Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1961, Qupperneq 18

Fálkinn - 14.06.1961, Qupperneq 18
BASL ER BUSKAPUR Heilræði handa verðandi húsmæðr- um: Pússaðu ekkj veggina, kona góð, fyrr en þú ert gengin úr skugga um að loft- stoðirnar haldi. Til að þú sannfærist betur um sann- leiksgildi ofangreindra orða, kæra unga kona, skal ég bara segja þær sögu líf- illar frúar einnar, sem hugðist koma elsku manninum sínum á óvart, þegar hann kæmi heim af síldinni, með því að verá búin að ljúka allri standsetn- ingu á hreiðrinu þeirra. Á húsnæðisleyis- og eftirstríðsárun- um, var margt fólk í hreinustu vand- ræðum með að fá inni. Og ungt fólk sem ætlaði að hefja búskap, var þar af leiðandi öllu fegið. Ég veit til dæmis um hjón, sem tóku á leigu innréttaða heyhlöðu og þóttust jafnvel heppin, þrátt fyrir það að hin tíu þúsund króna fyrirframgreiðsla kæmi dálítið hart nið- ur á þem. (Miklir peningar þá). Því fannst barnungri, nýgiftri frú, sem hún hefði himin höndum tekið, þegar fallegi maðurinn hennar náði að festa kaup á steinhúsi inni í Blesugróf. (24 fermetrar!). Þau vissu það náttúr- lega ekk] þá, saklausu ungu hjónin, að indæla húsið þeirra var fyrrverandi vígi eftir Bretann! —- En hvað um það, —■- þetta var fyrsta ástarhreiðrið þeirra. Urðarkotið stóð á sandi, og ekki var útsýnið beinlínis fagurt. Áfast við eina húshliðina var stóreflis tveggja hæða hússkrokkur. Grindin í hússkrokknum samanstóð af stórum og litlum kassafjölum, sem lágu þvers og kruss, vírnetsflækju og bárujárnsbút- um. Síðan var húsið yfirdekkt með múr- slettum hér, þakpappa þar og málning- arslettum allsstaðar. Á tvær - hliðar vígisins byrgðu síðan útsýni frá gluggunum tveir himinháir sandhólar, svo ekki var nema um einn glugga að ræða fyrir ungu hjónin að horfa gegnum, ef þau vildu njóta sól- setursins á fögrum sumarkvöldum, en sá gluggi var á fjórðu húshliðinni og vísaði út að ánni. Það var bara verst, að hjónakornin gátu enganveginn, hvernig sem þau reyndu, séð síðustu geisla kvöldsólarinnar speglast í blá- tærri lækjarsprænunni, vegna allra geymslu og hænsnaskúranna, sem byrgðu allt útsýni. En hvað um það, — ástfangið fólk kemur til með að grilla í ýmislegt, sem aðrir sjá ekki. Nú, þegar ungu hjónin voru búin að eignast þetta dásamlegt býli úti í guðs- grænni sveitinni, þótti þeim ekki við annað unandi en að krækja sér í smá- vegis slatta af húsdýrum. Litla frúin, sem í eðli sinu var ein- stakur dýravinur, aumkvaðist yfir gaml- an og úfinn fresskött, sem hvergi átti höfði sínu að að halla, og tók hann þegar undir sinn verndarvæng. Bónd- inn ungi átti líka í fórum sínum við- kvæmt hjarta. Hann sá hvar eigandi kassafjalahússins bjó sig undir að höggva hausinn af nokkrum aflóga pút- um, hljóp til og leysti út dauðadæmda bandingjana, tíu hænur og einn hana fyrir tvö-hundruð-kall. Þar með voru hinir vígðu elskendur búnir að eignast ofurlítinn hænsnastofn til að framleiða öll þau egg, sem heim- ilið þyrfti til afnota í náinni fram- tíð. Þegar í stað hófst húsbóndinn 'handa með smíði nýs hænsnahúss, en á með- an var ein hænan látin upp á loft i sjálfu bóndabýlinu ásamt nokkrum eggj- um til að unga út. Þau vissu það ekki þá, litlu hjónin, að gömul piparmey með mjóan afturenda, fölt nef og eitil- hvöss, stingandi, augu kemur aldrei til með að unga út nokkurri tegund af- kvæma. En hvað um það, — jarteinin eru þó að stinga upp kollinum svona af og til. — Á meðan litli bóndinn vann að kofasmíðinni, festi frú hans kaup á gæsapari. Stórkostlegt heillaráð! hugs- aði eiginmaðurinn, meðan grimmur steggurinn elti hann kringum hálfsmíð- aðan kofann. — Hann kemur nokk til þessi, að reka aftur yfir ána óvelkom- ið tengdafólk. — Eitt vorkvöld lauk svo eiginmaður- inn kofasmíðinni, allur klipinn, marinn og blár, og hafði sig inn í hús sitt, þar sem konan hans unga beið með lost- ætan kvöldverðinn. Veizlumaturinn var það ríkulega á borð borinn, að hjónin voru í stand- andi vandræðum með leifarnar. Loks hugkvæmdist frúnni það heillaráð, að gæða innanmögrum hænsnunum á veizluleifunum. Frh. á bls. 36 18 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.