Fálkinn - 01.11.1961, Blaðsíða 14
OFT kemur fyrir, að anzi kyndugar
sögur berast af hinum ýmsu sjúkra-
húsum. Svo er mál með vexti að sjúkra-
hús eitt hér í bæ útskrifar sjúklinga
öðru hverju. Eitt sinn átti að útskrifa
konu eina, sem alveg virtist vera heil
heilsu. Yfirlæknirinn kallar hana því
fyrir sig, leggur fyrir hana ýmsar
spurningar til að ganga úr skugga
um, að konan sé alheil. Meðal annars
spurði hann hana, hvað hún ætlaði að
gera, þegar hún kæmi út.
— Ég gæti sosum alveg verið rjóma-
kanna upp á vegg, svaraði konan. Þess
þarf ekki að geta, að konunni var ekki
sleppt út að svo komnu máli.
★
TVEIR skotar ætluðu eitt sinn að ferð-
ast með járnbrautarlest. Loksins fundu
þeir upp ráð til þess að sleppa sem
ódýrast við fargjaldið. Annar var sett-
ur inn í stóra pappaöskju og var síðan
búið vandlega um pakka þennan og
sett utan á hann merki, sem á stóð:
„Varlega, brothætt.“ Síðan keypti hinn
skotinn einn miða og fór með pakkann
inn í lestina. Þegar umsjónarmaðurinn
kom að rífa af miðunum, leit hann
grunsemdaraugum á pakkann. Allt í
einu gaf hann pakkanum duglegt spark.
Heyrðist þá í pakkanum: — Klirr,
klirr.
★
ROSKIN kona fór eitt sinn með gjaf-
vaxta dóttur sinni í ferðalag með járn-
brautarlest. Fengu þær inni í tómum
og notalegum klefa, En á næstu stöð
kemur heldur óþægilegur farþegi inn
í klefann og sezt á móti þeim mæðg-
um. Konan ætlaði nú að reyna gamalt
bragð til þess að losna við þennan óvel-
komna gest og fá hann til þess að
skipta um klefa. Hún beygði sig því
niður og hvíslaði að honum: — Það er
kannski skylda mín að tilkynna yður,
að dóttir mín hefur aðkenningu að
skarlatsótt og ef til vill------
— Ó, svaraði maðurinn, þér þurfið
ekki að vera hrædd um mið þess vegna,
því að ég ætla að fremja sjálfsmorð
strax og við komum í fyrstu jarðgöng-
in. Konan skipti strax um klefa.
★
KONA nokkur gortaði mjög af syni
sínum við nágrannakonu sína og sagði
meðal annars: — Hann býr 1 fallegri
íbúð og klæðist 100 dala fötum og fer
UM FLÓTTAMANN í BERLÍN
0G FLEIRA FÓLK
14 FÁLKINN
til útlanda á hverju ári. Ekki nóg með
það heldur fer hann líka til sálfræði-
legs læknis og leggst þar á dívan i
klukkutíma og borgar honum síðan
25 dali fyrir viðtalið.
Nágrannakonan varð auðvitað mjög
-hrifinn af syni frúarinnar og spurði:
— 25 dalir fyrir heimsóknina, um hvað
tala þeir?
— Um mig, svaraði konan hreykin.
★
RÚSSNESKUR flóttamaður, sem hafði
sloppið yfir landamæralínuna í Berlín,
var gripinn af lögreglunni. Lögreglan
rannsakaði farangur mannsins og rakst
þá fyrst á dularfullt glas fullt af töfl-
um.
— Þetta eru höfuðverkjapillur, út-
skýrði flóttamaðurinn.
Þá drógu lögreglumennirnir upp
flösku af annarlegum vökva.
-—■ Þetta er asthmameðalið mitt,
sagði flóttamaðurinn.
En neðst í kofforti mannsins, í leyni-
'hólfinu, fundu lögreglumennirnir
geysistóra mynd af Krúschev.
— Nú, já, en hvað er nú þetta, sögðu
lögreglumennirnir sigri hrósandi.
— í guðanna bænum, takið hana
ekki frá mér, grátbað flóttamaðurinn,
ég nota hana nefnilega til þess að
lækna í mér heimþrána.
★
í NOKKUR ár hafði ég verið óskaplega
taugaveikluð og læknirinn okkar hafði
reynt allt sem í hans valdi stóð til þess
að hjálpa mér. En ekkert dugði. Loks
varð ég ófrísk í fjórða skipti og þá
fór kyrrð og ró að færast yfir mig.
Ég sagði nágrannakonu minni þetta
og sagði hún þá: — Þetta sýnir bara,
að þessir læknar vita ekki allt. Og
oft lækna hinir einföldustu hlutir, sem
maður gerir heima hjá sér miklu betur,
en allar þær pillur og meðöl, sem lækn-
arnir gefa manni inn.
★
SVO er hér önnur saga af hinni ágætu
þjóð, Skotum. Skoti nokkur var úti á
gangi með ungum syni sínum. Finnur
þá stráksi eitt penny á götunni og tek-
ur það upp. En faðir hans var ekki
lengi að taka það af honum.
— Æ, pabbi, segir strákur og snökt-
ir, ég fann það fyrst.
— Veit ég það, segir pabbinn, en
settu það ekki fyrir þig, þú erfir mig
hvort sem er.
Verö
launa
get
raun
Hér birtist
fimmti hluti
hinnar glæsilegu
verðlaunagetraun-
ar. Útfyllið
eyðublaðið og
sendið bað, þegar
getrauninni lýkur.
Verðlaunin eru
myndavél að
verðmæti 5000
krónur.
Þá er farið að síga á seinni hluta
verðlaunagetraunarinnar, en alls
verða hlutar hennar sex. Allir hafa
hlutarnir verið með sama sniði: birt-
ar hafa verið tvær myndir, en á aðra
hefur vantað fimm hluti. Margir hafa
komið að máli við okkur og sagt,
að í öðrum hlutanum hafi ekki vant-
að nema fjóra hluti. Við nánari eftir-
grennslan kom í ljós, að prentun er
naumast nógu góð til að fimmti hlut-
inn sjáist. Við höfum, því ákveðið
að taka lausn á öðrum hlutanum
gildan, þótt fimmta atriðið vanti.
Mörgum hefur einnig fundizt þriðji
hlutinn erfiður, en þar er hægt að
finna fimm hluti, bara ef menn missa
ekki þolinmæðina og leita gaumgæfi-
lega. — Getrauninni lýkur í næsta
blaði og þá eiga þátttakendur að
senda alla seðlana í lokuðu umslagi
til FÁLKANS, pósthólfi 1411.