú að viðkomandi líði? Gleym- um því ekki að það er hægt að rekja tölvupóst og allar færslur sem settar eru inn á netsíður. Lærum að nota netið rétt Verum viss. Hugsum áður en við fram- kvæmum. Það er góð regla að skrifa ekki neitt inn á netið í reiði eða fljótfærni. Munum að það er ekkert einkalíf inni á net- inu þannig að þú þarft að passa þig hvað þú setur inn á það. Gullin regla er að hleypa engum inn á svæðið þitt sem þú þekkir ekki. Ég vil nota þetta tækifæri til að benda á heimasíðu Saft.is en hún er uppfull af fræðslu um örugga net- og tækninotkun barna. Þar er að finna netorðin fimm, net- heilræði og fleira. Ég hvet alla foreldra til að kynna sér þetta efni með börnum sínum. Slóðirnar eru: ■ http://www.saft.is/oruggnetnotkun/net- ordinfimm/ og ■ http://www.saft.is/oruggnetnotkun/fyrir- foreldra/netheilraedi Ég vísa að lokum í áskorun ungmenna- ráðs Saft þar sem skorað er á skólastjórn- endur að halda sérstaka þemaviku nú í haust um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga. Höfundur er nemandi í 8. bekk Austurbæj- arskóla og meðlimur í Ungmennaráði Saft. Öryggi og hegðun barna á netinu UMRÆÐAN Kolbrún Baldursdóttir skrifar um fjölmiðla Það er mat margra sem komnir eru fram á og yfir miðjan aldur að sá hluti Morgunblaðsins sem hvað erfiðast sé að láta framhjá sér fara sé minningargreinarnar. Tak- ist ekki að fylgjast með andlátstil- kynningum eða skanna minningar- greinar reglulega sé ávallt sú hætta fyrir hendi að andlát gamalla vina, kunningja eða fólks sem teng- ist vinum og vandamönnum fari einfald- lega framhjá manni. Pínleg- ar aðstæður geta skapast þegar spurt er t.d. „hvernig hefur mamma þ í n þ a ð ? “ og viðkom- andi svarar: „hún er látin.“ Til að fyrirbyggja þetta vilja margir, og þá sérstaklega þeir sem komnir eru á þann aldur að þeir eru farnir að sjá á eftir jafnöldrum yfir móðuna miklu, fletta minningargreinahluta Morgunblaðsins helst daglega. En hvað er nú til ráða ef þetta sama fólk er kannski mjög ósátt við ráðningu Davíðs Oddssonar í ritstjórastól Moggans og langar jafnvel hvað mest til að segja upp áskriftinni? Þessir einstaklingar þurfa að velja á milli þess að: 1. Sætta sig við ráðningu fyrr- verandi formanns Sjálfstæðis- flokksins í ritstjórastól „Blaðs allra landsmanna“ og fá áfram sendan Moggann með minningargreinum og öðru því sem ritstjórnin kýs að birta. 2. Að segja upp áskriftinni og auka þannig líkurnar á að finna sig í ofangreindum aðstæðum þar sem andlát einhvers kunnugs hefur farið framhjá þeim. Ein lausn á þessu er sú að Frétta- blaðið taki það upp hjá sér að birta minningargreinar. Þá skapast þeir valmöguleikar að fólk getur ákveðið hvort það vilji birta eftirmæli ást- vina sinna í Morgunblaðinu, Frétta- blaðinu eða í báðum þessum blöð- um. Telja má víst að Fréttablaðið muni auka vinsældir sínar til muna birti blaðið minningargreinar og mörgum kann þá að finnast að með því uppfylli það þessa sammann- legu þörf að fylgjast með fréttum af mönnum og málefnum. Höfundur er sálfræðingur. Tímabært að Fréttablaðið birti minn- ingargreinar KOLBRÚN BALDURSDÓTTIR BJÖRG BLÖNDAL Auglýsingasími – Mest lesið Nýtt. Advanced Night Repair Synchronized Recovery Complex Á grundvelli tímamótarannsókna á genum þeim er stjórna lífsklukku okkar og því mikilvæga hlutverki sem þau gegna í viðgerðum á erfða-efni húðarinnar (DNA), hefur Estée Lauder nú framleitt einhverja áhrifamestu öldrunarvörn sem fram hefur komið fyrir húðina. Notaðu þessa frábæru vöru á hverjum degi til að stuðla að samfellu í viðgerð á ummerkjum fyrri skemmda sem orðið hafa vegna mikils umhverfisáreitis – útfjólublárra geisla, reyks, mengunar, jafnvel tilfinningastreitu. Líttu á þetta sem „tryggingu“ fyrir húð sem virðist yngri og við betri heilsu dag eftir dag. ALVÖRU FULLYRÐINGAR STUDDAR ALVÖRU VÍSINDUM Leitaðu uppi www.esteelauder.com á vefnum til að fræðast betur um þessa frábæru nýjung sem húð þín ætti ekki að vera án. ER Í RAUN OG VERU HÆGT AÐ GERA VIÐ DNA-SKEMMDIR? VÍSINDAMENN OKKAR TELJA SVO VERA Allt þetta fyrir þig ef þú kaupir vörur frá Estée Lauder fyrir 5.500 eða meira í Lyfju Lágmúla, Lyfju Smáratorgi og Lyfju Selfossi dagana 1. – 7. október. Gjöfin inniheldur: Daywear Plus 15ml – dagkrem Idealist 7ml – kraftaverkakrem Gentle Eye Makeup Remover 30ml – augnfarðahreinsi Silky Eyeshadow duo – tvo augnskugga Pure Color Crystal Lipstick – varalit 301, crystal baby Projectionist Mascara – svartan maskara Fallega snyrtitösku og snyrtibuddu. Verðgildi kr. 22.245.- Meðan birgðir endast.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.