Fálkinn - 14.06.1961, Síða 8
En allt í einu kippist hann við og
það tekur að urga í hjólinu hans.
— Hvalur, kallar hann, og Örn kem-
ur á vettvang. Stöngin tekur að svigna.
— O boy, segir séra Hacking og dreg-
ur af öllum kröftum.
Við hinir lítum um öxl andartak.
— Það er ekkert smáræðis flykki á
hjá honum, gellur við í einhverjum.
Það er ekki um að villast. Nú er sá
alstærsti á leiðinni.
— Ætli það sé ekki lúða?
Færið styttist óðum.
— O boy, hvalurinn hvolfir bátnum,
segir séra Hacking hlæjandi og dregur
og dregur.
Urg í hjólinu. Færið styttist og kem-
ur upp. En æ! Hvílík vonbrigði! Á öngl-
inum er ekki svo mikið sem vottur af
neinu kviku.
— Hann hefur sloppið. Hefur hann
ekki étið af?
En svo er ekki. Hér hefur eitthvað
dularfullt borið við. Eftir nána rann-
8 FALKINN
Sigurður Teitsson, skipstjóri á Nóa,
með spriklandi ýsu í hendinni.
sókn kemur sannleikurinn í ljós: Séra
Hacking hafði krækt í færi frúar aug-
lýsingastjórans, sem sat við borðstokk-
inn hinum megin.
— Hann hefur sem sagt veitt heil-
an kvenmann!
— Og það meira að segja gifta konu!
Það var óspart hlegið að þessu ævin-
týri séra Hackings.
★
Dagurinn hefur liðið allt of fljótt.
Sólin er horfin bak við skýjaþykkni
og kominn örlítill svali. Múkkinn synd-
ir ekki lengur makindalega. Hann er
orðinn svangur aftur. Þegar Örn fleygir
síldarbita fyrir borð, er ákaft stríð um
ætið.
— Sá er gráðugur núna!
Við höfum tvívegis fært okkur úr
stað, en afli verið heldur tregur, að
áliti þeirra Sigurðar skipstjóra og Arn-
ar. Þó eru allir ánægðir. Teiknarinn
er aflakóngur og hefur fengið 14 stykki,
Þeir Sigurður og Örn segja okkur, að
aflametið á Nóa séu 50 stykki hjá ein-
um manni í einni ferð ....
Það er lagt af stað til lands. Við
sitjum í vistlegum lúkarnum, drekkum
sjóðheitt kaffi og snæðum smurt brauð.
Séra Hacking skrifar í gestabókina setn-
ingu á latínu um víðáttu hafsins og
smæð fiskibátsins.
Allt í einu stöðvast vélin. Sigurður
skipstjóri kallar til okkar og segist hafa
séð súlu stinga sér, en það sé merki
um mikinn og góðan fisk. Allir eru
Frh. á bls. 35
Strax og einhver hefur orðið var, er
örn Ingólfsson, starfsmaður á Nóa,
kominn á vettvang til þess að að-
stoða við að koma veiðinni inn fyr-
ir borðstokkinn.