Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1961, Qupperneq 5

Fálkinn - 14.06.1961, Qupperneq 5
að Englendingar eru mest skattpíndir aillra þjóða í heiminum? Hæstur skattur er í Eng- landi, miðað við þjóðarfram- leiðslu, eða 32%. Aðrar þjóð- ir fylgja samt fast í kjölfar- ið, eins og til dæmis Banda- ríkin, þar sem skattar til hins opinbera eru 30% af þjóðarframleiðslunni. íbúar Danmerkur og Svíþjóðar sleppa með að borga 21 og 23%. ★ að samkvæmt dómsúrskurði er leyfilegt að safna sígar- ettustubbum af götunum á Ítalíu? Sígarettustubbarnir, sem safnað er, fara fyrst á rann- sóknarstofu, þar sem hin ó- hollu efni, sem safnast hafa í sígarettum meðan þær eru reyktar, eru fjarlægð. Hið hreinsaða tóbak er notað í nýjar sígarettur. Að undan- förnu hefur verið safnað saman 1 milljón kílóa af stubbum árlega. Tveir kornungir guðfræði- stúdentar, komu einhverju sinni til sænska biskupsins Billings og báðu hann um leyfi til þess að prédika í kirkjunni. Billing var mynd- arlegur kirkjuhöfðingi og eftir að hafa virt piltana fyr- ir sér, segir hann: — Farið fyrst heim til ykkar og lesið í 2. Samúels- bók 10, 5. Stúdentarnir fóru heim og flettu upp í biblíunni. Á tilvitnaða staðnum, stóðu þessi orð: „Haldið kyrru fyr- ir í Jerikó, þangað til ykkur fer að vaxa skegg.“ f blöðum bæjarstjórnar nokkurrar fundust eftirfar- andi samþykktir, sem sýna okkur greinilega, að það er allt á eina bókina lært hjá bæjarstjórnum, hvar sem er í veröldinni. Samþykkt var, að brýn þörf væri á nýju fangahúsi, þar sem núverandi fangelsi sé algjörlega óviðunandi ... Samþykkt var, að nota efn- ið úr gamla fangahúsinu til byggingar nýs fangelsis . . . Samþykkt var, að gamla fangahúsið skyldi standa þangað til hið nýja verður tekið í notkun. ★ / Vaninn er fjötur: Við vef- um þráð í hann á hverjum degi, og að lokum er hann orðinn svo sterkur, að við getum ekki slitið hann. Charles Rollin. Sérhver maður getur orð- ið söguhetja, en það þarf mikilmenni til að skrifa sög- una. Oscar Wilde. /WÍÁu, 1844 var spámaður Mormón- anna og trúarhöfðingi, Jos- ef Smith, myrtur í fangelsi í Carthagene, Illinois. Líf Josefs Smith var ærið stormasamt og viðburðaríkt. 1844 lét hann til dæmis stilla sér upp sem frambjóðanda til forseta Bandaríkjanna, en í sömu mund var hann á- kærður fyrir ýmislegt ólög- legt athæfi og varpað í fang- elsi. Hann virðist hafa verið meira en lítið óvinsæll af almenningi, því að fjöldi manns safnaðist saman fyrir utan fangelsið, og 27. júní brauzt manngrúinn inn í klefa hans og skaut hann. ★ 1816 létti freygátan „Me- dusa“ akkerum í Rocheforts- höfn og lagði af stað til Af- ríku. Þar með var hafinn einn erfiðasti kapitulinn í sögu siglinganna. Um borð í freygátunni voru um 400 manns, og ætlunin var að fara til frönsku nýlendunn- ar Senegal. Skipstjórinn, Sachaumareys, var lélegur sæfari og 2. júlí strandaði „Medusa“ á Arguin-rifi fyr- ir utan Afríkuströnd. í þess- ari aðstöðu flýði skipstjór- inn á litlum báti til lands ásamt frillu sinni og nýút- nefndum landsstjóra í Sene- gal. Nokkrir björgunarbátar voru á freygátunni, en þeir hrukku skammt. 200 manns björguðust á risastóran fleka, sem rak til hafs. Skipbrots- mennirnir á flekanum urðu brátt brjálaðir af hungri, alls konar sjúkdómar brutust út meðal þeirra, sem leiddu marga til bana. Margir sveltu í hel og þegar flekinn fannst loks, voru aðeins 15 manns á lífi.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.