Fálkinn - 01.11.1961, Page 37
Kolakraninn
Frh. af bls. 21
Við fetuðum okkur síðan hægt niður
stigann, því hann var blautur og sleip-
ur í suddanum. Loksins komumst við
niður. Við höfðum sigrað, lagt að velli
hið mikla og forneskjulega járnbákn,
sem Tómas Guðmundsson hefur lýst svo
vel í kvæði sínu um Höfnina:
Hann læsist í gegnum umferðarysinn.
Hann iðar í bílanna þröng.
Undrandi kolakarlarnir hlusta
á kranans máttuga söng.
i
En hátt yfir umferð hafnar og bryggju
og hátt yfir báta og skip,
sfinxi líkur rís kolakraninn
með kaldan musterissvip.
Hann mokar kolum og mokar kolum
frá morgni til sólarlags.
Raust hans flytur um borg og bryggjur
boðskap hins nýja dags.
Og enn flytur kolakraninn boðskap
hins nýja dags, hann flytur nú aðal-
lega sement frá skipslestunum í stað
þess að moka kolum sýknt og heilagt,
eins og fyrrum.
SveTom.
*
I dagsins önn
Frh. af bls. 29.
sagðist hann hafa sín áhrif, því hann
borgaði 50 þúsund á ári í flokkssjóðinn
og hann vildi sko fá eitthvað fyrir snúð
sinn. Hann sagðist vera maðurinn, sem
blési pólitíkusana upp og gæti stungið
á blöðrunum ef sér svo sýndist. Því
næst tók hann að berja í borðið og lýsa
því yfir, að hann væri ekki að styrkja
flokkinn að gamni sínu. Hann ætlaði sér
að verða bankaráðsmaður eða banka-
stjóri, ábyggilega bankaráðsmaður. Til
að róa hann, óskaði ég honum til ham-
ingju með stöðuna, og gat ég síðan kom-
ið honum til að hætta að tala um vel-
gengni sína og skreppa þess í stað á
barinn.
Ekki gleymdi ég að bjóða konunni í
dansinn, en samt varð ég ekki það
kenndur, að ég þyrði að sýna á gólfinu
neitt af kúnstum þeim, sem við hjónin
lærðum í dansskólanum í fyrra.
Dagur Anns.
— Leiðið mig til konu foringjans,
sagði Marzbúinn, þegar hann lenti
koppi sínum í Washington, D.C.
*
-{X
*
>
<{X
*
*
>
<{x
*
<{x
>
&
>
&
>
&
>
&
>
<{x
*
*
*{x
*
<!x
-ix
<ÍX
<!x
*
<{x
*
-{X
*
-ÍX
$
$
*
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Stjörnurnar segja, að yður muni verða vel ágengt í starfi
yðar fyrstu daga vikunnar. Atburður, sem þér hafið beðið
með óþreyju, mun valda yður miklum vonbrigðum í seinni
hluta vikunnar. Það ríður á, að þér vinnið og látið ekki mál
þessi raska ró yðar, því að þá munuð þér vel þola þessi áföll.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Þess mun ekki langt að bíða, að breytinga sé að vænta á
högum yðar, enda þótt smávægilegar séu, en hins vegar þurf-
ið þér að taka á honum stóra yðar og beita þeirri þolinmæði
til þess að koma í veg fyrir vandræði heima fyrir og á vinnu-
stað. Enginn vafi er á því, að ástamálin verða hagstæð þessa
viku.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Þér ætt.uð án tafar að gæta þess að ganga hægt um gleð-
innar dyr, því að þér hafið um langt skeið vanrækt bæði vini
yðar og fjölskyldu. Gleðskapur er nefnilega beztur í hófi.
Einhver, sem þér þekkið mjög vei. öfundar yður af gáfum
og velgengni og vill koma því þannig fyrir að þér tapið áliti
sem þér höfðuð á því sviði.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
í þessari viku ríður á því að rasa ekki um ráð fram og
flana' ekki út í einhverja vitleysu. Aftur á móti ættuð þér að
x hafa það hugfast, að grípa tækifærin á réttum augnablikum.
En fyrst og fremst ættuð þér að muna, að þér getið ekki bú-
izt við öllu góðu frá þeim persónum, sem þér umgangist mest.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst).
Svo lítur út, að hið eina sem getur eyðilagt. möguleika yðar
til þess að ná einhverjum frama, sé skilningsleysi yðar á mörg-
um sviðum. Þér þurfið því að afla yður meiri þekkingar og
víðsýnis á mörgum málum til þess að þér séuð blátt áfram
viðræðuhæfur. Einkum mun ferðalög og kynni við fólk efla
skilning yðar.
Jómfrúarmerkið (2j. ágúst—23. sept.).
1 þessari viku gerist margt óvænt og skemmtilegt og þess
vegna ríður á þvi að þér verðið nógu fljótir að átta yður á
þeim breytingum, sem í vændum eru. Ráðagerð yðar um ákveð-
ið mál mun heppnast prýðilega og innan tíðar munuð þér sjá
að þér hafið ekki unnið til einskis gagns. Amor er lúmskur
þessa viku.
Vogarskálamerkið (24. sept.—23. okt.).
Það sem yður skortir einna helzt er viljaþrek og festu.
Enda þótt þér eigið yfir nokkrum persónum að ráða, þá_ þýðir
ekkert að beita valdi heldur verðið þér að reyna lagni. í ásta-
málunum verðið þér að vera þolinmóðir, enda skuluð þér muna
að þolinmæðin þrautir vinnur allar. Happatala yðar er 6.
Sporðdrekamerkið (24. okt.—22. nóv.).
Stjörnurnar segja, að þér verðið í þessari viku alveg óvenju
hress og velupplagðir til þess að taka að yður hvers konar
framkvæmdir. Enn fremur telja st.jörnurnar, að þér munið
ekki öðlast það, sem þér viljið með því að hafa frekju í
frammi heldur munið þér fá það með því að beita blíðu brosi
og yndisþokka.
Bojjmannsmerkið (23. nóv.—22. des.).
I þessari viku mun yður vaxa ásmegin ef svo má að orði
komast og þér munuð koma mörgu x verk, sem þér hafið lengi
látið sitja á hakanum. Hins vegar megið þér vara yður á
fölskum löforðum og slúðri. í vikulokin munuð þér kynnast
mjög ánægjulegri persónu, sem þér eigið eftir að hafa mikið
gagn af í sambandi við ýmis mái.
Steingeitarmerlcið (22. des—20. jan.).
Satt að segja eruð þér ekki metnir eftir verðleikum hvorki
á vinnustað né á heimili yðar. En góð samvinna er bezta
hjálpin.í slíkum málum og lítill vafi er á því að þér munuð
komast í álit og mannvirðingar, ef þér gætið þess hér eftir
sem hingað til að vera orðvar og gjamma ekki fram í hvers
manns mál.
VatnsberamcrkiS (21. jan.—18. febr.).
Sennilega mun eitt.hvað vænkast um hag yðar í þessari viku,
enda þótt mörg vandamál steðji að. Einkum mun fjárhagur
yðar batna, en ekki er ein báran stök því að þér munuð mæta
erfiðleikum í 'einkalífi yðar. Þér megið enn fremur vara yður
á hávaxinni rauðhærðri konu, sem mun reyna að hafa ein-
hver áhrif á yður.
Fiskamerkið (19. febr.—20. marz).
Þér eigið að reyna að vera svolítið diplómatiskari í störf-
um yðar dags daglega og gæta þess að þræða meðalveginn.
Þér megið ekki gefa hverjum sem er loforð og helzt ekki gefa
nein loforð. Auk þess ættuð þér ekki að sleppa fram af yður
taumnum og gæta þess að kasta yður ekki út í munað og
óhóf,
-{X
Hx
>
*{x
>
&
*
-{X
*
I
>
&
>
&
*
-vx
*
-{X
-{X
*{x
*
<{X
-{X
-{X
-{X
*
-{X
*
<!X
-{X
*
-{X
*
<vx
*
*
3f
HX
5f
<{x
^x
>f
*{x
★
FALKINN
37