Fálkinn


Fálkinn - 15.03.1961, Síða 30

Fálkinn - 15.03.1961, Síða 30
SÍGAUNASTULKAN Frh. af bls. 12 — Jú, þakka yður fyrir. Hún hljóp léttilega á undan honum upp hallann, og hann hugsaði: — Guð hjálpi mér. Hvers vegna í ósköpunum hefur hún gifzt þessum bjána? Alistair gekk í áttina að stórum klett- um. — Hér skulum við setjast. Svo skul- uð þér segja mér það, sem þér komuð til að segja mér. — Þér vitið það þá þegar? — Ég veit alltaf, þegar eitthvað ó- þægilegt eða sorglegt er í vændum. Þetta er eitt af því sorglega, ekki satt? Þetta með Dickie? — Hann gekk undir smá uppskurð, sem alls ekki var hættulegur. En hjarta hans hlýtur að hafa verið veikt, því hann dó við deyfinguna. Hann vissi varla hvað hann hafði bú- izt við að sjá í andlitsdráttum hennar, en það var a. m. k. ekki þessi undarlega þreyta, sem nú breiddist yfir- andlit hennar. Hann heyrði hana tauta: — Aftur bið, svo löng ... svo löng ... Hún leit upp: — Já, hvað var það fleira, sem þér vilduð segja mér? — Aðeins, að það var einhver, sem varaði hann við þessum uppskurði. Ein- hver hjúkrunarkona. Hann hélt, að það væruð þér. Var það rétt? Hún hristi höfuðið. — Nei, það var ekki ég, En ein frænka min er hjúkr- unarkona. Við erum fljótt á litið tölu- vert líkar. Það hefur áreiðanlega verið þess vegna, að hann hélt að það væri ég. Hún leit aftur á hann. — En það skiptir auðvitað ekki máli hvor okkar það var, sem aðvaraði hann. Skyndilega urðu augu hennar stór af undrun og hún greip öndina á lofti: — Ó, sagði hún, — ó, þetta var undarlegt ... þér skiljið ekki ... Það kom fát á Macfarlane. Hún starði stöðugt á hann. — Ég hélt, að þér mynduð gera það ... Þér hefðuð átt að gera það .. . Útlit yðar bendir til að þér hafið ... að þér hafið einnig ... — Að ég hafi hvað ...? — Gáfuna . . . eða bölvunina, ef þér viljið heldur nefna það því nafni. Ég held, að þér hafið hana einnig. Horfið fast á holuna í steininum hérna. Þér skuluð ekki hugsa um neitt sérstakt, bara horfa ... Já, ekki satt! Hún hafði tekið eftir að honum brá ofurlítið. — Þér sáuð dálítið, er það ekki? — Það hlýtur að hafa verið ímyndun. Mér sýndist andartak, að holan væri full af blóði. Hún kinkaði kolli. — Já, ég vissi að hér hefðuð hana ... gáfuna. Þetta er fórnarstaður hinna fornu sóldýrkenda. Ég vissi það áður en nokkur sagði mér það. Og stundum veit ég nákvæmlega hvernig þeim leið við athöfnina — næst- um eins og ég hefði sjálf verið þar. Og það er eitthvað við mýrina, sem töfrar mig og fær mig til að finnast að hér eigi ég heima ... En það er ósköp eðli- legt að ég hafi gáfuna, því að ég er Ferguesson. Margir í ætt minni hafa verið skyggnir. og mamma var miðill, þar til hún giftist. Hún hét Christine og var töluvert þekkt. — Það, sem þér nefnið gáfuna, er það hæfileikinn til að sjá inn í framtíðina? — Já, bæði inn í framtíðina og for- tíðina, það skiptir ekki máli, hvort er. T. d. sá ég að þér undruðust hvers vegna ég giftist Maurice — jú, það gerðuð þér. — Það var einfaldlega af því að ég veit, að það bíður hans eitthvað hræðilegt ... En með þeirri gáfu, sem ég er gædd, hlýt ég að geta hindrað það — ef ein- hver getur það þá ... Ég gat ekki hjálp- að Dickie, því að Dickie vildi ekki skilja ... Hann var hræddur ... Hann var einnig mjög ungur. — 22 ára ... — Og ég er þrítug. En það var nú ekki það, sem ég átti við. Fólk getur verið aðskilið á svo margan hátt. Að- skilnaður í hinni venjulegu tilveru með fjarlægð, stétt og aldri er ekki svo þýð- ingarmikill, en aðskilnaður í tíma og rúmi er þýðingarmikill. Hún virtist vera í þungum þönkum . . . Bjölluhljóm- ur frá húsinu kom þeim til sjálfra sín á ný. Undir borðum athugaði Macfarlane Maurice Haworth í laumi. Hann elsk- aði augsýnilega konu sína mjög heitt. Augu hans lýstu hundslegri tryggð. Mac- farlane tók einnig eftir hvað Alistair var blíð við hann, og þegar hún talaði við hann, virtist honum ástúð hennar næstum móðurleg. Hann kavddi strax að afloknum morgunverði. — Ég bý niðri á kránni í einn eða tvo daga. Mætti ég heimsækja yður aft- ur? Ef til vill einhvern tíma á morgun? — Auðvitað, en .... — En hvað? Hún strauk hendinni yfir augun. — Ó, ég veit það ekki, mér fannst bara allt í einu að við ættum ekki að sjást framar .. . það var allt og sumt ... Verið þér sælir. Hann gekk hægt eftir veginum. Hon- um fannst köld hönd grípa um hjarta. sér. Það gat ekki verið það, sem hún sagði ... en ... Um leið þaut mótorhjól fram úr beygjunni. Hann kastaði sér á síðasta augnabliki upp að limgirðingunni .. . Undarlegum fölva skaut upp í kinnum hans . .. III. — Guð minn góður, taugar mínar hljóta að vera í megnasta ólagi, hugsaði Macfarlane, þegar hann vaknaði næsta morgun. Hann fór rólega yfir atburði síðastliðins dags í huga sér. Mótorhjólið, leiðin að kránni og hina skyndilegu þoku, sem skall á, og olli því að hann villtist og reikaði um með þá óhugnan- legu tilfinningu að rétt hjá honum væri hættulegur pyttur. Síðar reykháfurinn, sem hafði losnað af þaki kráarinnar og næstum því lent á honum, brunalyktina í herberginu hans um nóttina, sem staf- aði af glóandi kolamola á teppinu fyrir framan arininn. Þetta var ef til vill ekk- ert merkilegt, það var aðeins þetta, sem hún hafði sagt, og svo sú staðreynd, sem hann hafði hingað til ekki viljað viður- kenna, að hún sá óorðna hluti. Hann sparkaði af sér sænginni. Hann varð að heimsækja hana og það strax. Það myndi brjóta töfrana, það er að segja, ef hann næði lifandi heim til hennar .. . Almáttugur Guð, hvað hann gat verið kjánalegur! Hann gat næstum ekkert borðað af morgunverðinum. Klukkan tíu var hann þegar á leið heim til hennar. Klukkan hálf ellefu þrýsti hann fingrinum á dyrabjölluna hjá henni. Þá fyrst gaf hann sér tíma til að anda léttara. — Er frá Haworth heima? Sama roskna konan, sem hafði talað við hann daginn áður, lauk upp dyrun- um. En í dag var andlit hennar mjög breytt ... það var afskræmt af sorg. 30 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.