Fálkinn


Fálkinn - 01.11.1961, Síða 13

Fálkinn - 01.11.1961, Síða 13
hvíta fjaðrahattinn — það sagði eiginmaður hennar, er hann kyssti hana í efstu tröppunni í stiganum. Úti í aprílsólinni beið þeirra grár vagn með fjórum frísandi gæðingum fyrir. Jennie kyssti móður sína og sneri sér að föður sínum. Hann rétti henni fagra, brot- hætta sólhlíf í skjaldbökuskel. Jennie fann að hún átti erfitt með að slíta sig frá hon- um . . . hún steig upp vagn- inn, sneri sér við og veifaði þangað til þau voru komin í hvarf. Jennie og eiginmaður henn ar fóru í hálfsmánaðar brúð- kaupsferð, en þá varð Rand- olph að snúa heim og setjast á þing. Þau fluttust heim til Blenheim því að litla húsið í Curzon stræti, sem hertog- inn hafði gefið þeim, var ekki tilbúið enn þá. Hjá foreldrum Randolphs bjuggu þau í nokkrar vikur og Jennie fannst ekki mikið til um lifnaðarhætti aðalsins — allt var svo formfast og ó- sveigjanlegt. Ennfremur kom henni ekki of vel saman við tengdamóður sína, sem ef til vill öfundaði tengdadóttur sína ofurlítið af æsku hennar og lífsfjöri. Samkvæmislíf í London. Ungu hjónin fluttu nú í húsið í Curzon stræti og urðu brátt mjög vinsæl í sam- kvæmislífinu, sem þau tóku óspart þátt í. Þeim var boðið í ótal veizlur og dansleiki — næstum á hverju kvöldi, en þau þóttu sérstaklega glæsi- leg. Jennie var annáluð fyrir fegurð og var kölluð: „Feg- ursta, dökkhærða konan í heiminum“. Einnig þótti það nokkur viðburður að amerísk kona skyldi taka þátt í sam- kvæmislífi aðalsins. Jennie varð ófrísk í brúð- kaupsferðinni, en var svo heilsugóð, að hún tók þátt í samkvæmislífinu þrátt fyrir það. Þeim fæðist sonur. Winston Churchill fæddist 30, nóvember í Blenheim- höllinni, og hann var alla tíð hreykinn af því að vera af Marlborough-ættinni. Hann naut þess að eyða sín- um frídögum þar. er hann var ekki með frænkum sínum. Enda þótt barnaherbergið væri fullt af leikföngum og heilsu hans væri gætt af ýtr- ustu kostgæfni, þá sá hann ekkert of mikið af foreldrum sínum. Er hann óx upp, varð hann mjög hændur að móð- ur sinni, en af einhverjum á- stæðum var samband hans við föður sinn ekki eins inni- legt. Jennie varð að læra að vera gestgjafi og húshaldið var fyrst í stað hálfgert basl vegna sífelldra fjárhagsörð- ugleika og hún var næsta fá- fróð um stjórn á slíkum mál- um. En brátt lærðust henni þessar listir og hún hafði hina gáfuðustu og frægustu menn samtíðarinnar að gest- um. Deilur við ríkiserfingjann. Ekki höfðu þau verið gift lengi, er þau fluttu í stærra hús í Charles stræti og þang- að kom Clarite systir hennar til þess að dveljast hjá þeim. Jennie naut þess í ríkum mæli að hafa systur sína hjá sér og kynnti hana fyrir há- aðlinum m. a. prinsinum af Wales, en Randolph og prins- inn höfðu um langan tíma verið góðvinir. Ungu hjónin voru í miklu eftirlæti hjá konungsfjöl- skyldunni og voru þau jafn- an boðin með prinsinum og prinsessunni af Wales, ef þau síðarnefndu voru boðin út. En þá kom skyndilega upp mikil deila milli prinsins og Rand- olphs og neitaði prinsinn að dvelja undr sama þaki og þau Churchills-hjónin. Randolph og Jennie kom- ust nú að raun um, að sam- kvæmislífið var þeim næst- um lokað og til þess að bjarga ástandinu, tók hertoginn af Marlborough við útnefningu sem landstjóri á írlandi og tók son sinn með sér sem einkaritara sinn. Fyrstu minningar Winstons voru frá Irlandi og honum fannst þær dásamlegar. Á hverjum degi kom Jennie rjóð í kinnum og útitekin eft- ir útreiðatúra, til sonar síns í barnaherbergið. Winston dáði og dýrkaði móður sína sem ævintýraprinsessu. Þessi árekstur við prinsinn varð til þess, að Randolph missti nú allan áhuga á sam- kvæmislífinu og héðan í frá Fr'h. á bls. 35 Efri mynd: Jennie Jerome ásamt hinum fræga syni sínum, Sir Winston Church- ill.—Neðri mynd: Churchill heimsækir bernskustöðvar sínar, Blenheim Palace.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.