Fálkinn


Fálkinn - 01.11.1961, Síða 16

Fálkinn - 01.11.1961, Síða 16
Soapy bylti sér óþreyjufullur á bekkn- um sínum í Madison Square. Þegar kon- ur, sem ekki eiga loðkápur, fara að verða blíðar við mennina sína og Soapy fer að ókyrrast á bekknum sínum í Madi- son Square, þá er veturinn farinn að nálgast. Visið laufblað féll ofan í fangið á Soapy. Það var nafnspjald vetrarins. Veturinn er góður við þessa föstu leigj- endur í Madison Square og gerir þeim boð í tæka tíð á undan sér. Soapy varð að viðurkenna þá stað- reynd, að nú væri tími til kominn að fara að taka ákvörðun um þær leiðir og úrræði, =em neyta skyldi til þess að verjast komandi kuldum. Og þess vegna var hann að bylta sér á bekknum. Þeir voru ekki háfleygir, draumarnir hans Soapy, fyrir veturinn. Þar var eng- in áætlun um skemmtiferð til Miðjarð- arhafsins. Allt og sumt sem sál hans þráði, var þriggja mánaða fangelsi. Þriggja mánaða öryggi um fæði og hús- næði og félagsskap við álíka menn og hann var sjálfur, í skjóli fyrir norðan- nepjunni og lögreglusnuðrurunum, — það var æðsta sæluhugsjón Soapys. í mörg ár hafði hið ágæta risnuheim- ili; Blackwellfangelsið, verið vetrarlægi hans. Alveg á sama hátt og hinir betur stæðu samborgarar hans keyptu sér far- miða til Palm Beach eða Miðjarðarhafs- landanna, hafði Soapy gert sínar ein- földu ráðstafanir til þess að fá ókeypis húsaskjól yfir háveturinn á sínum stað. Og nú var tími til kominn að fara að gera ráðstafanirnar. Þrjú eintök af sunnudagsblaði undir vestinu, í buxun- um og í sokkunum, höfðu ekki megn- að að halda kuldanum undan í nótt, þar sem hann svaf á bekknum sínum á sama stað og vant var; rétt við gos- brunninn. Fangelsið var því fyrir sjónum Soapys langþráður staður, sem reynandi væri að fara að nálgast. Hann hafnaði gjöf- um þeim, sem fátæklingum borgarinnar voru réttar í nafni mannkærleikans. Soapy fannst lögin miklu mannúðlegri en mannkærleikinn. Það var til óþrjót- andi röð af stofnunum, einkastofnun- um og ríkisstofnunum, sem hann gat farið í til þess að fá mat og húsnæði. En Soapy og hans jafningjum að sjálfs- virðingu fannst eitthvert remmubragð að líknargjöfum. Það verður að borga þær með auðmýkt, þó að þær kosti ekki peninga. Hver gisting kostaði skatt, sem heitir bað, og hver brauðsneið kostaði nærgöngular spurningar. Þess vegna var betra að vera gestur laganna. í fangels- inu ráða ákveðnar reglur og þar er ekki verið að sletta sér fram í einka- mál manna á óviðeigandi hátt. Þegar Soapy hafði ákveðið að fara í fangelsi, tók hann óðar að undirbúa þá ráðagerð. Það voru óteljandi auðveld- ar leiðir til að komast þangað. Sú þægi- legasta var að fara á dýran veitinga- stað og fá sér góða máltíð og svo — um leið og maður neitaði að borga — lta afhenda sig lögreglunni, þegjandi og hljóðalaust. Þá annaðist lögreglu- þjónninn það, sem á vantaði. Soapy skiídi við bekkinn sinn og slangraði út úr garðinum og þrammaði á ská yfir asfalttjörnina, sem Broadway og Fifth Avenue renna út í. Spottakorn uppi á Broadway stanzaði hann fyrir utan glæsilegt veitingahús, sem á hverju kvöldi hefur að bjóða úrval af ávöxt- um vínberjanna, silkiormsins og laus- lætisins. Soapy hafði fullt traust á sjálfum sér, allt frá neðsta vestishnappnum og upp úr. Hann var nýrakaður, jakkinn hans einstaklega snyrtilegur og svarta háls- bindið sitt hafði hann fengið að gjöf frá heimatrúboðsstúlku síðasta bæna- dag. Ef hann næði sér í borð á veit- ingastaðnum án þess að vekja athygli, þá færi allt vel. Sá hluti hans, sem var sýnilegur ofan borðsins, mundi ekki vekja neinn grun hjá þjóninum. Andar- steik væri hæfilegur réttur, hugsaði Soapy — með einni flösku af Chablis, og síðan Camenbert, bolli af kaffi og vindill. Nóg að fá sér vindil fyrir einn dollar. Reikningurinn yrði þá ekki svo hár, að hann vekti uppnám eða hefni- girni af hálfu veitingamannsins. Og þó mundi maturinn seðja hann svo, að hon- um mundi líða vel á leiðinni í vetrar- herbúðirnar. En þegar Soapy steig fætinum inn fyrir dyrnar í veitingasalnum, rak yfir- þjónninn augun í raunalegu skóna hans og rifnar buxnaskálmarnar. Sterkar og æfðar hendur sneru honum við og ýttu honum hægt og hljóðlega út á gang- stéttina og björguðu öndinni, sem hafði átt að verða fyrir tilræðinu frá háðu- legum afdrifum. Soapy gugnaði á Broadway. Það sýnd- ist svo sem leiðin á hinn margþráða stað væri ekki brúuð kræsingum. Hann varð að athuga önnur ráð til þess að komast í tugthúsið. Búðargluggi einn á horninu á Sixth Avenue vakti athygli hans fyrir það hve fallegar vörur voru í honum og hve vel hann var upplýstur. Soapy tók upp stein úr götunni og kastaði í gluggann. Fólkið kom hlaupandi fyrir hornið með löregluþjón í broddi fylkingar. Soapy brosti með hendurnar í vösunum, þeg- ar hann sá lögregluþjóninn, og stóð graf- kyrr. — Hvar er maðurinn, sem gerði þetta, spurði lögregluþjónninn flaumósa. — Gætuð þér ekki hugsað yður, að ég væri eitthvað við það riðinn? spurði Soapy kersknislega, en þó hlýlega, eins og maður, sem fagnar uppfyllingu óska sinna. En lögregluþjónninn tók ekki Soapy gildan. Fólk, sem mölvar rúður, bíður ekki eftir vörðum laganna og fer að skeggræða við þá. Það tekur til fótanna. Löregluþjónninn sá til manns dálítið neðar. Hann var á hlaupum til að ná í sporvagn. Og hann þaut á eftir hon- um með kylfuna á lofti. En Soapy rangl- aði áfram, hryggur yfir heillaleysi sinu. Hinum megin við götuna var veitinga- hús, ekki sérlega viðhafnarmikið. Það bauð opinn faðminn svöngum mönnum með létta buddu. Andrúmsloftið þar inni þykkt eins og leirtauið, — súpan og borðdúkarnir hins vegar þunnt. Soapy skálmaði með neðri hlutann á sér þarna inn, án þess að vekja nokk- ur mótmæli. Hann settist við borð og innbyrti buff, pönnuköku og eplabúðing. Síðan trúði hann þjóninum fyrir því að hann væri gerókunnugur þarna í borginni og jafnókunnugur væri hann peningum. — Flýtið þér yður nú að ná í lög- regluþjón, en látið ekki viðskiptamenn lögreglunnar bíða að óþörfu, sagði Soapy. — Ég hef ekki einu sinni svo mikið við þig að ná í lögregluþjón, sagði þjónn. inn, og augun í honum urðu eins og kirsiber í Manhattan-cocktail. — Hæ, Conni! Soapy datt á vinstra eyrað á bein- harða götuna, en þjónarnir tveir 'hurfu aftur inn til vinnu sinnar. Hann stóð upp lið fyrir lið, eins og þegar maður opnar tommustokk, og burstaði rykið af fötum sínum. Vonin um tugthúsvistina var eins ’hæpin og rósrauður draumur, og fangelsið virtist langt undan. Lög- regluþjónn sem stóð skammt frá fyrir utan lyfjabúð, hló þegar hann sá að- farirnar og gekk burt. Soapy hafði gengið fram hjá dimm- Það var tekið að kólna og draumar flakkarans Soapy voru engann veginn háfleygir: Hann vildi komast í tugthúsið SMÁSAGA EFTIR O HENRY 16 FALKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.