Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 25

Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 25
med á sjálfur þessa svínastíu sem við erum í. Hún segir að sér lítist mjög vel á þig, og langi til að giftast þér. En þá verður þú að kaupa hana af Ahmed ... — Ég vil ekki eiga ambátt. Ég vil eiga konu, sem elskar mig, svaraði Flynn. Stúlkan þrýsti að hendinni á honum meðan hann var að segja þetta og horfði fast á hann, dökkum augun- um. Nú talaði Antonio lengi við hana aft- ur. — Hún segir að hún viti enga gæfu eins mikla og fá að giftast þér. Hún segist vilja gera þig hamingjusaman til æviloka . . . Flynn þrýsti höndina á Kawahkib. — Segðu henni að sitja hérna og bíða. Ég ætla að tala við Ahmed. Arabinn hlustaði þegjandi á erindi Flynns. — Hún er mjög falleg, sagði hann loksins. Og hún er þrældugleg til allrar vinnu. Ég skal nú samt selja þér hana fyrir 150 sterlingspund — út í hönd. Flynn sagðist skyldu koma aftur og hafa peningana með sér. En hann hafði ekki nema 30 pund í kaup á mánuði, svo þetta átti langt í land. Hann sagði Antonio hvað Arabinn hefði sagt. — Þú eignast aldrei svo mikla pen- inga, sagði Antonio. Og svo hvíslaði hann: — Hvers vegna stelurðu ekki stelpunni. Ég skal hjálpa þér. Flynn var lengi að átta sig á hvert Antonio var að fara. — Smygla henni um borð í skipið? — Samkvæmt enskum lögum verður kona ensks manns ensk um leið og hún Frh. á bls. 34. ■NNI

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.