Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1961, Síða 16

Fálkinn - 14.06.1961, Síða 16
1. ÞEGAR HANN var lítill, eignaðist hann aldrei leikföng. Fólkið hafði ann- að við aurana sína að gera en að henda þeim í glingur handa stráknum. Hann var látinn vinna og honum var snemma kennt að hlýða. Það kom honum mjög vel síðar um ævina. Hann var einn barna á bænum og hafði enga jafnaldra að leika sér við, etja kapps við eða bera sig saman við. Hann umgekkst enga, sem voru á því vandræða þroskastigi að hafa gaman af fánýtum og tilbúnum kaupstaðarleik- föngum. Völur og leggir voru að vísu munaður hans og aleiga til sex ára ald- urs, áður en hann var látinn fara að annast skepnur og prjóna sokkboli. Horn og kjálkar áttu líka heima í þessu ódýra safni kotbarnsins. Og þegar bezt lét kom upp í hendur hans alskapaðir hvítir fuglar úr ýsubeinum, væng- stýfðir með langan háls og enga fætur, og fluttu barninu endurminningu sum- arsins inn í baðstofúna á þorra. Full- orðna fólkið umgekkst hann eins og fullorðinn mann, lék hann finna til þedrrar miklu ábyrgðar, sem fylgdi því að vera til og þurfa að borða og klæð- ast, þegar ekkert var til að borða og ekkert til að klæðast. Honum var skip- að fyrir verkum, og hann hlýddi alltaf. Hvort þessum ungling var fremur hlýðnin í blóð borin, veit enginn, en mikið gat þessi niðursetningur reynzt dyggur þjónn húsbænda sinna síðar á lífsleiðinni. Þegar hann var kominn fast að sjö- tugu eignaðist hann tilbúið leikfang í fyrsta skipti. Hann keypti það til þess að gefa það öðrum. Lítill rauðhærður drengur átti afmæli. Gamla manninum fannst hann þurfa að víkja einhverju að hnokkanum litla í tilefni af því. Börn eru alltaf börn. Og stundum finnur gamla fólkið fyrir skyldleika sínum við börnin. Oft hafði hann séð krakka leika sér að boltum. Hann hafði séð þá elta þessa litlu knetti til og frá um allar trissur, kasta þeim allavega upp í loftið og grípa þetta af mikilli ánægju. Hann var viss um, að öllum börnum þótti gaman að þessum fallegu litlu, saklausu leik- föngum, sem ekki höfðu þekkst á þeim dögum er hann var barn í sveitinni, fremur en annað glingur. Svo keypti hann bolta. Kvöld eitt í skammdeginu fyrsta vet- urinn eftir lok síðari heimsstyrjaldar, stendur þessi gamli maður á miðju gólfi í leikfangaverzlun við aðalgötu höfuð- borgarinnar og lítur feiminn á unga stúlku fyrir innan borðið, eins og hon- um finnist hálft í hvoru sem hann hafi stolizt hingað inn til að gera eitthvað, sem ekki megi, kaupa eitthvað, sem ekki sé viðeigandi, að hann kaupi. Hann tvístígur og kemur ekki upp orði. Hvað er það? spyr stúlkan. Gamalmenninu verður svarafátt, seg- ir þó eftir nokkurt hik: Boltar, fást þeir ekki hér? Fyrr en varir liggja tveir kassar á búðarborðinu fyrir framan gamla manninn, —- og í þeim eru margir bolt- ar af mismunandi stærðum og allavega litir. Hann horfir á þá um stund, án þess að snerta við þeim. Hann hefur aldrei fyrri haft fyrir framan sig hlut af þessu tagi, sem hann veit, að innan stundar getur verið orðinn eign hans. Hann er nokkra stund að átta sig á því, að þetta er raunveruleiki en ekki draumur, — að hann þurfti að komast á efr,i ár og lenda á sveit að nýju til þess að verða svo mikið barn að eyða hýrunni sinni í slíkan óþarfa. En — var þetta annars nokkur óþarfi? Varla. Hann fer með höndina upp í skeggið, litur kjánalega framan í stúlkuna, af- sakandi augnaráði, eins og gamalmenni eiga sameiginlegust börnum, bandar síðan óákveðið á annan kassann, eins og hann sé að velja bolta, en bendingin verður aðeins orðlaust fálm. Og ekki snertir hann við boltunum. Nei, honum finnst ekki viðeigandi að siggrónar hendur sínar komi nálægt þessum glansandi, dýrmætu hlutum. — Þess vegna aðeins bending, án nokkurra orða, og vandræðalegt tillit, rauð augu, og sultardropinn á nefinu þurrkaður burt með handarbakinu. En stúlkan tekur bendinguna sem ákvörðun um að kaupa stærsta boltann, Hún spyr: Þennan hér? Og gamli maðurinn jánkar ofurlágt en snöggt, ekki laus v,ið að vera glett- inn, eins og sá, sem spilar fjárhættu- spil með nokkru samvizkubiti, en vill ekki láta á því bera, heldur brasir um leið og hann stígur nýtt dirfskuspor í leiknum. Höndin fitlar við skeggið. Svo er það borgunin: Gamli maður- inn dregur upp buddu, nær henni með fálmandi tilburðum ,innan úr treyjunni sinni, rekur utan af henni seglgarn og leggur það frá sér á borðið. Upp úr buddunni tekur hann það sem gjalda þarf. Það voru einu ,sinni miklir pening- ar, en nú eru þeir lítils virði. Gjörðu svo vel, stúlka mín. Óstyrkar hendur umlykja pakkann. Það er eins og gamli maðurinn eigi erf- itt með að handfjalla þennan dýrgrip, sem þó er ekki stærri né brothættari en rjólbiti. Eiginlega svipar þessi pakki til rjólbita nema hvað hann er léttari en blessað tóbakið, auk þess bara gling- ur og hjóm. Þegar bakkinn er farinn af borðinu og seglgarnið komið utan um budduna og buddan niður í vasa, þokast gamli maðurinn nokkur skref í átt til dyra, nemur svo staðar og snýr við. Nokkuð fleira? spyr stúlkan. Haldið þér að þetta sé nokkuð slæm afmælisgjöf handa litlum krakka? spyr gamalmennið svo lágt að varla heyrð- ist. Unga stúlkan brosir og segir: Þetta er áreiðanlega ágæt afmælis- gjöf. Krökkum hlýtur að þykja gaman að fá bolta núna, því þeir hafa ekki fengizt svo lengi. Við fengum þetta sent um daginn og það fer upp á auga- bragði. Gamli maðurinn brosir, voteygður, ánægður, smáglettinn, — kinkar kolli, býður góða nótt og þakkar fyrir. Síðasti viðskiptavinur dagsins fer út úr búð- inni. 2. Allt þetta kvöld gengur á með hvöss- um regnhryðjum. Haustið er ærið vot- viðrissamt. Og gamli maðurinn, sem keypti boltann skömmu fyrir sex, held- ur af stað heiman að skömmu fyrir átta, Þegar hann var kominn fast að sjötugu eigna&ist hann fyrst tiibiíið (eikfang. Hann keypti það handa öðrum. Lítiil rauðhærður drengur átti afmæli... SMÁSAGA EFTIR ELÍAS MAR 16 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.