Fálkinn


Fálkinn - 15.03.1961, Qupperneq 32

Fálkinn - 15.03.1961, Qupperneq 32
Afturgöngur - Framh. af bls. 13. ar skeljar slökkva til þeirra undirdeilda stjarnheims sem nefndur er kirkjugarð- urinn. Þegar um sálir er að ræða sem hafa náð langt á þroskabrautinni, eru bókstaf- lega engin efnisleg hugsanaáhrif eftir til að mynda stjarnsviðslíkamann eftir að sálin hefur horfið úr honum. Hærra eðli þess hefur gert að engu hin lág- sigldu sterku áhrif þess. Þegar um er að ræða sálir, sem hugsa mikið um efn- islegar nautnir og „lystisemdir" verður stjarnlíkamsgerfið mikið sterkara og varanlegra. í síðara tilfellinu geta þess- ar lægri hugsanasveiflur dvalið í hinum yfirgefna stjarnlíkama í þó nokkurn tíma og þannig mætti ætla að sálin dveldi enn í honum. Orka þessara líkamsforma minnkar stöðugt, en í sumum tilfellum endist hún í tiltölulega langan tíma. Venjulega dvínar þetta afl eins og áður segir en í vissum tilfellum er því eytt, eins og LAUNDROMAT ÞVOTTAVÉLIN er einhver sú fullkomnasta, sem völ er á. ■ HAGKVÆMIR GREIÐSLUSKILMÁLAR Sölusta&ir: ORÁTTARVÉLAR H.F. HAFNARSTRÆTI 23 - SÍMI 18395 KAUPFÉLÖGIN 32 FÁLKINN þegar kol brennur upp, þegar eldur er lagður að því. Þetta á sér stað fyrir til- verknað og bænir fólks í jarðheimi. Þessi orka eyðist einnig oft fyrir til- verknað miðilshringa eða fólks á mið- ilsfundum. Hið sálræna afl, sem þannig er leyst úr læðingi í sameiningu með sterkri hugareinbeitingu hjá fólki á jarðsviðinu og stjarnsviðinu geta orsak- að það fyrirbrigði hjá hinum síðar- nefnda, að hann íklæðist holdi og birt- ist hinum. fyrrnefnda að litlu eða miklu leyti. Einnig getur hinn framliðni tek- ið á sig líkamsgerfi miðilsins og þann- ig tjáð sig viðstöddum um stundarsak- ir. f slíkum tilfellum reynir hinn fram- liðni að gera vart við sig með orðum, ósjálfráðri skrift, banki eða öðrum ráð- um. En þótt prýðisárangri sé náð verð- ur þetta ávallt veiklulegt og villukennt og sá sem er viðstaddur slíkan atburð getur ekki varizt þeirri hugrenningu að eitthvað hafi verið undarlegt við þetta allt saman, eitthvað sem vantað.. í nokkrum tilfellum eru endurminning- arnar það sterkar, að hinn framliðni getur svarað spurningum með sæmilegri nákvæmni. En jafnvel þá skyggir skuggi hins óraunverulega á áhrif þessa á at- hugulan áhorfanda. Minnstu þess að mörg önnur tilfelli eru til um birtingu anda að nokkru eða öllu leyti, en margt það sem álitið er vera fyllilega raunverulegt er aðeins skuggi þeirra vera sem áður dvöldu á stjarnsviðinu. Enn fremur taka þessar verur að láni hugsanir og hugmyndir miðlanna og þeirra sem viðstaddir eru til viðbótar óljósra minninga sinna og verða á þann hátt nokkurs konar svika- mylla. Þessi líkamsgerfi hafa raunverulega enga sál. Sál sú er áður byggði það, er farinn til æðri sviða, og er ekki kunn- ugt um gerðir fyrra líkamsgerfis síns. Það er meðaumkunarvert að vera vitni að því þegar þessi líkmsgerfi koma fram og eru álitin vera sálir framliðins ætt- ingja eða vinar. Þekkingarskortur á hin- um duldu leiðum gefur oft slíkum fyrir- brigðum greiðan aðgang að fólki. Hinn sanni dulspekingur er aldrei blekktur á þennan hátt. Þessi líkamsgerfi eru ekki fremur „framliðið fólk“ en lík jarðarbúa í kirkjjugarðinum, þó viðloðndi lífsþrótt- ur þess geri því kleyft að hreyfa sig um. BROÐURLEITIN - Framh. af bls. 21. hjálp. Og hann reyndi að vísu að hjálpa henni eftir beztu getu, en það var ekki mikið sem hann gat. Hann varð að hlýða fyrirskipunum sjálfur. — Veslings Bern, sagði Kata lágt. — í raun og veru var hann alls ekki vond- ur maður. — Nei, hann hefur sjálfsagt ekki ver- ið það, sagði Adrian og gretti sig. — En við fengum andúð hvor á öðrum í fyrsta sinn sem við sáumst. Og líklega hefur það verið þér að þakka, gullið mitt. Hann hefur eflaust séð hvern hug ég bar til þín. — En hann hélt að þú værir hrifinn af Fredu Dennison? — Ég held, að mér hafi ekki tekizt fyllilega að gabba hann hvað það snerti, svaraði hann dræmt. — En þér tókst að minnsta kosti að gabba mig, sagði hún. Og svo er það eitt enn, sem þú verður að gefa mér skýringu á: Að hverju varstu að leita, þegar ég kom að þér og þú varst að gramsa í skrifborðsskúffum Fredu Den- nison? Hann hló. — Þegar Frede náði í ein- hverjar upplýsingar, sem hún hélt að ég ætti að kynnast — og ef hún var ekki heima — skrifaði hún nokkur orð og lagði þau í umslag, sem áritað var til frú Pyle. Rodney uppgötvaði þetta aldrei. Nú varð stutt þögn. Hann þrýsti henni fastar að sér. — Og þú og — Greta? sagði hún loksins. Hann dró að sér hendurnar, og and- litið varð alvarlegt. — Hún dó fyrir tæpri viku. Veslings Greta. Hún átti auma ævi. Henni tókst aldrei að veita sjálfri sér gæfu — né öðrum. — En hversvegna sagðir þú mér ekki þetta kvöldið forðum í Surrey? — Af því að ég vissi ekki hvort hún mundi nokkurntíma vilja fallast á skiln- að, sagði hann stutt. — Og ég óttaðist að þú mundir verða fús til að fylgja mér samt. Mér þótti of vænt um þig til þess að vilja að þú gerðir það. Ég hélt að þér væri meiri hlífð í að láta þig halda, að ég elskaði þig ekki — að minnsta kosti ekki nóg til að giftast þér. Hún faðmaði hann að sér. — Það var ekki fallega gert af þér, Adrian! — Nei, ég skil það núna, sagði hann hægt. — En þegar manni þykir jafn vænt um stúlku og mér þykir um þig, þá er ekki allfaf auðvelt að hugsa skýrt. Ég hélt að ég væri að sýna göfug- mennsku, en í rauninni var ég flón. Geturðu fyrirgefið mér, elskan mín? — Ég mundi fyrirgefa þér hvað sem væri. Hún hló með tárvot augun og þrýsti sér að honum. — Og nú bið ég þig á hnjánum um að giftast mér, elskan mín, sagði Adrian. — En vegna þess að þú ert kona, þá liggur við að ég þori að veðja um að þú vilt refsa mér fyrst. Þú lætur mig bíða lengi, frestar brúðkaupinu og gefur mér vafasamar ástæður fyrir því. Er þetta ekki rétt, elskan mín? — Skelfing þekkir þú mig lítið, sagði hún hlæjandi. — Ég skal þvert á móti borga hvað sem það kostar til Þess að fá leyfisbréf til þess að við giftum okk- ur í snatri. SÖGULOK.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.