Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Síða 4

Fálkinn - 22.11.1961, Síða 4
 emn l draiACýaleenLtm, DRAUGABÆRINN Discovery lítur út eins og gorkúlubæirnir, sem maður sér í Wild-west“-kvikmyndum: Tvílyft timburhús, gistihús með svölum á fram- hliðinni, knæpa með vinduhurð, dans- salur og spilavíti. Gangstéttirnar með- fram húsunum eru flóraðar með batt- ingum, svo að maður þurfi ekki að vaða aurinn. Discovery er einn af hinum mörgu yf- irgefnu gullgraiarabæjum í Klondike, sem fyrrum sáu sinn fífil fegri, er gull- æðið gekk eins og faraldur þar fyrir meira en sextíu árum. En nú hefur bær- inn verið í eyði í fjörutíu ár. Húsaskúm í hillunum, sem fyrrum voru fullar af viskýflöskum og í bankanum stendur peningaskápurinn galopinn. — Þeir sprengdu hann upp áður en þeir fóru. En þrátt fyrir allt má enn heyra fóta- tak á plankagangstéttinni í Discovery. Þetta veit maður líka af skiltinu, sem er við innkeyrsluna í bæinn. Á því stend- ur: Árið 1898: — 10.000 íbúar. — Árið 1961: — 1 íbúi! Þessi eini íbúi er þýzkur að ætt og heitir Oskar Schneider. Hann hefur ekki misst vonina um að finna góða gull- námu áður en lýkur. Það er nefnilega hérna við Atlinvatn, sem Robert Henderson gat fyllt sekki af gulli árið 1896. Og um sama leyti fann Indíánakynblendingur gull líka, og von bráðar voru yfir 100 þúsund manns komnir til Alaska til þess að leita að gulli Þeir gátu komizt með skipi til bæjarins White Horse. í þeim bæ er nú safn, sem varðveitir ýmsar menjar frá gullgrafaraöldinni, og þar eru rennur úr tré, sem notaðar voru við gullþvott- inn. En draumurinn um að finna gull varð ekki lengi. Aðeins tuttugasti hver maður, sem norður fór, hafði nokkuð upp úr krafsinu. Og svo hurfu þeir smátt og smátt suður á bóginn aftur. Oskar Schneider var tuttugu ára þeg- ar hann kom þarna norður, árið 1909. Þá var gullæðið gengið um garð. Hann reyndi víða fyrir sér áður en hann kom til Discovery fyrir tuttugu árum, ásamt félaga sínum. Og þarna ílentist hann. Félagi hans dó fyrir tíu árum, og síðan hefur Oskar verið einn. Hann settist að í húsinu, sem hann taldi vandaðast — enginn bannaði honum það. En hann lifir ekki við neitt sældarbrauð. Á sumr- in er hann lengstum að viða að sér elds- neyti til vetrarins. Fjórum sinnum á ári kemur hann til White Horse til þess að kaupa sér mat. Og hann borgar fyrir nauðsynjar sínar með gulli. I ársandin- um má nefnilega enn finna gull. Að vísu ekki nema lítið, en iðinn maður getur þó þvegið svo mikið gull úr sandinum, að hann hafi ofan í sig að éta. Það er talið, að hægt sé að vinna 20 grömm af gulli úr hverju tonni af sandi. En það þykir oflítið til þess að vinna það í stór- um stíl. Oskar Schneider vill ekki fara frá Discovery. Hann veit að hann gæti unn- ið fyrir betra kaupi sem algengur verka- maður, og haft minna fyrir lífinu. En hann trúir því enn, að áður en lýkur muni hann finna eins mikið gull og Henderson fann forðum. Á hverju kvöldi vegur hann sandinn, sem hann hefur skolað þann daginn, við skímuna frá olíulampanum sínum, og hellir honum í skinnpokann sinn. Aldrei hefur hann haft áhyggjur af að hann gæti orðið veikur eða slasazt, og yrði þá að deyja drottni sínum, eins og skepnurnar í skóginum. En einhvern tíma kemur að því að einbúinn finnist dauður í húsinu sínu í draugabænum. Svo er hér ein saga af enskum ráðherra. Selwyn Lloyd núveraridi fjármálaráð- herra fékk um daginn kynd- ugt mál til meðferðar. Hann tók sem sé á móti reikningi frá Joseph Kocl presti við St. Péturs kirkjuna 1 Philadelph- ia. Reikningur þessi var skaðabótakrafa fyrir tjón, sem brezkar her- sveitir höfðu unnið á girðingunni umhverfis kirkjuna árið 1777. Tjónið sjálft var metið þá sjö pund, en með vöxtum og vaxtavöxtum var það orðið 270000 pund. Málinu lauk með því, að Selwyn Lloyd sendi prestinum hina upphaflegu upphæð, nákvæmlega sex pund, átta shillinga og sjö pence. Og nú segir prest- urinn: —- Ég er meira en ánægður, hr. Selwyn Lloyd hefur viðurkennt tjónið og vextina þurrkum við bara út í nafni vináttu Bret- lands og Bandaríkjanna. ★ Menn skyldu ekki dæma innri mann de Gaulle af ytra útliti hans, því að svo virðist að mjög siðfágaður persónu- leiki leynist bak við kaldrana- legt yfirbragð. Að minnsta kosti má dæma það eftir þeim ummælum, sem hann viðhafði nýlega: — Ég er hreykinn af einu, það er landið mitt, La France, sem er eina landið í víðri veröld, sem unnt er að nota sem konunafn. ★ Hinir tveir frægu menn, Marcel Pagnol og Fernandel, sem báðir eru frá Marseilles, sátu eitt sinn saman yfir glasi og ræddu um hjónabandið og leyndardóma þess. Segir þá Marcel Pagnol: — Allar kon- ur giftast af ást. — Nei, sagði Fernandel og glotti svo að skein í hestatennurnar, þú verður nú að fara lengra en til Ítalíu til þess að finna þær, kæri vinur. — Ojæja, ég fullvissa þig um þetta — en ég reikna með að nokkrar geri það af ást til peninga.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.