Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Side 15

Fálkinn - 22.11.1961, Side 15
leingi við lýði og sagði eftir- minnilega til sín þegar stund- ir liðu, eins og sagt mun verða. ★ Eftir Sigvalda prest Hall- dórsson fékk Húsafell prestur- inn frá Stað í Aðalvík — séra Snorri Björnsson. Þessi mikli perþónuleíki sem í sögnum hefur nánast orðið tröll og maður í senn kom að Húsa- felli 1757, aðvífandi úr fræg- asta drauga- og galdramanna- plássi landsins, þá þegar um- vafinn kynjaþoku sögusagn- anna. Hann kemur úr félags- skap Halls á Horni og sona hans Hallvarðar og Jóns, af- burðamanna um afl, átfrekju og galdra. Hann hefur með- ferðis vísindabók, sem hann tók af Jóni gamla fjölkynngis- jöfri á Ströndum, eftir að hafa blóðgað hann og gert óvirk- an. Enda bregzt ekki hið ótta- blandna traust fólks á séra Snorra. Hann reynist hinn öruggasti í hvívetna, kveður niður sendíngar, læknar kvilla, styður lítilmagna, iðkar afl- raunir er skáld gott og kveð- ur fornlega. í Húsafellstúni er rétt sem heitir Draugarétt, því þar kvað séra Snorri nið- ur sjötíu drauga; þó segja sumir menn að þeir hafi verið sjötíu og einn Gísli Konráðsson lýsir Snorra svo: „Snorri prestur var jafnan kallaður þriggja maki að afli, syndur sem selur, skáld og ritari allgóður, meðalmaður á hæð, fagurlega á fót kom- inn, vel riðvaxinn, beinagild- ur og mikill í liðum, hærður vel, með sétta konn. Hárskúf- ur lítill var sprottinn honum á nefi. Rauðeygur var hann við aldur og mjög gráhærður og liðbrýnn. Mikill var hvat- leikur hans.“ Séra Snorri var kvæntur Hildi Jónsdóttur prests í Aðal- vík, Einarssonar. Þeim hjón- um varð margra barna auðið, enda er Húsafellsætt fjöl- mennari og kunnari en frá þurfi að segja. — Jakob son- ur þeirra fæddist að Stað í Að- alvík árið áður en þau Snorri fluttust suður; hann varð steinhöggvari og alþekktur að vandaðri legsteinssmíð. Aðrir synir voru Björn prestur og Einar, en dætur Kristín, Helga Guðrún og Guðný. ★ Guðný Snorradóttir fæddist um 1771. Um æsku hennar hafa sagnirnar það eitt að flytja ,er þær telja hafa ráðið mestu um æviferil hennar og siði síðar. Útburðirnir í Teits- gili höfðu ekki gleymzt. Þegar Guðný var lítil var hún eitt sinn í smalamennsku. Þá var það sem henni virtist annar útburðurinn nálgast sig hún tók á rás með hann á hælunum heim til bæjar. Og endaði með því að klerkur faðir hennar varð að grípa til kunnáttu sinnar og kvað útburðinn frá dóttur sinni, og það svo dyggilega að hann lét ekki á sér bæra síðan. En Guðný litla „varð aldrei jafngóð“. Sögn þessa sagði Kristleif- ur á Stóra-Kroppi (þriðji mað- ur frá séra Snorra) Brynjólfi frá Minnanúpi, og hafði hana eftir Guðnýju sjálfri. Snorri prestur andaðist ár- ið 1803 á tíræðisaldri; börn hans voru uppkomin, vel mönnuð sem kallað var og urðu kynsæl. En Guðný „varð ekki við alþýðu skap“. Hún eignaðist eftir föður sinn bók þá, er hann hafði forðum tek- ið af gamla Jóni norður á Ströndum ... Bók þessi var stór og rituð með rauðu Finna- letri. Púki nokkur fylgdi bók þessari, og varð sá að eignast hvort tveggja, er bókarinnar naut.“ Hér er ekki hægt um vik að greina frá ævi Guðnýjar framanaf ævi, en hún þótti jafnan forneskjuleg í háttum og einræn. Síðasta hluta æv- innar bjó hún ein í kofa þar sem heitir Ambáttarhóll, í Varmalækjarlandi í Flóka- dal. Jón Borgfirðingur sá Guð- nýju nokkrum sinnum. Hann segir svo frá „að hún hafi ver- ið mikil vexti og stórskorin. Hún hafði skegg á grönum. Bitureyg var hún og hvítmat- aði í augu hennar, þegar hún gaut þeim út undan sér. Guð- ný var hjátrúarfull mjög, en fróð og skrafhreifin. Einu sinni sá Jón hana við Bæjar- kirkju, og var hún þá í svartri hempu. Hún hafði vafið hvít- um strompi um höfuð sér, og var hann opinn upp úr, en utan um strompinn hafði hún vafið dökkum klúti“ (Þjóðs. Ól. Dav.). Sagt. var að Hallkell nokkur frá Grjóteyri í Andakíl hafi verið í tygjum við Guðnýju, en rofið heit sín við hana. Hann varð síðan úti í Grjót- eyrarskógi, og töldu menn að það væri af völdum Guðnýj- ar. Nokkrar minningar eru Frh. á bls. 34. Um borð í strandferðaskipi nokkru sat ung móðir með barn sitt. í sama sal sat einnig gömul kona, tann- laus. Barnið grenjaði og grenjaði og mátti sjá það á svip kerlingar, að þetta fór alltaf meir og meir í taug- arnar á henni. Loksins stóðst hún ekki mátið lengur, sneri sér að móðurinni og sagði ergilega; — Þér ætt- uð fremur að halda yður heima, heldur en vera ferð- ast með barn, sem greinilega er ekki heilbrigt og get- ur gengið með eitthvað smitandi. — Þá ættuð þér að verða glöð, svaraði móðirin, barnið er að taka tennur. ★ Ólafur Færeyingur fór einn dag til læknisins. — Hjartað slær ekki nógu ört og ég á í geysilegum vandræðum með að ganga upp og niður stiga, sagði Ólafur. — Það er ekki nema von, svaraði læknirinn, þú ert alltof feitur. Þú þarft að vikta þig og svo skulum við sjá, hvað hægt er að gera. — Þarna hefurðu mig, hvað er ég svo þungur? -— Við getum nú ekki reiknað þetta út í kílóum, en samkvæmt þunga þínum ættir þú að vera fjórir metrar og þrír sentimetrar á hæð. ★ Athenæum klúbburinn í London er fremur þekktur fyrir að hafa gáfaða menn innan sinna vébanda held- ur en að vera skemmtilegur klúbbur. Sir J. M. Barrie hefur þannig sagt eina sögu af Því, þegar hann óvart rakst á gamlan og hruman prófessor. Auðvitað baðst sir Barris afsökunar á þessu með sinni venjulegu kurteisi. Honum til mikillar undrunar greip þessi gamli herramaður í höndina á honum og sagði inni- legri röddu: — Þakka yður herra fyrir þessi fáu en hlýju orð. Ég hef nú verið meðlimur hér í þrjátíu ár og þér eruð fyrsti meðlimurinn sem nokkru sinni hefur yrt á mig. ★ Góðgjörn gömul kona fór í heimsókn í fangelsi nokkurt. Hún stanzaði nokkra stund í klefa einum, þar sem fanginn var að taka út síðasta mánuðinn af dómi sínum. Þetta vissi gamla konan og því spurði hún fangann: — Hvaða áform hafið þér svo um framtíðina? — Frú, svaraði hann, ég hef ráðgert tvö bankarán og eitt innbrot í gimsteinabúð. ★ Enda þótt margar sorgarsögur berist frá Berlín, kemur þó fyrir, að þar gerist eitthvað annað en dapur- leg tíðindi. Ekki alls fyrir löngu kom upp eldur í húsi nokkru, sem lá á franska hernámssvæðinu alveg við mörk þess bandaríska. Mönnum fanst það tilvalið, að kalla á Bandaríkjamennina til hjálpar, og þeir komu samstundis og réðu fljótlega niðurlögum elds- ins. Samt gátu hinir bandarísku liðsforingjar ekki á sér setið að stríða þeim frönsku svolítið og sögðu: — Þið getið ekki neitað því, að okkar menn komu alveg á svipstundu. — Já, svöruðu þeir frönsku brosandi, en við sím- uðum ykkur líka, að það væri pensionat fyrir ungar stúlkur, sem væri að brenna. FÁLKINN 15

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.