Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Side 7

Fálkinn - 22.11.1961, Side 7
hólf 1411, verðlaunagetraun, Reykjavík. Frestur til að skila lausnum er 3 vikur. Hávaði. Kæri Fálki! — Svo stendur nú á, að ég er í mestu vand- ræðum, hvað snertir herbergið mitt, það er nefnilega svo illa hljóðeinangrað. Þegar félag. arnir koma svo í heimsókn til mín á kvöldin, þá getum við ekki spilað á grammófóninn og varla talað saman, því að það heyrist allt saman út í gegnum veggina og yfir til pabba og mömmu eða yfir í næstu íbúðir. Er ekki til eitt- hvert efni, sem getur einangr- að alveg herbergið? Viddi. Svar: Eiginlega getum við ekkert gert í þessu máli, sem yður gœti komið að gagni. En reyn- ið samt sem áður að tala við einhvern sérfræðing í bygging- armálum og látið hann hjálpa yður í þessu. Það eina, sem við getum huggað yður með er, að það er áreiðanlega til gott hljóðeinangrunarefni. Getraunir. Akureyri 10. nóv. 1961. Þakka mjög skemmtilega dægradvöl, og yfirleitt mjög skemmtilegt blað. En slæmt þykir mér að þurfa að klippa úr sögum, því ég held blöð- unum saman, og það er alltaf skemmd á þeim. R. Mar. Ak. Akranesi 8. nóv. 1961. Hr. ritstjóri. Ég sendi hér getraunaseðl- ana sex talsins og vona, að þeir verði teknir gildir, þó að ég hafi ekki tilgreint hvar á myndinni hlutina vantaði ef svo er ekki vona ég, að mér verði gefið tækifæri til þess að leiðrétta það. Að lokum óska ég blaðinu góðs gengis. Það mættu gjarnan koma fleiri álíka getraunir. Virðingarfyllst. S. J. Svör: Það er allt í lagi að senda miða með getraunalausn- um, þótt þeir séu ekki út úr blaðinu. Þetta er allt í lagi hjá yður S. J. SVAMPUR GERIR SÉRHVERT RÚM AÐ GÓÐRI HVÍLU SVAMPGÚMMÍDÝNUR POLYETHER-SVAMPDÝNUR margar stærðir og verðflokkar POLYETHER og SVAMPGÚMMÍ- SKÁKODDAR, SVÆFLAR, PÚÐAR Einnig POLYETHER-DÚNN í PÚÐA og PLÖTUR í öllum þykktum frá 5 mm SNIÐIÐ EFTIR ÓSKUM SVAMPUR ER SÉRGREIN OKKAR PÉTUR SNÆLAND H.F. VESTURGÖTU 71 . SlMI 24060 — 3 LlNUR JÓLIN NÁLGAST! Islenzkir munir í miklu úrvali til gjafa innan lands og utan. — Sendum um allan heim. — Allar sendingar tryggSar. RAMMAGERÐIN Hafnarstræti 17 . Sími 17910

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.