Fálkinn


Fálkinn - 22.11.1961, Page 23

Fálkinn - 22.11.1961, Page 23
hafa sönnun fyrir því, að ég hafi verið í öðrum stað, þegar morðið var framið? Wardle bandaði frá sér hendinni. — Við leynilögreglumennirnir erum alls ekki skemmtilegt fólk að eiga við, svaraði hann hlæjandi. Það er skylda okkar að gruna alla. Og ef ég á að vera einlægur við yður, þá grunaði ég líka yður um stund. Þér verðið ríkur mað- ur við dauða frænda yðar, yður er kunnugt um það? Norman-Dyge hnyklaði brúnirnar. ■— Ég er reiðubúinn til að gefa upp- lýsingar um, hvar ég var í gærkvöldi og í nótt. Réttvísin á heimtingu á því. Það var hringt í símann á borðinu. Lögreglumaðurinn hlustaði með at- hygli í mínútu eða svo, muldraði nokk- ur orð til svars og hringdi svo af. Morðinginn hefur miðað högginu á réttan stað, beint á stóru slagæðina. Og afleiðingin varð sú, að æðin sprakk. En það er ómögulegt að sjá för eftir hnúana og ekki heldur eru að sjá sár eða skeinur á hendi morðingjans, því að hann hefur ekki hitt á bein. Lævís- lega ráðið. En við höfum tekið Golding. — Veslings Golding. Hvers vegna hafið þér tekið hann. Hvaða tilgang gæti hann hafa haft með því að myrða húsbónda sinn. Ég hef alltaf álitið, að hann hafi verið frænda mínum einkar trúr. — Golding skýrði svo frá, að hann hefði verið úti allt kvöldið. Hann átti fríkvöld í gær. Hann fór út um dyrn- ar að garðinum, en að þeim hefur engin lykil nema hann. Hann kom heim um miðnættið. Vinnukonurnar höfðu ekki heyrt stunu eða hósta, enda eru her- bergi þeirra í hinum enda hússins og þær voru háttaðar. — Brytinn segist hafa verið í kvik- myndahúsi. Hann var mjög rólegur og kom eðlilega fram á meðan yfir- heyrslunni stóð. Næstum því of rólegur fannst mér. Golding segist ekki hafa séð neinn, sem hann þekkti í kvik- myndahúsinu, enda þekkir hann fáa. Klukkan fimm mínútur yfir tólf hringdi hann til lögreglunnar. Svo var hann handtekinn. Þér voruð að minn- ast á hvaða tilgang hann hefði getað haft með morðinu. — Já, hver er tilgangurinn? — Peningar og verðbréf. Norman-Dyke sat hljóður í þungum hugsunum. — Við fundum gamla manninn sitjandi í skrifborðsstólnum sínum og hallaðist hann fram á borðið. Hann var liðinn. Öðru megin á hálsinum var stór rauðblár marblettur. Peningaskápur- inn hafði verið opnaður og tekið úr honum það, sem þar var af peningum og verðbréfum. Það var auðvelt að ná 1 lykilinn úr vasa dauðs manns. — Já, haldið þér áfram. — Við skoðuðum herbergi brytans. í skúffum og skápum fundum við — peninga og verðbréf. Það var allt og sumt. Finnst yður við nú hafa ástæðu til að handtaka manninn? — Hvílíkt manndýr, hrópaði Nor- man-Dyke. Og ég sem trúði á hann — Morðið var vel undirbúið og sæmilega framkvæmt sagði Wardle. Öllu, sem morðinginn hefur snert á, hefur hann þurrkað af á eftir. Hvergi var hægt að finna fingrafar. Nú varð stutt Þögn. — Ég vona, að yður takist að graf- ast fyrir um málið, hr. Wardle, sagði Norman-Dyke og rétti fram höndina. Wardle leit á höndina sem snöggvast og brosti. Svo rétti hann fram höndina á móti og þrýsti hana. -—- Nú skulum við koma inn og skoða líkið, sagði hann Hinn látni lá á hvílubekk undir glugganum f næsta herbergi og var línlak breitt yfir líkið. Lögreglumaður- inn lyfti lakinu frá, svo að sjá mætti hið föla andlit og hálsinn. Svo sneri hann sér hálfvegis að Norman-Dyke og mælti: •— í gærkvöldi sátuð þér í herbergi yðar í Oxford og voruð að lesa. Dyrn- ar að ganginum yðar eru altaf læstar á kvöldin. Glugginn á herberginu yðar er þrjátíu fetum fyrir ofan götuna, sem þér búið við. Þér hafið sannanir yðar á reiðum höndum, finnst yður ekki svo? Norman-Dyke leit með þykkjusvip á lögreglumanninn og sneri sér svo að líkinu. — Sjáið þér marblettinn þarna, spurði Wardle. Norman-Dyke beygði sig og skoðaði blettinn á hálsinum. — Og sjáið þér þetta skrýtna far hérna í röndinni á marblettinum? Norman-Dyke starði á svolítið skjaldmyndað far í blettinum. — Hvað getur þetta verið? spurði hann. — Ég hef tekið ljósmynd af þessu, svaraði Wardle með hægð. Farið er orðið ógreinilegt og hverfur bráðum, en á ljósmynd geymist það svo lengi sem vera skal. Þrjátíu fet eru ekki nema Framhald á bls. 32 Ég hef tekið Ijósmynd af þessu, sagði Wardle með hægð. — Farið er orðið ógreini- legt og hverfur bráðum, en á Ijósmyndinni geymist það svo lengi sem vera skal... FÁLKINN 23

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.